Handbolti

Gengi Hauks og fé­laga ætlar ekki að batna

Andri Broddason skrifar
Haukur Þrastarson er búinn að vera stjarna Rhein-neckar Löwen en liðinu er ekki að ganga vel í þýsku úrvalsdeildinni.
Haukur Þrastarson er búinn að vera stjarna Rhein-neckar Löwen en liðinu er ekki að ganga vel í þýsku úrvalsdeildinni. Uwe Anspach/Getty Images

Haukur Þrastarson og félagar í Rhein-Neckar Löwen tóku á móti ThSV Eisenach í þýsku úrvalsdeild karla í handbolta. Heimamenn áttu í erfiðleikum með gestina og vann Eisenach leikinn 33-29.

Haukur skoraði fyrstu tvö mörk Löwen í leiknum en liðið átti ekki góðan fyrri hálfleik. Gestirnir í Eisenach náðu að byggja upp forystu og þegar fyrri hálfleikur kláraðist voru gestirnir fimm mörkum yfir, 18-13.

Heimamenn í Rhein-Neckar Löwen gerðu það sem þeir gátu til þess að minnka forskot gestanna í seinni hálfleik en alltaf fékk liðið mark í bakið. Mismunurinn flakkaði bara á að vera fjögur mörk eða fimm mörk og náði Löwen ekki að komast nær.

Þegar aðeins tíu mínútur voru eftir tók Löwen leikhlé til þess að reyna að ná áttum í lokin og reyna að bjarga stigum úr leiknum. Heimamenn náðu þó ekki að minnka forskotið nógu mikið og endaði leikurinn með 33-29 sigri gestanna.

Haukur Þrastarson var markahæsti leikmaður Löwen með 7 mörk og var með tvær stoðsendingar. Næstur á eftir honum var Edwin Aspenback sem skoraði fimm mörk. Markahæsti leikmaður Eisenach var Felix Aellen en hann skoraði sjö mörk.

Rhein-Neckar Löwen hefur ekki byrjað vel í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta og er liðið aðeins með sjö stig eftir átta umferðir og situr sem fastast í ellefta sæti deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×