Fjölmiðlahelsi Sigurður Örn Hilmarsson skrifar 17. september 2026 15:30 Staða fjölmiðlunar á Íslandi krefst róttækra breytinga á allri lagaumgjörðinni. Óumdeilt er að vandi einkarekinna fjölmiðla felst einkum og sér í lagi í því að tekjur þeirra dragast saman á meðan kostnaður, einkum við starfsmannahald, fer hækkandi. Rekstrarvandi íslenskra fjölmiðla felst einnig í skakkri samkeppnisstöðu við Ríkisútvarpið, sem nýtur bæði opinberra fjárframlaga og keppir við einkaaðila um sölu auglýsinga. Þetta fyrirkomulag er einsdæmi á Norðurlöndunum og gerir það að verkum að frjálsir fjölmiðlar standa höllum fæti hérlendis. Þá má ljóst vera að fjölmiðlalög eru óþarflega flókin og íþyngjandi - þannig að lögin sem upphaflega var ætlað að efla tjáningarfrelsi og sjálfstæði fjölbreyttra fjölmiðla verka fremur sem myllusteinn um háls þeirra. Hér kemur eitt dæmi. Vatnaskil Sunnudaginn 31. ágúst 2025 varð fjölmiðlinum SÝN á þau mistök að hefja sýningu þáttar úr þáttaröðinni Knutby kl. 20:55. Það er fimm mínútum fyrir svokölluð „vatnaskil“ í miðlun efnis í línulegri dagskrá, en samkvæmt fjölmiðlalögum er óheimilt að birta efni sem ekki er talið við hæfi barna yngri en 12 ára fyrir kl. 22 föstudags- og laugardagskvöld og fyrir kl. 21 önnur kvöld vikunnar. Rétt er að taka fram að dagana þar á eftir voru einnig sýndir tveir þættir úr þáttaröðunum S.W.A.T. og Grantchester innan við klukkustund fyrir þessi svokölluðu vatnaskil. Í ákvörðun fjölmiðlanefndar í máli nr. 2/2026 eru sjónarmið fjölmiðilsins rakin, sem benti á að framangreindar þáttaraðir væru ekki sérstaklega hættulegar börnum heldur efni sem hefði hlotið aldursmerkinguna „12“. Þá var greint frá því að fjölmiðlaveitan hefði farið yfir verklagsreglur sínar hvað aldursgreiningu varðar, frætt starfsfólk sitt og gripið til tæknilegra útfærslna sem tryggðu að ómögulegt yrði að færa útsendingar þessa efnis fyrir vatnaskil. Um hafi verið að ræða „óviljandi tæknilegt frávik í dagskrárstýringu“ sem gæti ekki endurtekið sig vegna þeirra kerfisbundnu og varanlegu úrbóta sem gripið hafi verið til í kjölfar erindis Fjölmiðlanefndar. Af þessu má ráða að fjölmiðlaveitan hafi gengist við mistökum sínum og gripið til aðgerða til að fyrirbyggja endurtekningu þeirra. Engu að síður ákvað Fjölmiðlanefnd að leggja 500.000 kr. sekt á fjölmiðilinn, en nefndinni er lögum samkvæmt heimilt að falla frá sektarákvörðun teljist brot óverulegt eða af öðrum ástæðum er ekki talin þörf á beitingu sektar. Ég hef verulegar efasemdir um að öll þessi vegferð skili nokkru fyrir samfélag okkar eða tryggi ætlaða verndarhagsmuni laganna, þ.e. að koma í veg fyrir „skaðvænleg áhrif á líkamlegan, andlegan og siðferðilegan þroska barna“. Það er raunar mín skoðun að þetta verði allt hálfhjákátlegt þegar litið er til þess að sambærilegir þættir, eins og t.d. Barnaby ræður gátuna og raunar annað ofbeldsfyllra efni sem ekki er talið við hæfi yngri en 16 ára, eru aðgengilegir allan sólarhringinn á RÚV-sarpinum og öðrum slíkum veitum. Það er látið átölulaust af hálfu löggjafans og Fjölmiðlanefndar. Lögum þetta Þetta er lítið dæmi, en það segir sitt um lagaumhverfi sem þarfnast heildarendurskoðunar. Verkefnið á ekki að vera að setja einkareknum fjölmiðlum fleiri skorður heldur skapa þeim raunhæf skilyrði til að sinna hlutverki sínu. Þar þarf bæði að einfalda regluverkið og jafna samkeppnisstöðuna gagnvart Ríkisútvarpinu. Í gær mælti Hildur Sverrisdóttir fyrir frumvarpi þingmanna Sjálfstæðisflokksins um breytingar á rekstrarumhverfi fjölmiðla sem mælir meðal annars fyrir um takmarkanir á umsvifum RÚV á auglýsingamarkaði og skattalegum ívilnunum fyrir einkarekna fjölmiðla. Að mínu mati er kominn tími til að nálgast þessi mál út frá því einfalda markmiði að fjölbreyttir og sjálfstæðir fjölmiðlar geti staðið á eigin fótum. Það væri mun gagnlegra verkefni en að sekta þá fyrir fimm mínútna mistök í dagskrárstýringu. Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins og lögmaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sigurður Örn Hilmarsson Fjölmiðlar Mest lesið Eineltið byrjar kannski við eldhúsborðið! Birta Róbertsdóttir Skoðun Þegar veikindaleyfi verður að fríi Gunnar Ármannsson Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson Skoðun Hvaða skilaboð erum við að senda framtíðarkennurum? Eyrún Ósk Hjartardóttir Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason Skoðun Við erum rétt að byrja Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson Skoðun Skoðun Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Íslenska Z-kynslóðin hefur hægt um sig Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin kjósa – en hver hefur eftirlit með forsetanum? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason skrifar Skoðun Heimili á hjólum er líka heimili Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Almannaréttur er heilagur réttur Þórarinn Eyfjörð skrifar Skoðun Við erum rétt að byrja Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Að eldast er að lifa Halldór S. Guðmundsson,Sirrý Sif Sigurlaugardóttir skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð á gervigreindinni? Kristján Logason skrifar Sjá meira
Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar
Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun