Innlent

Vantar sex milljónir til að halda Edduna

Birgir Olgeirsson skrifar
Eddan 2022
Eddan 2022 Hulda Margrét Ólafsdóttir

Leitað er til Alþingis um sex milljóna króna styrk vegna Edduhátíðarinnar í febrúar á næsta ári. Hátíðin í ár var haldin með halla þrátt fyrir niðurskurð og þrjár milljónir króna vegna hennar eru enn ógreiddar.

Þetta kemur fram í nýrri styrkumsókn Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar, ÍKSA, til fjárlaganefndar. Akademían segir hækkandi kostnað og minni styrk hafa valdið hallanum á hátíðinni í ár.

„Það væri okkur mikill akkur að geta haldið hátíðina án slíkra vandkvæða í febrúar næstkomandi,“ segir í umsókninni, sem Ingibjörg Gréta Gísladóttir framkvæmdastjóri undirritar.

Ógreiddur kostnaður hluti af fjárþörfinni

Samkvæmt fjárhagsáætluninni vantar tæplega sex milljónir króna til að ná endum saman á næsta ári. Þrjár milljónir í ógreiddan kostnað frá fyrri hátíð eru innifaldar í þeirri upphæð.

Þá er þegar reiknað með fjórum milljónum króna í mögulega styrki: 2,6 milljónum frá Kvikmyndamiðstöð Íslands og 1,4 milljónum vegna kosningastjórnar. Fjárþörfin er því tæpar sex milljónir að þeim styrkjum fengnum.

Áætlaður kostnaður við sjálfa Edduhátíðina er 11,8 milljónir króna.

Sóttu einnig um sex milljónir í fyrra

Akademían óskaði einnig eftir sex milljóna króna styrk vegna Eddunnar 2026. Í þeirri umsókn, frá nóvember í fyrra, sagði að Kvikmyndamiðstöð gæti ekki styrkt hátíðina með sama hætti og áður vegna lægra framlags til kvikmyndastefnunnar og kvikmyndamenningar. Sama ástæða er tilgreind í nýju umsókninni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×