Vona að ágreiningur liti ekki þing ASÍ Lovísa Arnardóttir skrifar 13. október 2026 10:03 Arnaldur Grétarsson og Georg Páll Skúlason hafa báðir boðið sig fram til forseta ASÍ. Aðsend og Ernir Frambjóðendur til forseta ASÍ vona að ágreiningur síðustu daga vegna endurskoðunar kjarasamninga hafi ekki of mikil áhrif á þing ASÍ sem hefst á morgun. Þeir eru sammála um að verkalýðshreyfingin eigi að hafa frumkvæði að breytingum á vinnumarkaðsmódelinu en eru ekki endilega sammála um hvernig eigi að gera það. Þeir segja kosningabaráttuna háða að mestu af þeim sjálfum. Það sé „engin maskína“ eða peningar að baki baráttunni.
Tveir hafa tilkynnt um framboð til forseta ASÍ en frestur er til föstudags, þegar kosningu lýkur. Annar er Arnaldur Grétarsson, mannfræðingur og samfélagsmiðla- og markaðssérfræðingur sem hefur starfað fyrir ASÍ, og hinn Georg Páll Skúlason, formaður GRAFÍU, stéttarfélags í prent- og miðlunargreinum. Þeir voru til viðtals í Bítinu á Bylgjunni um ágreining formanna VR og Eflingar, vinnumarkaðsmódelið og forsetakjörið. „Þetta leggst mjög vel í mig. Mér finnst hérna efnistökin á þinginu vera áhugaverð og mjög svona viðeigandi inn í þessa óvissu sem blasir við vinnumarkaðnum,“ segir Arnaldur um stemninguna fyrir þinginu sem hefst á morgun. Það sé gott að móta stefnu sambandsins en hann sé meðvitaður um að það hafi gustað svolítið um. „Auðvitað hefur það ekki farið fram hjá neinum að það hefur gustað um og endurskoðun á kjarasamningi síðan 2024 sem gildir út febrúar 2028 stóð yfir alveg þangað til 8. október. Það var auðvitað mikið í fjölmiðlum og mjög ánægjulegt að það hafi náðst að lenda því,“ segir Georg. Þeir segja gott á milli sín og að það sé ekki hatrömm barátta um forsetastólinn. „Ég hef stundum talað um að það sé hálfgerð svona Vatíkan-páfastemning þarna. Þetta er mjög lokað þetta þing,“ segir Arnaldur. Það séu tæplega 300 þingfulltrúar sem hafi atkvæðisrétt og kosningabaráttan sé ekki hefðbundin heldur sé hún meira í samtali við þingfulltrúana, félögin og starfsfólk. Georg tekur undir það og segist hafa verið í sambandi við fjölda formanna og hafa óskað eftir því að koma kynningu á framfæri, hverju hann standi fyrir og reynslu sinni. „Ég er búinn að vera í kjarabaráttu og réttindabaráttu launafólks í nú um 40 ára skeið. Ég byrjaði í iðnnemahreyfingunni og var formaður Iðnnemasambandsins á sínum tíma. Ég fékk félagsmálabakteríuna í skákinni þar á undan en svo aftur verkalýðsbaráttuna fékk ég við það að vera í að læra og nema sem prentari. Það sem ég byggi í raun og veru mitt framboð á er í raun og veru bara reynslan sem ég hef öðlast á þessum tíma og þekking, og auðvitað þá hvatningu sem ég hef fengið frá félögum mínum til þess að bjóða mig fram. Það hefur náttúrulega verið alveg gríðarlega mikilvægt veganesti á þessari leið að bjóða sig fram til forseta.“ Miklu meira sem sameinar en sundrar Spurður hvort hann telji sig geta lægt öldurnar innan ASÍ segir Georg að hann hafi unnið á þessum vettvangi lengi og verið farsæll í að ná niðurstöðu með ólíkum hópum. „Þannig að ég held að það sé í raun og veru að minnsta kosti það sem ég vil leggja á mig til þess að reyna að koma þannig á. En ég vil nú ítreka það líka að það er miklu meira sem sameinar hópana heldur en skilur þá að, þannig að þetta er ekki eilíf barátta um að menn séu ósammála.“ Arnaldur var áður starfsmaður ASÍ og segist þekkja þokkalega vel til þar. „Ég hef verið í mjög góðu sambandi við bæði starfsfólk og formenn félaganna og hef bara fundið fyrir mjög góðum stuðningi úr því baklandi þar sem fólk sér hlutina mjög svipuðum augum og ég. Ég tala fyrir róttækum og stórhuga breytingum á starfsemi Alþýðusambandsins og ég held að þó að þar sé mjög margt gott gert þá megi virkilega gefa í. Ég hef talað fyrir því að ASÍ eigi að vera miklu stærri og sýnilegri hagsmunagæsluaðili fyrir launafólk almennt,“ segir Arnaldur. ASÍ sé í raun eini hagsmunagæsluaðili launafólks gegn öllum hinum sérhagsmunaaðilunum. „Þarna þurfum við að spýta verulega í. Þetta þarf líka að gerast í góðu samtali við félögin. Það er eitthvað samtal sem ég tel að hafi verið vanrækt og það var alltaf mín tilfinning, auðvitað líka þegar ég var starfsmaður Alþýðusambandsins.“ Arnaldur segir að í sinni kosningabaráttu hafi hann reynt að vera í sambandi við öll félögin og farið yfir þeirra sýn og framhaldið hjá ASÍ. Hann segir stórtækar breytingar fram undan á vinnumarkaði. Það sé bæði verið að þrengja að hreyfingunni og svo sé aðför að verkfallsrétti með auknum valdheimildum ríkissáttasemjara. „Síðan erum við líka að horfa á óprúttna atvinnurekendur sneiða fram hjá verkalýðsfélögum og stéttarfélögum með gerviverktöku og í gegnum app og þá einhvern veginn heitir það að það sé löglegt og fínt. Þarna myndi ég vilja sjá Alþýðusambandið taka miklu meira frumkvæði einhvern veginn og koma böndum yfir þessa óreiðu. Við sjáum þetta hvernig þetta er að koma inn í gegnum bara í löndunum í kringum okkur og það er engin ástæða til þess að ætla að þetta verði einhvern veginn öðruvísi hér,“ segir Arnaldur. Spurður hvort hann sé til í breytingar á vinnumarkaðsmódelinu eins og til dæmis Bjarni Benediktsson framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins hefur kallað eftir segir Arnaldur að það sé alltaf að taka breytingum en að þau verði að stjórna ferðinni þó svo að það sé alltaf eitthvað samtal. „Það verður það auðvitað alltaf að einhverju leyti en hérna, við eigum að vera með frumkvæði en ekki viðbragð í þessu.“ Arnaldur Georg segir verkalýðshreyfinguna í grunninn grasrótarhreyfingu 44 aðildarfélaga. Á þinginu séu 290 fulltrúar þeirra auk fulltrúa ASÍ-UNG sem hafa atkvæðisrétt, málfrelsi og tillögurétt á þinginu. „Þannig að það er út frá þeirri stefnu sem að ég vil leggja áherslu á að við vinnum,“ segir hann og að hans mati eigi ekki að koma „ofan frá með róttækar breytingar“. Hann segir vinnumarkaðsmódelið alltaf í þróun og það sé eilíf barátta í sjálfu sér sem þurfi að bregðast við á hverjum tíma. „Það er alveg rétt að það er sótt að módelinu. Þannig að þegar er verið að ræða breytingar og þær eiga eitthvað að vera í takt við tímann þá er það ekkert alltaf til hins betra fyrir launafólk,“ segir Georg. Verði að tryggja aðkomu stjórnvalda Spurður um klofning innan ASÍ og stéttaskiptinguna sem Solveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar hefur talað um segir Georg að hann vilji frekar horfa til þess hvað þau eigi sameiginlegt heldur en það sem skilur. „Ég horfi ekki á það þannig að innan ASÍ sé slíkur munur á milli stétta og jafnvel innan einstakra félaga. Þá ertu kannski með meiri mun heldur en akkúrat þvert á hreyfinguna. Ég hef verið að stýra félagi sem hefur verið með iðnaðarmenn, háskólafólk og verkafólk. Ég er búinn að vera formaður í yfir 20 ár og þetta er allt samræmanlegt í samningum sem við höfum verið að gera. En ég held að það sé einmitt það sem við ættum að horfa til, að það séu fleiri aðilar í samfélaginu sem hafa hag af því að við séum sundruð.“ Hann segir mörg mál þar sem séu sameiginlegir fletir og það sé til dæmis í þríhliða samningamódeli þar sem stjórnvöldum er komið að samningaborðinu til að tryggja að það sem sé samið um fari ekki viðstöðulaust út úr vasanum hinum megin. Arnaldur tekur undir og segir að hann vilji líta til sögunnar. ASÍ sé stofnað í kringum slíkar deilur. Það hafi verið mörg ólík félög sem hafi verið of auðvelt að reka fleyg á milli og nýta sér ágreining þeirra á milli. Fólk hafi áttað sig á því og stofnað þennan samráðsvettvang. „Að við ætlum ekki að læra af þeirri sögu finnst mér með ólíkindum og að við ætlum að láta þennan ágreining eyðileggja fyrir okkur þessa sameiginlegu hagsmunabaráttu,“ segir Arnaldur. Vill tala fyrir sáttum Hann segist tala fyrir sáttum og það sé grunnhugmynd hreyfingarinnar. „Það er grunnhugmynd hreyfingarinnar. Það er alltaf ágreiningur og það er náttúrulega eldurinn sem knýr vélina í hreyfingunni en við erum líka bara með félagslegt starf og leiðir til þess að leysa slíkan ágreining og þannig á að standa að þeim málum og annað er ekki bara til sóma.“ Arnaldur segir óþægilegt að ágreiningur Sólveigar Önnu Jónsdóttur og Höllu Gunnarsdóttur, formanns VR, sé svo mikið í dagsljósinu og hann segist ekki telja það neinum til góðs. Ekki íhaldsmaður þó það sé íhaldssemi í orðum hans Spurður hvort munurinn á þeim tveimur felist aðallega í því að Georg sé íhaldssamari í sínum aðferðum svarar hann því að þó svo að það geti falið íhaldssemi í orðum hans þá sé hann ekki íhaldsmaður. „Verkalýðsbaráttan er náttúrulega vinstribarátta, alveg hreinar línur í því en ég myndi segja að ég vil taka það áfram sem vel er gert, vinna að breytingum á því sem menn vilja breyta og það með samtali, samvinnu og samstöðu.“ Georg Arnaldur segir að þegar hann tali um róttækar breytingar sé hann aðallega að tala um að uppfæra baráttu hreyfingarinnar. „Við erum pínu föst í einhverjum veruleika sem er 20 ára gamall og þurfum að einhvern veginn að stíga inn í þann nútíma sem blasir við okkur,“ segir hann og að baráttan ætti að hans mati að vera sýnilegri. Spurður hvort hér þurfi að skapa traust eins og sé á öðrum Norðurlöndum, eins og oft er vísað til í umræðu um breytingar á vinnumarkaðsmódelinu, segir Georg að hans mati sé ekki alveg augljóst að það gangi svo vel þar. „Ef Svíþjóð er tekin sem dæmi þá hafa verið alveg gríðarlega erfið ár þar og félagar okkar, til dæmis úr iðnaðarmannastétt, hafa staðfest það að laun hafa frekar lækkað heldur en hækkað að raungildi á síðustu tíu árum,“ segir hann og að í Finnlandi sé hægri stjórn sem sé að reyna að skerða réttindi. Það séu atriði sem skilja á milli Norðurlanda og Íslands og þá séu réttindi launafólks ríkari í kjarasamningum hér en úti vegna þess að þar hafi þau verið byggð meira í gegnum samfélagsleg réttindi þegnanna og með sósíaldemókratískum flokkum sem hafa verið við stjórnvölinn lengi og hafa mikil tengsl við hreyfinguna líka. Þar sé þó veikleikinn líka þegar stjórnvöld taka við sem ekki kæra sig um téð réttindi. „Þá eru þau felld niður án nokkurrar aðkomu verkalýðshreyfingarinnar. Það er mjög sláandi. Þannig að við þurfum alveg að vera vakandi fyrir þessu. Þetta eru alveg teikn á lofti um að menn hafi viljað rýra réttindin. En með þessu fyrirkomulagi að vera með þetta meira í kjarasamningum, öryggisnetið, þá getum við allavega staðið betur vörð um það sjálf.“ Hann segir að að þessu leyti sé staða launafólks betri á Íslandi en á öðrum Norðurlöndum en það sé ekkert sjálfgefið og það skipti máli hvernig hreyfingin hagar sér og hvernig hún notar sinn kraft. Arnaldur segir þennan samanburð sérkennilegan að einhverju leyti því fyrirkomulagið sé öðruvísi uppbyggt bæði hvað varðar verkalýðshreyfinguna og samtök atvinnurekenda. Atkvæðagreiðslunni lýkur á föstudag en þingið hefst á morgun. Enn er frestur fyrir aðra til að bjóða sig fram. Breytingar hafa verið gerðar á þinginu í ár líkt og í fyrra að fyrsti dagur þingsins er opinn öðrum. Opna þingið að hluta Georg vonar að það verði hægt að vinna á þinginu út frá málefnum og að ágreiningur sem hafi verið vegna endurskoðunar kjarasamninga hafi ekki of mikil áhrif á málefnavinnuna. „Reynslan sýnir að ef menn eru í málefnavinnunni þá eru menn miklu meira samstíga yfirleitt. Það er sjaldan að þær komi alveg gjörólíkar tillögunum sem koma frá miðstjórn í grunninn eða efnisuppleggið að þingið fjallar um það og það er oft mikil samstaða um það,“ segir Georg. „Þingið er náttúrulega í rauninni æðsta vald Alþýðusambandsins og ákveðið þar, ákvarðar þar stefnu Alþýðusambandsins til tveggja ára. Þetta er bara formföst samkoma með 110 ára sögu og 110 ára reynslu af því og við skulum bara vona að fólk fari ekki að hleypa sér inn í það til að reyna einhvern veginn að skemma það. Það held ég að væri engum til gagns,“ segir Arnaldur.
Kjaramál ASÍ Vinnumarkaður Stéttarfélög Mest lesið Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Innlent Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða Innlent Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Innlent „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Innlent „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Erlent Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Erlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Erlent „Maður undirbýr sig fyrir það versta“ Innlent Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Innlent Fleiri fréttir Frumvarp um Ríkisútvarp gagnrýnt harðlega í samráðsgátt Stjórnarandstaðan segir „forfallavírus“ ganga meðal ráðherra Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Pawel tekur við af Sigmari sem þingflokksformaður Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Leita ökumanns sem ók á dreng á reiðhjóli „Þá tökum við auðvitað tillit til þess og hlustum“ Mögulegar rafmagnstruflanir í stórhríðinni Lægðin hefur alla burði til að verða söguleg Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína „Maður undirbýr sig fyrir það versta“ Synjað um heimilisuppbót vegna sameiginlegrar þvottavélar og snyrtingar Vona að ágreiningur liti ekki þing ASÍ Háskólarnir verði betur tengdir með breyttri strætóleið Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Ákveðið álag sem maður sé undir án þess að fatta það Undirmönnun hjúkrunarfræðinga tengist dánartíðni sjúklinga Sinntu útkalli þar sem grindverk hafði fokið fyrir akbraut Dómurinn segi ekki alla söguna Yfir sjötíu prósent óánægja með Ingu Sæland Leita enn að einum eftir alvarlega líkamsárás Höfuðpaur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Skipuð formaður Jafnréttissjóðs Dæmdur fyrir skattsvik vegna B Segir að þegar 13 þúsund skrifa undir verði stjórnvöld að hlusta Engin óbirt loforð eða leynilegt samkomulag Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Sjá meira