Handbolti

Viktor Gísli varð fár­veikur á HM

Sindri Sverrisson skrifar
Viktor Gísli Hallgrímsson er klár í slaginn að nýju með Barcelona.
Viktor Gísli Hallgrímsson er klár í slaginn að nýju með Barcelona. Getty/Sanjin Strukic

Landsliðsmarkvörðurinn Viktor Gísli Hallgrímsson veiktist á HM félagsliða í Egyptalandi á dögunum, þar sem hann var með Evrópumeistaraliði Barcelona, en er allur að braggast.

„Ég fékk einhverja veirusýkingu og berkjubólgu. En ég verð tilbúinn í næsta leik,“ segir Viktor í samtali við Vísi.

Eftir úrslitaleikinn gegn Veszprém á HM, þar sem Barcelona varð að sætta sig við tap og þar með silfurverðlaun, hefur Viktor misst af sigurleik gegn Alicante í spænsku deildinni og svo sigrinum á Dinamo Búkarest í Meistaradeild Evrópu í gær.

„Ég varð svolítið slappur seinustu dagana [á HM] og svo a ferðadeginum heim bara „crashaði“ ég,“ sagði Viktor sem eins og fyrr segir ætlar sér að spila um helgina, gegn Villa de Aranda á sunnudaginn.

Í fjarveru Viktors hefur austurríski táningurinn Sergej Novakovic fengið að spreyta sig hjá Barcelona, til aðstoðar við Sergey Hernández.

Novakovic er aðeins 18 ára gamall en 203 sentímetrar og hann varði þrjú skot, eða 20%, í sigrinum gegn Alicante um síðustu helgi. Hernández stóð hins vegar í markinu nær allan leikinn gegn Dinamo Búkarest og varði 19 skot af 45 eða 42%.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×