Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Kjartan Kjartansson skrifar 8. október 2026 15:23 Birkir Bárðarson, forstöðumaður Rastar, rannsóknarfélags. Vísir/Sigurjón Basalausn verður veitt út í Hvalfjörð í tilraun sem á að auka kolefnisupptöku sjávar á næstu dögum eftir að leyfi fékkst fyrir rannsóknini. Utanríkisráðherra synjaði umsókn um leyfi til tilraunarinnar í fyrra þar sem honum þótti lagaramma skorta um slíkar rannsóknir.
Sérfræðingar á vegum bæði Hafrannsóknastofnunar og Umhverfis- og orkustofnunar veittu jákvæðar umsagnir um umsókn rannsóknarfélagsins Rastar um tilraunina í fyrra. Töldu þeir rannsóknina hafa mikið vísindalegt gildi og að hún væri ekki líklegt til þess að hafa skaðleg áhrif á umhverfi og lífríki fjarðarins. Hugmyndin mætti þó andstöðu Kjósarhrepps, annars sveitafélagsins við Hvalfjörð, og sumra hagsmunaaðila þar. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, hafnaði umsókn Rastar um rannsóknarleyfi í maí í fyrra á þeim forsendum að ekki væri til neinn lagarammi um rannsóknir af því tagi sem Röst vildi stunda í Hvalfirði. Nú hefur utanríkisráðuneytið vent kvæði sínu í kross og veitt Röst leyfi til þess að gera tilraunina í hast. Mbl.is sagði fyrst frá því í dag. Birkir Bárðason, forstöðumaður Rastar, segir við Vísi að tilraunin hefjist á næstu dögum. Nákvæm tímasetning ráðist af veðri og vindum eftir að undirbúningi ljúki. Þrepaskipta tilrauninni og síðasta þrepið háð frekara samþykki Tilraunin felur það í sér að allt að 170 þúsund lítrum af 4,5 prósent basalausn verður veitt í sjóinn. Tilgangurinn er að kanna hvort raunhæft sé að auka svonefnda náttúrulega basavirkni sjávar en þannig væri hægt að auka kolefnisupptöku hafsins án þess að það leiddi til frekari súrnunar þess. Reynist aðferðin fýsileg gæti hún nýst sem tól þess að koma böndum á hnattræna hlýnun sem stórfelld losun mannkyninsins á gróðurhúsalofttegundum veldur. Birkir segir að rannsóknin sé eins og sú sem stóð til að gera í fyrra. „Það sem hefur breyst er að við förum hægar af stað en þá var lagt upp með, líka til þess að það sé góð sátt um það sem við erum að gera,“ segir hann. Þannig tilraunin þrepaskipt. Fyrst verður basalausninni veitt út í sjóinn í fjórar til sex klukkustundir og staðan svo metin. Gangi allt að óskum verði svo losað í hálfan til heilan sólarhring. Í síðasta áfanganum hefur Röst leyfi til að losa í 96 tíma en það er þó háð samþykki utanríkisráðuneytisins. Birkir segist þó eiga von á að síðasti áfanginn standi skemur. „Við teljum okkur geta náð okkar markmiðum á talsvert styttri tíma.“
Loftslagsmál Vísindi Stjórnsýsla Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Hafið Hvalfjarðarsveit Kjósarhreppur Umhverfismál Mest lesið Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Ekki rétt sem Halla segir Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Fleiri fréttir Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Sjá meira