Innlent

Skakkur á raf­skútu

Bjarki Sigurðsson skrifar
Maðurinn hlaut minni háttar meiðsli.
Maðurinn hlaut minni háttar meiðsli. Vísir/Vilhelm

Keyrt var á mann sem ók um á rafskútu í hverfi 105 í Reykjavík í gær eða í nótt. Minnháttar meiðsli urðu á manninum sem ók rafskútunni en hann er grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. 

Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu þar sem farið er yfir verkefni embættisins frá klukkan fimm í gær til fimm í nótt.

Tilkynnt var um líkamsárás í miðbænum. Brotaþoli hlaut minni háttar áverka en gerandi er ókunnur. 

Tvö þjófnaðarmál komu upp í gær, annað í Hafnarfirði og hitt í Grafarvogi. Bæði mál voru afgreidd á vettvangi. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×