Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 16. október 2026 08:45 Dómur var kveðinn upp í Landsrétti síðdegis í gær. Vísir/Vilhelm Karlmaður á fertugsaldri hefur verið sýknaður af nauðgun í Landsrétti. Hann hafði áður verið dæmdur í fimm ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að hafa haft önnur kynferðismök en samræði við konu án samþykkis hennar. Tveir af þremur dómurum töldu ekki nægilega sannað að maðurinn hefði haft þann ásetning sem þurfi til sakfellingar fyrir nauðgun en sá þriðji vildi staðfesta fangelsisdóm úr héraði. Athygli vekur að tveir karlar vildu sýkna en eina konan sakfella.
Atvikin áttu sér stað að morgni 10. apríl 2023 á heimili mannsins. Samkvæmt ákæru beitti hann konuna ofbeldi og ólögmætri nauðung og hafði við hana önnur kynferðismök en samræði án samþykkis hennar. Í ákæru var því meðal annars lýst að maðurinn hefði slegið konuna í andlitið, tekið hana hálstaki, haldið kodda yfir andliti hennar þannig að hún ætti erfitt með að anda og þrýst hné sínu á efri hluta bringu hennar. Þá var honum gefið að sök að hafa stungið fingrum inn í leggöng hennar og haft sáðlát yfir andlit hennar. Konan hlaut samkvæmt ákæru meðal annars yfirborðsáverka á höfði, eymsli í kjálka, tognun í hálsi, öxl, mjóbaki og mjaðmagrind, heyrnartap og rifbrot. Héraðsdómur taldi sannað að maðurinn hefði gerst sekur um brotið, að því undanskildu að ekki þótti sannað að hann hefði slegið konuna víðs vegar um líkamann. Hann var dæmdur í fimm ára fangelsi og til að greiða henni 2,5 milljónir króna í miskabætur. Hann áfrýjaði niðurstöðunni til Landsréttar. Deilt um samþykki fyrir harkalegu kynlífi Fyrir Landsrétti neitaði maðurinn áfram sök og hélt því fram að konan hefði samþykkt að stunda með honum harkalegt kynlíf þar sem meðal annars mætti slá hana og taka hana hálstaki. Hann sagði þau hafa rætt um slíkt kynlíf fyrir fram og sammælst um öryggisorð sem hún gæti notað til að stöðva hann eða setja honum mörk. Í dómi Landsréttar er vísað til samskipta þeirra á Instagram skömmu áður en konan kom heim til hans. Þar hafði maðurinn greint henni frá því að hann hefði áhuga á að beita hörku í kynlífi. Hann spurði meðal annars hvort hún vildi láta slá sig og kyrkja og svaraði konan því játandi. Landsréttur taldi að af samskiptunum mætti ráða að konan hefði gert sér grein fyrir því að maðurinn hefði áhuga á harkalegu kynlífi. Hún hefði gefið skýrt til kynna að hún væri tilbúin að prófa það með honum. Fyrir dómi sagði maðurinn að þau hefðu einnig rætt um mörk þegar konan kom heim til hans. Hann hefði spurt hana hvort eitthvað væri sem hann mætti alls ekki gera og hún svarað því til að hún hefði engin sérstök mörk. Þá hefðu þau sammælst um öryggisorð. Ekki sýnt fram á skýr mörk Konan lýsti samskiptunum með öðrum hætti. Hún sagði að þau hefðu lítið rætt saman áður en kynmökin hófust og að maðurinn hefði ekki kannað hvort henni væri í lagi að halda áfram þegar á reyndi. Meirihluti Landsréttar taldi ekki sannað að maðurinn hefði aðeins upplýst konuna um öryggisorðið þegar hún kom heim til hans og síðan hafið ofbeldið án frekari umræðu. Framburður mannsins um að þau hefðu rætt mörk og öryggisorð fyrir fram væri stöðugur og fengi ákveðinn stuðning í framburði konunnar hjá lögreglu. Var það niðurstaða meirihlutans að leggja yrði til grundvallar að konan hefði samþykkt að maðurinn mætti beita hana hörku í kynlífi, meðal annars með því að slá hana og taka hana kverkataki. Ekki hefði verið sýnt fram á að hún hefði sett honum skýr mörk um hvaða háttsemi væri óheimil. Sagðist hafa frosið Maðurinn viðurkenndi að hafa beitt konuna ofbeldi sem hluta af kynlífinu, en sagði að hún hefði ekki gefið til kynna að hann gengi of langt, að öðru leyti en þegar hún notaði öryggisorðið. Þá hefði hann brugðist við og losað takið. Konan sagði hins vegar að hún hefði notað öryggisorðið þegar henni fannst hún vera að kafna. Maðurinn hefði slakað lítillega á takinu en síðan haldið áfram. Að öðru leyti hefði hún frosið og ekki getað brugðist við. „Ég fraus, ég hafði ekki tækifæri til að mótmæla eða segja nokkurn skapaðan hlut, það var aldrei tékkað á mér, athugað hvort ég væri í lagi eða hvort það mætti halda áfram,“ sagði konan fyrir dómi. Ekki ljóst að konan hefði viljað hætta Meirihluti Landsréttar taldi að framburður beggja væri skýr og stöðugur um að konan hefði aðeins einu sinni notað öryggisorðið. Hún hefði þá gefið til kynna að hún ætti erfitt með að ná andanum og maðurinn losað takið. Dómurinn tók fram að samþykki fyrir kynferðislegum athöfnum gæti verið afturkallað og að það yrði að koma fram með orðum eða öðrum hætti þannig að hinn þátttakandinn yrði þess áskynja. Þá gæti reynt á refsiábyrgð ef þátttakanda væri gert illmögulegt að tjá vilja sinn, til dæmis við harkalegar kynlífsathafnir, og hinn aðilinn væri meðvitaður um þá aðstöðu en héldi samt áfram. Í þessu máli taldi meirihlutinn hins vegar ekki sannað að maðurinn hefði haft tilefni til að átta sig á því að konan vildi hætta eða að henni væri fyrirmunað að koma breyttri viljaafstöðu sinni á framfæri. Ekki væri heldur sýnt fram á að hann hefði af ásetningi gengið lengra en samþykki hennar náði til. Gögn um líkamlegt tjón dygðu ekki til Þótt gögn lægju fyrir um líkamlegt og andlegt tjón konunnar nægðu þau ekki ein og sér til að sýna fram á að maðurinn hefði af ásetningi valdið henni meiðslum umfram það sem hann hafði réttmæta ástæðu til að ætla að hún samþykkti. Landsréttur lagði áherslu á að ásetningur væri skilyrði refsiábyrgðar vegna nauðgunar samkvæmt ákvæðinu sem ákært var fyrir. Gáleysi eitt nægði ekki til sakfellingar. Sönnunarbyrðin hvíldi á ákæruvaldinu og sekt yrði að vera sönnuð þannig að hún yrði ekki véfengd með skynsamlegum rökum. Með vísan til þess taldi meirihluti dómsins ekki nægilega sannað að maðurinn hefði af ásetningi gerst sekur um nauðgun. Hann var því sýknaður. Taldi ofbeldið langt umfram samþykki Ingibjörg Þorsteinsdóttir, landsréttardómari og eina konan í dómaratríóinu, skilaði sératkvæði og var ósammála niðurstöðu meirihlutans, Ásmundar Helgasonar og Jóns Höskuldssonar. Hún taldi að staðfesta ætti dóm héraðsdóms um sakfellingu mannsins og greiðslu miskabóta. Í sératkvæðinu segir að þótt konan hafi samþykkt harkalegt kynlíf hafi ekki verið sýnt fram á að samþykki hennar næði til þeirrar miklu hörku og þess ofbeldis sem hún lýsti. Samþykki fyrir því að vera slegin í andlitið og tekin kyrkingartaki jafngilti ekki samþykki fyrir hvers kyns ofbeldi. Ingibjörg taldi framburð konunnar trúverðugan og í meginatriðum stöðugan. Frásögn hennar fengi jafnframt stuðning í læknisfræðilegum gögnum, þar á meðal niðurstöðum skoðunar á neyðarmóttöku og skráðum áverkum. Taldi ofbeldi umfram samþykki sannað Hún taldi einnig að framburður mannsins um samtal þeirra fyrir kynmökin væri óljós og að hann hefði ítrekað vikið sér undan því að svara beint spurningum um atvik málsins. Að mati hennar var sannað að maðurinn hefði beitt konuna mun meira ofbeldi en hún hafði samþykkt. Þegar hún notaði öryggisorðið hefði hún gefið skýrt til kynna að hún vildi stöðva kynmökin en maðurinn hefði haldið áfram. Sú staðreynd að hún hefði ekki getað mótmælt oftar yrði ekki túlkuð henni í óhag við þessar aðstæður. Þá væri framburður mannsins ótrúverðugur að hann hefði í reynd stoppað kynmökin og fengið samþykki fyrir því að halda áfram. Ingibjörg taldi því sannað að maðurinn hefði af ásetningi haft önnur kynferðismök við konuna án samþykkis hennar og að staðfesta bæri fimm ára fangelsisdóminn úr héraði. Konan hafði krafist 3,5 milljóna króna í miskabætur. Landsréttur vísaði bótakröfu hennar frá dómi í kjölfar sýknunnar. Kostnaður vegna málsins í héraði og fyrir Landsrétti greiðist úr ríkissjóði.
Kynferðisofbeldi Dómsmál Mest lesið Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Nálgist neyðarástand Innlent Lentu aftur í óförum Innlent Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Innlent Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Innlent Árásarmaðurinn sextán ára Erlent Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Erlent „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ Innlent „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Innlent Fleiri fréttir Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Hafa sett upp keðjur og bönd við Reynisfjöru Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar „Þetta situr náttúrulega í manni“ Nauðsynlegt að ríkið fjármagni fleiri stöðugildi Niðurstaðan hafi áhrif á framtíð Eflingar innan ASÍ Siglfirðingar standa saman eftir áfall gærdagsins og spenna á ASÍ þingi Íslenskir kælar teknir af netinu eftir árás í Frakklandi Mótmælir harðlega vítissódatilraunum í Hvalfirði Biðlar til fólks að fara varlega í vetrarfærðinni Auglýsa eftir forstjóra Miðstöðvar um öryggisráðstafanir Anna Valdimarsdóttir er látin Vilja nýjan vindmæli: „Þökin fara á loft, falla niður og splundrast“ Borkjarnar vegna Eyjaganga gefa tilefni til bjartsýni Sköpuðust aðstæður fyrir „snælduvitlaust veður“ á Siglufirði Viðvaranir enn í gildi og vegir víða á óvissustigi Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð Sjá meira