Fresta öðrum tónleikum sínum hérlendis vegna óvænts fráfalls ástvinar Freyja Þórisdóttir skrifar 18. september 2026 23:21 Joey De Maio, lengst til vinstri á myndinni, hefur verið í hljómsveitinni í fjölda ára en hann missti nýverið ástvin og því er tónleikum sem áttu að fara fram í nóvember í Hörpu frestað. Getty Tónleikum þungarokkshljómsveitarinnar Manowar sem áttu að fara fram í Hörpu í nóvember hefur verið frestað þar til í desember. Er það vegna þess að fjölskyldumeðlimur bassaleikara hljómsveitarinnar féll óvænt frá. Hljómsveitin hefur áður þurft að fresta tónleikum sínum á Íslandi en það var í fyrsta sinn sem sveitin lagði leið sína til landsins, þann 1. febrúar í fyrra. Þá var flugið þeirra fellt niður vegna óveðurs.
Í yfirlýsingu sem Joey De Maio, bassaleikarinn og aðalsprauta sveitarinnar, sendi frá sér segir að náinn fjölskyldumeðlimur hans hafi skyndilega fallið frá, án þess að hafa áður glímt við veikindi. Sýna sér skilning „Ég vona að ekkert ykkar þurfi nokkurn tíma að standa þar sem ég stend nú. Ef þið skylduð einhvern tíma lenda í aðstæðum sem þessum veit ég að þið munuð skilja hvað slíkar stundir bera með sér fyrir einstakling, fjölskyldu hans og vini,“ segir í tilkynningunni. Þá er því einnig sýndur skilningur að frestunin kunni að valda óþægindum fyrir mörg þeirra sem höfðu þegar keypt sér miða á tónleikana og beðist innilegrar afsökunar á því. „Ég bið ykkur aðeins um að virða friðhelgi fjölskyldu minnar á þessum erfiðu tímum. Ég þakka ykkur öllum fyrir þolinmæðina og tryggðina og hlakka til að sjá ykkur öll á komandi tónleikum.“ Miðarnir gilda áfram Kemur fram í yfirlýsingunni að miðar sem hafi verið keyptir á tónleikana sem áttu að fara fram 12. og 13. nóvember muni gilda á nýju dagsetningarnar 8. og 9. desember. Þeir sem sjái sér ekki fært að mæta í desember geti einnig haft samband við miðasölu Hörpu fyrir föstudaginn 2. október og fengið endurgreitt. Í upphafi síðasta árs urðu meðlimir hljómsveitarinnar að fresta fyrstu tónleikum sínum á Íslandi vegna þess að flugið þeirra var fellt niður. Þá var haft eftir þeim að þeim hafi ekki fundist örugg leið til að koma sveitinni til landsins en þá var mikið óveður við landið og því einnig spáð um tónleikahelgina.
Tónleikar á Íslandi Harpa Bandaríkin Mest lesið Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Lífið „Ég er enn að venjast andlitinu á mér“ Bíó og sjónvarp Ekki gálgadans heldur hæ dúddelí dæ Gagnrýni Hinsegin ást í loftinu Lífið Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Lífið Arnór Sig kominn á fast Lífið „Ókrýndir hip-hop kóngar Íslands“ halda 20 ára afmælistónleika Tónlist Iceguys beint á toppinn og íslenska bíóárið mallar Bíó og sjónvarp Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Lífið Íslensk listakona sló í gegn í Miami Lífið Fleiri fréttir „Ókrýndir hip-hop kóngar Íslands“ halda 20 ára afmælistónleika Mikil notkun Íslendinga á appinu óvænt Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks Fjölskyldudeilur vegna uppboðs á gítar George Michael Ísland ekki á lista 36 þjóða sem keppa í Eurovision Fyrsta myndbandi Tár leikstýrt af Baldvin Z Hætta við að hætta við að hætta við Ölvuðu Íslendingarnir í Kristjaníu stóðu upp úr Sagður hafa valið sjálfan sig til að troða upp á Ofurskálinni „Stöðumælaverðir eru líka fólk og þeir hafa tilfinningar“ „Ég er ekki búinn að svelta mig enn þá“ Ástarbréf til íslenskra költmynda „Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Guðmundur Pétursson hlaut Gullnöglina Arkir hita upp fyrir Tha Alkaholiks Sjá meira