Eik kallar eftir rýmri heimildum til tíðari arðgreiðslna
Stjórnendur Eikar leggja til að lögum verði breytt þannig að skráð félög geti með einfaldari hætti dreift arðgreiðslum yfir árið, meðal annars með ársfjórðungslegum greiðslum eins og þekkist víða annars staðar. Fasteignafélagið telur núverandi fyrirkomulag óþarflega íþyngjandi miðað við nágrannalönd, draga úr samkeppnishæfni hlutabréfamarkaðarins og leiða til óhagkvæmari fjárstýringar.
Tengdar fréttir
Eik klárar sölu á einu lengsta skuldabréfi sem skráð félag hefur gefið út
Fasteignafélagið Eik lauk í gær útboði á nýjum verðtryggðum skuldabréfaflokki til fjörutíu ára, sem er á lokagjalddaga í febrúar árið 2066, en fá dæmi eru um að skráð félög hafi gefið út bréf með svo löngum líftíma á innlendum markaði.
Skilmálar veðpottsins beina Eik að Reykjavík þegar þörfin vex annars staðar
Þeir skilmálar sem eru að baki svonefndum veðpotti hjá Eik, eignasafn sem er nýtt sem veð við markaðsfjármögnun, eru sumpart „barn síns tíma“, að mati forstjórans, og setja ákveðnar skorður á fjárfestingu utan höfuðborgarsvæðisins þar sem atvinnulífið er í auknum mæli að byggjast upp. Hann segist ekki vilja „leika einhverja snjalla leiki“ við fjármögnun á stórum efnahagsreikningi heldur skipti mestu að eyða út öllum kúlulána-gjalddögum úr endurgreiðsluferli félagsins.