Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Samúel Karl Ólason skrifar 16. október 2026 16:47 Alex Murdaugh í dómsal í ágúst. AP/Tracy Glantz Saksóknarar og lögmenn Alex Murdaugh mættust í dómsal í dag í fyrsta sinn frá því í sumar og deildu þeir þar um ný réttarhöld sem til stendur að halda. Rétta á aftur yfir Murdaugh í apríl eftir að dómur hans fyrir að myrða eiginkonu sína og son var felldur úr gildi. Þá eru uppi spurningar um það hvort Murdaugh eigi að hafa notið hjálpar lögregluþjóns við að fela sönnunargögn.
Deilurnar í dómsal í dag snerust og snúa að miklu leyti um kvartanir lögmanna Murdaugh vegna sönnunargagna. Þeir hafa sakað saksóknara um að draga fæturna í að veita sér aðgang að sönnunargögnunum og vilja að réttarhöldunum verði seinkað. Að óbreyttu eiga þau að hefjast þann 5. apríl og virðist sem dómarinn Debra McCaslin sé staðráðin í að halda sig við þá dagskrá samkvæmt AP-fréttaveitunni. Deilurnar snúast einnig um lífsýni sem fundust undir nöglum eiginkonu Murdaugh og það hvort yfirvöld eigi að afhenda rannsóknir á glæpum með skotvopn í nærliggjandi sýslum vegna möguleika á því að morðvopnin hafi verið notuð til að fremja aðra glæpi. Þá eru lögmenn Murdaugh sagðir vilja fá svör við því hvort rannsakendur telji nú að annar maður hafi verið á vettvangi þegar morðin voru framin eða skömmu eftir þau. Hér að neðan má sjá efni úr dómsal í Suður-Karólínu í dag. Morðvopnin fundust aldrei Morðmál Murdaugh, sem var auðugur og áhrifamikill lögmaður í Suður-Karólínu, hefur vakið mikla athygli á heimsvísu á undanförnum árum. Eiginkona og sonur Alex Murdaugh, Maggie Murdaugh, 52 ára, og Paul, 22 ára, voru skotin til bana þann 7. júní 2021, nærri hundabúrum á stórri landareign fjölskyldunnar. Alex Murdaugh hafði samband við Neyðarlínuna umrætt kvöld og sagðist þá hafa komið að þeim látnum eftir um klukkustundar heimsókn til móður sinnar sem var með elliglöp. Rannsókn leiddi síðar í ljós að Maggie hafði verið skotin fjórum eða fimm sinnum með riffli en Paul var skotinn tvisvar með haglabyssu og með misstórum höglum. Enginn var handtekinn vegna málsins í rúmt ár en Murdaugh var að lokum ákærður fyrir morðin í júlí 2022. Morðvopnin fundust aldrei en tuttugu mánuðum eftir morðin kom í ljós að Murdaugh hafði logið um hvar hann hefði verið. Myndband sem fannst á síma sonar hans sýndi að hann var á staðnum þar sem morðin voru framin, fimm mínútum áður en talið er að þau hafi verið framin. Málflutningurinn gegn Murdaugh byggði að miklu leyti á því, þar sem lítið sem ekkert var um önnur sönnunargögn. Sakfelling felld niður vegna dómsritara Sakfelling Murdaughs var felld niður af hæstarétti Suður-Karólínu í maí. Var það gert á þeim grunni að dómsritarinn í málinu hefði mögulega haft of mikil áhrif á kviðdómendur. Mögulegt er að ekki verði réttað yfir honum aftur. Dómritarinn heitir Becky Hill en hún hafði það hlutverk að halda utan um sönnunargögn í málinu og kviðdómendur. Hún er sögð hafa haft of mikil áhrif á kviðdómendur, meðal annars til að reyna að auka sölu bókar sem hún skrifaði um morðmálið. Bókin heitir „Behind the doors of justice: The Murdaugh murders“ eða „Bak við dyr réttlætisins: Murdaugh morðin“. Bókin var tekin úr sölu eftir að Hill var sökuð um ritstuld. Hún var þar að auki sakfelld fyrir að ljúga að öðrum dómara um hvað hún sagði við kviðdómendur á sínum tíma. Rannsaka lögreglumann og vin Murdaugh Verjendur Murdaugh vilja fá upplýsingar um það hvort saksóknarar hafi kallað saman ákærudómstól sem hafi fengið það verkefni að rannsaka lögregluþjón og vin Murdaugh. Saksóknarar eru sagðir hafa gefið til kynna að sá hafi mætt á vettvang á undan öðrum lögregluþjónum og að hann gæti hafa hjálpað Murdaugh að fela blóðug föt og/eða von eftir morðin. Við fyrstu réttarhöldin sögðu saksóknarar að enginn annar hefði verið á svæðinu. Ákærudómstóll er tiltekið fyrirbæri vestanhafs þar sem kviðdómendur eru fengnir til að fara yfir vitnisburð og gögn í ákveðnum málum og kanna hvort þeim þyki tilefni til að leggja fram ákærur vegna meintra brota. Þessi vinna á sér yfirleitt stað fyrir luktum dyrum fyrir réttarhöld, ef ákært er í málinu. Lögmenn Murdaugh fóru fram á að hafi þessi lögregluþjónn verið á svæðinu þegar enginn annar á að hafa verið þar, varpi það rýrð á vitnisburð frá fyrri réttarhöldunum þar sem vitni sögðu að Murdaugh hefði verið einn að verki. Þá krefjast þeir þess að sjá öll sönnunargögn sem gætu bent til þess að Murdaugh gæti hafa haft vitorðsmann. Saksóknararnir neituðu að svara spurningum um hvort slík sönnunargögn væru til og vísuðu til reglna um leynd varðandi ákærudómstóla. Hefur verið dæmdur fyrir fleiri brot Murdaugh er 57 ára gamall. Á undanförnum árum hefur hann einnig verið dæmdur fyrir önnur brot eins og umfangsmikinn fjárdrátt. Murdaugh játaði fjárdráttinn en hefur ávallt haldið því fram að hann hafi ekki framið morðin. Hann var dæmdur í fjörutíu ára fangelsi á alríkisstiginu fyrir að stela um tólf milljónum dala af skjólstæðingum sínum og lögmannafyrirtæki. Þá hafði hann einnig verið dæmdur í 27 ára fangelsi á ríkisstiginu í öðru fjársvikamáli. Það var til viðbótar við tvöfalda lífstíðardóminn sem felldur var út gildi í vor.
Bandaríkin Erlend sakamál Mest lesið Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent Sjö ára dómur Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Veður „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað Innlent Ekki ástæða til að rýma bankann Innlent Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Innlent Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Innlent Georg Páll er næsti forseti ASÍ Innlent Fleiri fréttir Talsmaður Trumps rekin eftir brösulega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Gefur í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanir á Úkraínumenn Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Handteknir fyrir að féfletta NATO-skip í Noregi Fundu elsta skipsflak heims Árásum fjölgar og Íranir ætla að loka Hormússundi aftur Takmarkanir á Starlink í Úkraínu: „Þetta getur ekki verið tilviljun“ Yfir hálf milljón án rafmagns í Kænugarði eftir árásir Rússa í nótt Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Styður Repúblikana með tugum milljarða Páfinn greindist með lungnakrabbamein Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Sjá meira