Hjólahvíslarinn og lögreglan björguðu Latabæ Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 17. september 2026 06:46 Magnús Scheving sótti þýfið til lögreglunnar í hádeginu í gær. Minnstu mátti muna að saga Latabæjar hefði glatast og búningur Sollu Stirðu í þokkabót þegar óprúttnir þjófar brutust inn á vinnustofu Magnúsar Scheving í miðbæ Reykjavíkur í fyrrinótt. Lögregla var fljót að hafa uppi á þjófunum með aðstoð þekktasta hjólahvíslara landsins. „
Við komum á skrifstofuna í gærmorgun og sáum merki um mannaferðir og svo kom í ljós að það hafði ýmsu furðulegu verið stolið, eins og gömlu peysunni minni se még nota þegar mér verður kalt, haugaslitin og léleg og það furðulegasta var að að búningur Sollu Stirðu var tekinn, alvöru búningur Hildar Völu,“ segir Arna Sigrún Haraldsdóttir verkefnastjóri í samtali við Vísi. „Hvað þjófurinn ætlaði að gera við Sollu Stirðu, það skil ég ekki. Svo voru krakkabolir, sýnishorn af búningum fyrir krakka teknir líka og allskonar furðulegt sem skipti litlu máli, eins og ein bók. En það sem verra var að það var tekinn harður diskur með allskonar efni, þrjátíu ára sögu Latabæjar sem Maggi hefur verið að safna að sér undanfarin ár til þess að undirbúa heimildarmynd. Og það var út af því sem við fórum á flug og ég fór út um allan bæ að leita að þýfinu.“ Arna segir að öryggismyndavélar hafi leitt í ljós að þjófarnir hefðu verið tveir á ferð. Sést hafi í andlit annars þeirra en Arna segist hafa leitað til Bjartmars Leossónar, betur þekktur sem Hjólahvíslarinn til að falast eftir upplýsingum um manninn. Bjartmar hafi kannast við kauða og lögregla í kjölfarið haft upp á manninum. „Þannig að bæði hann og lögreglumennirnir, þetta eru algjörar hetjur. Brotist inn að morgni og seinni partinn er lögreglan búin að hafa upp á manninum og finna þýfið. Þetta er stórkostlegur endir og við erum lögreglunni og Bjartmari mjög þakklát fyrir aðstoðina, enda er þetta ómetanlegur menningararfur sem þarna hefði annars glatast.“ Bestu fréttirnar lengi „Þetta eru bestu fréttir sem við höfum fengið lengi,“ segir Magnús Scheving í samtali við Vísi um fund þýfisins. Hann segir um ómetanlegt efni að ræða. Nú sé auðveldara að sjá húmorinn í leiðindaatviki. „Hann valdi að minnsta kosti alla réttu hlutina og það er greinilegt að hann hefur góðan smekk, það er bara spurning hvað hann ætlaði að gera með þetta dót, hvort hann ætlaði að koma og skemmta með nýja íþróttaálfinum eða hvað,“ segir Magnús hlæjandi.
Lögreglumál Reykjavík Bíó og sjónvarp Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Verði stjórnað af „róttækustu og öfgafyllstu vinstrimönnum bandarískrar sögu“ Erlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent Fleiri fréttir Fjórtán fá styrk frá Eyjólfi Karlmaður um þrítugt játar rúðubrot á Seltjarnarnesi Þriðjungur undir áhrifum í rafskútuslysum Bein útsending: 18 ára og hvað svo? Viðreisn í Kópavogi vill fresta nýjum einkunnakvarða Daði svarar fyrir Landsvirkjunarmálið Stjórnin láti hendur standa fram úr ermum við brottvísanir Mörgum þyki netspjall þægilegra en símtal Tíu tonna grjóthnullungur fór í gegnum nýja varnarvegginn Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Sjá meira