„Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Tómas Arnar Þorláksson skrifar 4. október 2026 13:03 Tatyana Guðbjörgsdóttir, hefur búið á Íslandi í um tuttugu ár en átti heima í Oleshky í Úkraínu fyrstu ellefu ár ævi sinnar. vísir/aðsend Kona sem fæddist í Oleshky í Úkraínu en hefur búið á Íslandi í tuttugu ár segir fjölskyldu sína borða gras og snigla úr garðinum til þess að lifa af. Veturinn framundan muni vera hörmulegur fyrir íbúa Oleshky sem er undir stjórn Rússa í Kherson-héraði í Úkraínu. Íbúar hafa setið fastir í bænum í rúma fjóra mánuði og skortir mat og aðrar nauðsynjar.
Rússar hafa framkvæmt ítrekaðar drónaárásir gegn íbúum og þá hafa myndbönd frá svæðinu sýnt íbúa flýja fótgangandi og á hjólum til að reyna að finna æti. Dróni inn um gluggann og amma föst í stólnum Tatyana Guðbjörgsdóttir, flutti til Íslands ellefu ára gömul og segir hræðilegt að horfa upp á aðstæður í heimabæ sínum Oleshky. „Maður hugsar á hverjum einasta degi hvort maður fái símtalið í dag, eða í dag, eða hvort það sé á morgun. Um að eitthvað hafi skeð eða einhver hafi verið drepinn. Þetta er mjög erfitt. Það er mjög erfitt andlega og tekur mikla meira á en maður heldur.“ Fjölskyldunni hafi tekist að bjarga ömmu hennar í móðurætt í næstsíðustu björgunarferðinni úr Olehski í desember á síðasta ári. Faðir hennar, föðurbróðir og amma eru enn föst í bænum. „Fyrst þegar stríðið byrjaði vorum við í sambandi vikulega. Þá var það aðeins rólegra í bænum því mesta áherslan var lögð á Kænugarð. En síðan núna, það hafa liðið næstum tvö ár frá því ég heyrði í þeim síðast. Ég heyrði í þeim í fyrradag og fékk þá þær fréttir að fimm drónar hafi sprungið rétt hjá og í húsinu þeirra.“ Tatyana ásamt, móður sinni og ömmu sem þær gátu bjargað frá Oleshky í desember árið 2025.aðsend Fjölskyldan hafi heyrt í drónunum koma. Faðir hennar og föðurbróðir gátu komið sér í felur. Tveir drónar sprungu fyrir utan. „Þá náttúrulega springa gluggar og allt. Síðan flýgur einn dróni inn í herbergi og springur þar og tveir í viðbót. Pabbi minn og frændi minn náðu að fela sig. Þeir fóru undir baðkar en amma mín, hún er svolítið gömul og lítið hreyfanleg þannig að hún bara sat og sá þetta allt en hún fór líka verst úr þessu. Hún fékk sem sagt eitt brot af dróna í fótinn á sér og er á spítala núna. Að vera á spítala í Oleshky er frekar tilgangslaust þar sem það er ekkert, engin lyf eða neitt til að veita fólki hjálp. Skiltið í Oleshky árið 2018. Á myndinni er Tatyana ásamt bróður hennar og móður. Myndin fyrir neðan sýnir skiltið í dag.aðsend Gras og sniglar úti í garði og ferðir upp á líf og dauða Hver dagur sé barátta upp á líf og dauða enda ríkir hungursneyð í bænum. Valið sé á milli þess að svelta í bænum eða hætta sér í svaðilför út fyrir bæjarmörkin. „Það er enginn matur. Það hefur ekki verið fluttur matur í bæinn síðan í apríl. Og það er ekkert ljós, það er ekkert drykkjarvatn, ekkert rafmagn, ekkert gas. Þannig að síðast þegar ég heyrði í frænda mínum og fékk að vita að þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla. Þá hafa þau reynt að fara í annan bæ sem er nálægt til að ná í mat og þurftu að labba í fjóra daga fram og til baka. Á þessum fjórum dögum höfðu þeir þurft að fela sig tvisvar fyrir dóna sem var að reyna að skjóta þá og drepa þá.“ Hún segir þessa för úr bænum hafa verið vel heppnaða þrátt fyrir drónaárásir enda ekki allir sem komast lífs af. „Það eru ótal mörg lík sem liggja á þessum vegi af venjulegu fólki með matarpoka sem hefur reynt að ná sér í mat. Það er líf og dauði. Þetta er líf og dauði fyrir fjölskyldu mína. Þetta verður erfiðasti veturinn hingað til. Þetta er val um að deyja úr hungri og kulda eða reyna að flýja borgina og taka sénsinn að verða skotinn. Þetta er mjög, mjög erfið staða,“ segir hún og heldur áfram: „Þetta er alveg hræðilegt. Maður nær ekki einu sinni að meðtaka hversu hræðilegt þetta er. Þetta er aðallega bara þetta svæði sem er í þessu ástandi með hungursneyðina. Ef þeir komast bara yfir ána, hinum megin við ána sem er svo nálægt, væri þetta strax aðeins betra.“
Úkraína Innrás Rússa í Úkraínu Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Katla skelfur Innlent Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Erlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Erlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Fleiri fréttir „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Sjá meira