„Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Samúel Karl Ólason skrifar 21. október 2026 14:56 Vladimír Pútín, forseti Rússlands, á fundi með Steve Witkoff, vini og sérstökum erindreka Donalds Trump, í Pétursborg í dag. AP/Kristina Solovyova, Sputnik Ráðgjafi Vladimírs Pútín segir að Rússar séu tilbúnir til þríhliða viðræðna milli Rússlands, Bandaríkjanna og Úkraínu. Þingmenn Repúblikanaflokksins hafa mótmælt ummælum erindreka Donalds Trump um að Pútín sé mannvinur.
Júrí Úsjakóv sagði við blaðamenn í dag að Pútín hefði tilkynnt Steve Witkoff, sérstökum erindreka Donalds Trump, á fundi þeirra í Pétursborg í dag að Rússar væru tilbúnir til viðræðna á nýjan leik. Viðræðurnar eigi þó ekki að snúast um að koma á friði heldur hvernig halda á á spöðunum varðandi öryggismál eftir að stríðinu lýkur. Fundur þessi stóð yfir í tæpar þrjár klukkustundir en fyrir hann lýsti Witkoff Pútín sem miklum mannvin og hefur það vakið mikla athygli og mótmæli hjá nokkrum þingmönnum Repúblikanaflokksins. Sjá einnig: Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Á meðal þeirra þingmanna sem hafa mótmælt orðum Witkoffs opinberlega er öldungadeildarþingmaðurinn John Cornyn. Hann deildi myndbandi af Witkoff láta þessi orð falla, sem rússneskir ríkismiðlar hafa dreift í dag, og sagði: „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi.“ Thom Tillis, sem er einnig öldungadeildarþingmaður Repúblikanaflokksins, deildi sama myndbandi og skilgreiningunni á orðinu „mannvinur“. Hann bað Witkoff um að kynna sér hana og fara síðan til Úkraínu og ræða við fjölskyldur allra þeirra barna sem Pútín hefði rænt og myrt um það hvort þau væru sammála um að Pútín væri „mannvinur“. WTF, Steve? Look up the definition of “humanitarian.” What an embarrassing and outrageous thing to say. You should go back to Ukraine and ask the families of the children Putin has kidnapped and murdered whether they agree your friend Putin is a “humanitarian.” https://t.co/Nbu0wKPmby— Senator Thom Tillis (@SenThomTillis) October 21, 2026 Hvað varðar þríhliða viðræður er ekki um leiðtogaviðræður að ræða, eins og Trump hafði farið fram á áður en upp úr sauð á milli hans og Vólódímírs Selenskí, forseta Úkraínu. Sá síðarnefndi hafði samþykkt slíkt en Rússar hafa ítrekað sagt að þeir muni ekki ræða við Selenskí, nema hann ferðist til Moskvu. Í síðasta mánuði bárust fregnir af því að slíkur fundur gæti farið fram í furstadæmunum í náinni framtíð. Sjá einnig: Þriggja turna þras í furstadæmunum Þá er útlit fyrir að Pútín hafi beðið Trump um að ræða við sig og Xi Jinping, forseta Kína, um örlög Úkraínu þegar þeir fara á ráðstefnu í Kína í næsta mánuði. Viðræðurnar sem Úsjakóv nefndi geta hafist í næsta mánuði, samkvæmt ráðgjafanum. Samkvæmt frétt RIA sagði Úsjakóv að viðræðurnar myndu snúast um öryggisráðstafanir fyrir bæði Rússa og Úkraínumenn, eftir að átökunum lýkur. Þá hélt hann því fram að ráðamenn í Kænugarði hefðu staðið í vegi frekari viðræðna, með árásum á skotmörk í Rússlandi. Hann útskýrði ekki nánar hvað hann átti við en leiða má líkur að því að hann sé að tala um veru bandarískra hermanna í Austur-Evrópu og aðild ríkja þar að Atlantshafsbandalaginu. Rússar hafa lengi talað um grunnástæður innrásarinnar í Úkraínu 2022 með þeim hætti. Fyrir innrásina kröfðust Rússar þess að öllum ríkjum Austur-Evrópu yrði vikið úr NATO. Stutt er síðan Pútín sagði í ræðu að fall Sovétríkjanna hefði verið gífurlegur harmleikur og kvartaði yfir því að herstöðvar NATO væru á „sögulegum svæðum“ Rússlands. Sjá einnig: Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Þetta var níunda heimsókn Witkoffs til Rússlands. Úsjakóv sagði að Witkoff hefði tekið orðum Pútíns um nýjar viðræður af ánægju og sagt að Trump myndi bregðast vel við. Áður en hann varð aftur forseti hélt Trump því fram að hann gæti bundið enda á stríðið á sínum fyrsta degi í embætti eða jafnvel fyrr. Það hefur ekki tekist, eins og frægt er. Þó að hann hafi ítrekað reynt að koma til móts við Pútín, talað máli hans og gert honum ýmsa greiða, hefur Pútín ekki með nokkrum hætti látið af kröfum sínum gegn Úkraínu eða komið til móts við Trump. Geta ekki gefið virkisbeltið eftir Úsjakóv sagði að Pútín hefði útskýrt ástandið á víglínunni í Úkraínu, þar sem rússneskir hermenn hefðu frumkvæðið í átökunum. Rússum hefur vegnað mjög lítið á víglínunni í Úkraínu á undanförnum mánuðum. Langmesta áherslu hafa þeir sett á að ná restinni af Donbas-svæðinu svokallaða, sem myndað er af Lúhansk- og Dónetskhéruðum. Rússar stjórna mestöllu Lúhansk og stærstum hluta Dónetsk en ekki svæði sem Úkraínumenn kalla „virkisbeltið“. Nafnið er til komið vegna þess að svæðið inniheldur nokkrar borgir sem Úkraínumenn hafa víggirt verulega. Helstu borgirnar í virkisbeltinu eru Kostíantínívka, Kramatorsk og Slóvíansk. Rússum hefur ítrekað reynst erfitt að taka úkraínskar borgir án gífurlegrar fyrirhafnar og mikils mannfalls og binda Úkraínumenn vonir við að geta stöðvað Rússa á þessu virkisbelti. Ráðamenn í Rússlandi hafa nú gert þetta svæði að kröfu þeirra og fyrr verði ekki hægt að koma á friði og hefur Trump reynt að þrýsta á Úkraínumenn um að gefa þetta svæði eftir. Það vilja Úkraínumenn þó alls ekki gera. Þarna býr mikið af fólki og Úkraínumenn telja að ef þeir gefi svæðið eftir myndi það auðvelda Rússum að gera aðra innrás í Úkraínu seinna meir. Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, fór yfir þetta í viðtali á dögunum. Hann sagði að „virkisbeltið“ væri að mörgu leyti síðasta auðverjanlega varnarlína þeirra og að hernám hennar myndi veita Rússum greiðan aðgang að Kænugarði. Þá sagði Rubio að þar sem Rússar hefðu ekki getað hernumið svæðið væru þeir að beita úkraínsku þjóðina auknum þrýstingi með umfangsmiklum eldflauga- og drónaárásum á borgir og bæi landsins. Rubio: Russia has not been able to advance on the battlefield and take Donetsk. Russia is applying extraordinary pain to the people of Ukraine through drone and ballistic missile strikes, trying to destroy Ukraine's electricity generation, especially with winter coming. 2/ https://t.co/HfsS40UOte— Tymofiy Mylovanov (@Mylovanov) October 19, 2026 „Hann vill útrýma okkur“ Selenskí var nýlega spurður út í kröfur Rússa til Donbas-svæðisins. Þá sagði hann að ef Pútín vildi eingöngu það svæði, af hverju hefði hann þá reynt að hernema Kænugarð í upphafi innrásarinnar. „Er hún í austurhluta landsins? Er hún í Donbas?“ Selenskí sagði að svo væri ekki. Kænugarður væri höfuðborg Úkraínu og án höfuðborgar myndi ríkið hætta að vera til. „Hann vill útrýma okkur.“ Þá bætti Selenskí við að ef varnir Úkraínumanna féllu og ríkið yrði hernumið af Rússlandi myndi Pútín reka milljónir af Úkraínumönnum til Evrópu. „Hann vill gera út af við okkur. Hann virðir okkur ekki, fullveldi okkar né landamæri okkar. Hann heldur í alvörunni að við séum ekki ríki, séum ekki þjóð.“ Þess vegna sagði Selenskí ekki hægt að treysta því að Pútín myndi láta staðar numið við Donbassvæðið, ef Úkraínumenn gæfu það eftir.
Úkraína Innrás Rússa í Úkraínu Rússland Vladimír Pútín Hernaður Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent „Mjög óheillavænleg þróun“ Innlent Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Innlent „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Erlent Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Innlent Fleiri fréttir „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Sjá meira