Játar aðild að einu stærsta Bitcoin-þjófnaðarmáli sögunnar Bjarki Sigurðsson skrifar 10. september 2026 07:22 Malone Lam eyddi gríðarlega háum fjárhæðum mánuðinn eftir þjófnaðinn. Nú situr hann í fangaklefa og á yfir höfði sér þungan fangelsisdóm. AP/Jon Elswick Tuttugu og tveggja ára maður frá Singapúr hefur játað aðild að einu stærsta Bitcoin-þjófnaðarmáli sögunnar.
Malone Lam er fæddur og uppalinn í Singapúr. Árið 2023 flutti hann til Bandaríkjanna og hóf nánast um leið glæpaferil sinn. Hann varð hluti af hópi sem reyndi að svíkja peninga úr fólki með því að villa á sér heimildir. Hópurinn notaði upplýsingar sem hann keypti á hulduneti internetsins til að finna fólk sem átti mikið magn rafmynta. Meðlimir þóttust vera starfsmenn stórra tæknifyrirtækja og náðu þannig að sannfæra fólk um að millifæra á sig pening eða veita sér aðgang að rafmyntaveskjum. Í ágúst 2024 fundu þeir mann í Washington-borg sem átti 4.100 Bitcoin, sem er vinsælasta rafmynt heims, að andvirði þrjátíu milljarða króna. Meðlimir hópsins þóttust vera starfsmenn Google og Gemini og náðu þannig að gabba manninn í að veita sér aðgang að Google Drive-aðgangi sínum. Þar geymdi maðurinn lykilorð að rafmyntaveskjum sínum. Mennirnir voru snöggir að færa rafmyntina yfir í sitt veski, selja hana og þvo. Eftir það tók við mánuður af eyðslufylleríi. Þeir keyptu úr, bíla og áfengi fyrir milljarða. Mánuði síðar var Lam handtekinn af fulltrúum bandarísku alríkislögreglunnar í Miami. Lam hefur játað aðild sína og á yfir höfði sér allt að tuttugu ára fangelsi. Fleiri meðlimir hafa einnig játað aðild að öðrum málum og hafa sagst viljugir til að bera vitni um glæpi Lam sem meðal annars streymdi frá því þegar hann var að sannfæra fólk um að gefa sér aðgang að gögnum og rafmyntaveskjum.
Bandaríkin Rafmyntir og sýndareignir Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Verði stjórnað af „róttækustu og öfgafyllstu vinstrimönnum bandarískrar sögu“ Erlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent Fleiri fréttir Verði stjórnað af „róttækustu og öfgafyllstu vinstrimönnum bandarískrar sögu“ Trump hafi nú engu að tapa Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumur Demókrata að rætast Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Sjá meira