Segir stóra ákvörðun framundan Smári Jökull Jónsson skrifar 23. september 2026 06:44 Donald Trump hélt ræðu á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í gær. Vísir/Getty Donald Trump forseti Bandaríkjanna hótaði í ræðu sinni á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í gær að afmá klerkastjórnina í Íran ef átökin leystust ekki. Samskipti áttu sér stað á milli fulltrúa landanna á þinginu í gær.
Trump kom víða við í ræðu sinni en hann sagðist standa frammi fyrir stórri ákvörðun um hvort ráðast ætti aftur á Íran eða freista þess að ná samkomulagi um frið. Á þinginu hefur Trump fundað með á annan tug þjóðarleiðtoga á sama tíma og átök bæði í Mið-Austurlöndum og Úkraínu reyna á utanríkisstefnu Bandaríkjamanna. Stóran hluta ræðu sinnar varði Trump í að réttlæta stríðið við Íran, sem ýtt hefur olíuverði upp á heimsvísu og dregið úr fylgi hans frá því hernaðaraðgerðir Bandaríkjanna hófust í febrúar. „Eða mun ég afmá klerkastjórnina?“ Í frétt BBC segir að tónn Trump var í töluverðu ósamræmi við orð Antonio Guterres, framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, sem varaði við því fyrr um daginn að sundrung í heiminum færi vaxandi og lagði áherslu á gagnkvæma hagsmuni þjóða heims. Trump hélt því meðal annars fram að átökin hefðu komið í veg fyrir að Íranir gætu eignast kjöarnorkuvopn og sýnt fram á gildi þess sem hann sagði frið í formi styrks, úrslitakosti í stað samningaviðræðna eða málamiðlana. „Verður samið við Íran þannig að landið fái að byggja sig upp og verða mun stórfenglegra ríki en það hefur áður verið? Eða mun ég afmá klerkastjórnina, og það hratt, og gef þeim aldrei aftur tækifæri til að drepa fólk og eyðileggja lönd? Mun ég taka þá til heljar?“ spurði Trump og sagðist telja að samningur við Íran myndi nást skömmu eftir þingkosningar í Bandaríkjunum í nóvember. Ummælin endurspegla utanríkisstefnu Trump sem einkennist af þvingunum og hótunum hervalds en um leið er durum haldið opnum fyrir samningaviðræðum. Araghchi og Witkoff funduðu Á fundi með blaðamönnum síðar sagði Trump að bandarískir embættismenn hefðu átt mjög gagnlegan þriggja klukkustunda fund með íranskri sendinefnd á alþjóðaþinginu. Íranska ríkissjónvarpið staðfesti að utanríkisráðherrann Abbas Araghchi hefði fundað með Steve Witkoff, sérstökum erindreka Bandaríkjanna í Mið-Austurlöndum. Talsmaður íranska utanríkisráðuneytisins, Esmail Baghaei, sagði samkvæmt ríkisfréttastofunni IRNA að viðræðurnar hefðu farið fram fyrir milligöngu katarsks sáttasemjara sem kom skilyrðum Teheran á framfæri, þar á meðal að öllum hernaðaraðgerðum yrði hætt og að Bandaríkin létu af aðgerðum sínum. Þegar BBC spurði Witkoff hvernig fundirnir hefðu gengið, um leið og hann var að yfirgefa höfuðstöðvar Sameinuðu þjóðanna, svaraði hann með því að rétta upp þumalinn. Today, on the sidelines of the United Nations General Assembly, we engaged in lengthy talks with the Iranian delegation through the mediators, who shuttled between the two sides throughout the day. They successfully completed a round of discussions that we hope will prove…— Special Envoy Steve Witkoff (@SEPeaceMissions) September 22, 2026 Síðar staðfesti hann á X að viðræðurnar hefðu farið fram í gegnum sáttasemjara sem héldu til skiptis milli fylkinganna allan daginn og að „otu viðræðna hefði verið lokið með góðum árangri sem vonir standa til að reynist uppbyggilegur og vænlegur.
Bandaríkin Donald Trump Íran Sameinuðu þjóðirnar Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Mest lesið Fella niður 26 flugferðir Innlent Fylgi haggast varla eftir atkvæðagreiðslu Innlent „Gengið með eins eðlilegum hætti og hægt er“ Innlent Segir stóra ákvörðun framundan Erlent Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Innlent Fjöldi handtekinn í aðgerðum lögreglu Innlent Lögreglan leitar að Arturas Innlent Hvannadalshnjúkur lækkar Innlent Gular viðvaranir á morgun Veður Hjól Eyjabarna skrúfuð í sundur Innlent Fleiri fréttir Verkfall flugvirkja hafið „Gengið með eins eðlilegum hætti og hægt er“ Fylgi haggast varla eftir atkvæðagreiðslu Hvannadalshnjúkur lækkar Líkamsárás í Breiðholti Fella niður 26 flugferðir Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Hjól Eyjabarna skrúfuð í sundur Lögreglan leitar að Arturas Flugfreyjur og flugmenn styðja flugvirkja Fjöldi handtekinn í aðgerðum lögreglu Bein útsending: Kynna nýtt áhættumat fyrir Grindavík Barn stakk sig á sprautunál á skólalóðinni „Það er enginn bissness í þessu fyrir okkur“ Gómaður með gríðarlegt magn af barnaklámi Nýtt áhættumat: Bjóða Grindvíkingum að kaupa húsin til baka Flestir félagar vilji frekari kjarabætur vegna forsendubrests Kristján hótar lögsókn verði bann að lögum Hefja athugun á fjárhagsaðstoð Reykjavíkurborgar Stefnir í aflýsingar á öllu morgunflugi frá Keflavík og Reykjavík Munu ekki samþykkja frekari hækkun launa Árleg framlög jukust um 286 milljónir en Sinfónían aftur rekin með tapi Segir ásakanir flugvirkja „furðulegar“ Neitar að tjá sig um hvort lög verði sett á verkfall Ekkert í afkomu fyrirtækja sem sýni virðingu fyrir kjarasamningum Þokast æ fjær loftslagsskuldbindingum Íslands Leita lausnar áður en verkfall hefst á miðnætti Boða stórsókn í skóla- og menntamálum í Reykjavík Bein útsending: Kynnir nýjar losunartölur Nauðgaði sofandi sambýliskonu sinni og tók myndir Sjá meira