Erlent

Ætlar að halda þing­sætinu þrátt fyrir rann­sókn á svikum

Kjartan Kjartansson skrifar
Sænska þinghúsið í Stokkhólmi.
Sænska þinghúsið í Stokkhólmi. Vísir/EPA

Þingmaður Vinstriflokksins í Svíþjóð segist engin áform hafa um að segja af sér þingmennsku vegna rannsóknar á kosningasvikum sem kunna að hafa tryggt honum kjör. Hann hafi ekki fengið neinar upplýsingar um að hann liggir sjálfur undir grun í rannsókninni.

Sænsk yfirvöld rannsaka enn tilraunir hóps manns til þess að kaupa atkvæði í Dölunum í Norður-Svíþjóð í þingkosningunum sem fóru fram í síðasta mánuði. Fólk er sagt hafa fengið greitt eða umbunað fyrir að greiða Mohamed Ali, frambjóðanda Vinstriflokksins, atkvæði í persónukjöri. Ali var nánast óþekktur í kjördæminu áður en hann náði óvænt kjöri.

Ali fór í leyfi á meðan lögregla rannsakar málið. Hann hefur því enn ekki tekið sæti sitt á sænska þinginu. Hann segir sænska ríkisútvarpinu að hann ætli ekki að gefa sætið eftir.

„Kjósendur mínir vilja að ég komi fram fyrir þeirra hönd og geri mitt besta,“ segir Ali í sínu fyrsta viðtali eftir að upplýst var um rannsóknina á kosningasvikunum.

Hann segist ekki hafa verið látin vita af því að hann liggi undir grun um nokkuð saknæmt. Kosningabarátta hans hafi verið háð heiðarlega.

Sænskir fjölmiðlar hafa einnig fjallað um fjármál Ali en hann hefur undanfarið gengist undir greiðsluaðlögun hjá innheimtustofnun sænska ríkisins. Ali segist ætla að reyna að greiða skuldir sínar upp eins hratt og hann getur. Hann telji að fjölbreyttar raddir þurfi að heyrast á þingi og margir Svíar séu í sömu stöðu og hann fjárhagslega.

Þingflokkur Vinstriflokksins stendur með Ali. Samuel Gonzalez Westling, þingflokksformaður, segir fortíð Ali flókna en hann hafi gert sitt besta til þess að vera uppbyggilegur þjóðfélagsþegn.

„Fólk á skilið tækifæri til að sýna að það getur breyst,“ segir Westling.

Engin ríkisstjórn hefur enn verið mynduð í Svíþjóð þrátt fyrir að um sex vikur séu liðnar frá kosningum. Leiðtogi Miðflokksins hefur nú stjórnarmyndunarumboð eftir að jafnaðarmönnum tókst ekki að mynda ríkisstjórn með vinstri- og miðflokkum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×