Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Samúel Karl Ólason skrifar 20. október 2026 12:10 Kohen Wiley var eins árs gamall. Hann dó þegar lögreglumaður skaut inn í bíl sem hann var í í sumar. Það var eftir að móðir hans var sökuð um að hafa hnupplað bleyjupakka. AP/Veronica Roberson Dómsmálaráðherra Mississippi í Bandaríkjunum segir að lögregluþjónn hafi ekki brotið af sér þegar hann banaði eins árs barni í sumar. Þá hafði móðir barnsins verið sökuð um að stela bleyjupakka og barnafötum en þegar lögreglumanninn bar að garði var hún að keyra á brott í bíl vinkonu sinnar.
Lögreglumenn reyndu að stöðva bílinn og segja að vinkona Vellesiya Wiley, sem ók bílnum, hafi þá keyrt í átt að þeim. Annar þeirra skaut þá inn í bílinn og hæfði ökumanninn og hinn eins árs gamla Kohen Wiley, sem var í fangi móður sinnar. Hann lést. Sjá einnig: Eins árs gamalt barn skotið til bana af lögreglumanni Hvorki Vellesiya Wiley né Hunter Foster, vinkonan sem ók bílnum, voru ákærðar fyrir þjófnað. Dómsmálaráðuneyti Mississippi hefur nú komist að þeirri niðurstöðu að lögreglumaðurinn hafi haft tilefni til að óttast um líf sitt og hafi ekki brotið af sér með því að skjóta inn í bílinn. Yfirvöld segja að bílnum hafi verið ekið í átt að lögreglumönnum og einn hafi næstum því orðið fyrir honum. Í frétt Mississippi Free Press segir að lögreglumennirnir hafi vitað af barninu í bílnum þegar þeir skutu á hann. AP-fréttaveitan hefur eftir Martin Zummach, lögmanni lögreglumannsins, að niðurstaða rannsóknar ráðuneytisins hreinsi hann af sök. Hann segir að Vellesiya Wiley hafi ætlað sér að myrða skjólstæðing sinn og aðra lögregluþjóna á vettvangi. „Hann hafði enga aðra kosti en að skjóta úr byssu sinni,“ sagði Zummach. Vilja að myndbönd verði birt Ben Crump, sem er þjóðþekktur lögmaður vestanhafs og tók að sér mál Wiley, hefur kallað eftir því að upptökur úr vestismyndavélum lögreglumanna á vettvangi verði birtar. Hann segir að óháð krufning hafi sýnt að Kohen var skotinn frá hlið bílsins, ekki frá framhlið hans eins og lögreglan heldur fram. „Hvernig getur nokkur maður sætt sig við þá niðurstöðu þegar fjölskyldu Kohens og almenningi hefur enn ekki verið leyft að sjá upptökurnar úr líkamsmyndavélinni?“ sagði Crump í yfirlýsingu. „Ef upptökurnar styðja ákvörðun ríkisins, birtið þær þá. Við munum ekki hætta baráttunni fyrr en þessi fjölskylda fær að vita sannleikann.“ Yfirvöld hafa einnig komið höndum yfir upptökur úr öryggismyndavélum verslunarinnar en þær hafa ekki verið birtar. Myndir af bílnum sem teknar voru eftir að Wiley var skotinn til bana sýna að hliðarrúða farþegamegin var brotin og að minnsta kosti eitt gat eftir kúlu var farþegamegin á framrúðu bílsins. Blaðamaður AP ræddi við sérfræðing í valdbeitingu lögreglu sem segir að skothríðin sé að öllum líkindum óréttmæt. Í tilfellum sem þessum eigi lögregluþjónar ekki að skjóta inn í bíla á ferð. Það ógni bæði öryggi lögreglumannanna sjálfra, öryggi þeirra sem eru í bílnum og annarra á svæðinu. Annar sérfræðingur, sem er fyrrverandi lögreglumaður, sagði að svo virtist sem lögreglumaðurinn sem skaut Wiley hefði skotið inn í bílinn frá hlið og honum hefði því ekki stafað ógn af honum. Það geri beitingu skotvopns óréttlætanlega, reynist það rétt.
Bandaríkin Skotárásir í Bandaríkjunum Mest lesið Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Innlent Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent Brikk lokað í óákveðinn tíma Innlent Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Erlent Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Innlent Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Innlent Vilja 125 milljónir til að halda flugeldasölunni gangandi Innlent Hnuplaði úr verslunum fyrir á fjórðu milljón króna Innlent Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Innlent Dómurinn feli í sér tilmæli til þingsins Innlent Fleiri fréttir Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Sjá meira