Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Jón Þór Stefánsson skrifar 23. október 2026 20:49 Kareem M. M. Abufarhah hlaut fimm ára dóm. Vísir Ekki liggur fyrir hvers vegna fjöldi manna komu saman í bílakjallara undir Höfðatorgi í Reykjavík aðfaranóttina 17. mars síðastliðinn, eða hví ráðist var að einum þeirra með svo alvarlegum hætti að hann hlaut lífshættulega áverka. Sá sem varð fyrir árásinni sagðist hafa mælt sér mót við einn tiltekinn mann, en á móti honum tóku tuttugu til þrjátíu manns.
Þetta kemur fram í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í Höfðatorgsmálinu svokallaða, sem nú hefur verið birtur. Þrír voru ákærðir í málinu og voru tveir þeirra sakfelldir. Kareem M. M. Abufarhah hlaut fimm ára fangelsisdóm fyrir tilraun til manndráps fyrir að aka hvítum Land Rover-jeppa á brotaþolann, í kjallaranum sem um ræðir. Mohamed Sayidali Ahmed hlaut átján mánaða dóm fyrir að stinga manninn í kjölfarið í rasskinnina, en að mati dómsins gerðist hann með því ekki sekur um tilraun til manndráps heldur stórfellda líkamsárás. Þriðji maðurinn var sýknaður, en honum var gefið að sök að berja manninn ítrekað með óþekktu áhaldi í millitíðinni. Ekki þótti sannað að hann hafi verið að verki. Fastur í völundarhúsi Í fyrstu skýrslu sem brotaþolinn veitti lögreglu, morguninn eftir árásina, greindi hann frá því að hann hefði farið í bílastæðahúsið ásamt tveimur félögum sínum. Þar hafi þeir ætlaðað hitta einn ákveðinn mann sem hann var ekki tilbúinn að nafngreina. Þeir hafi lagt bíl sínum og svo rölt um til að finna manninn, en þegar þeir komu á áfangastað hafi tuttugu til þrjátíu manns, vopnaðir kylfum og eggvopnum, blasið við þeim. Hann hafi þá byrjað að hlaupa í burtu en „verið fastur í völundarhúsi bílastæðahússins.“ Svo hafi verið ekið á hann, hann svo laminn með áhöldum, síðan stunginn og loks úðað yfir hann með slökkvitæki. Að því loknu hafi honum tekist að hlaupa niður tröppur og hringja eftir aðstoð. Háar fjárhæðir fyrir að taka á sig sök Sakborningarnir þrír neituðu því ekki að hafa verið í bílastæðahúsinu umrætt kvöld, en málsvörn þeirra gekk út á að þeir væru ekki mennirnir sem hefðu ráðist á brotaþolann. Og í tilfelli þriðja sakborningsins var það niðurstaðan, að ekki þótti sannað að hann væri ábyrgur fyrir því sem hann var ákærður fyrir. Í framburði Kareem, bæði hjá lögreglu og fyrir dómi, sagðist hann koma í bílastæðahúsið alla daga til að hitta vini sína. Það gerði hann því þar væri hlýtt. Þess má geta að í skýrslu lögreglu frá því í maí segir að upplýsingar hafi borist „frá aðila sem ekki vildi láta nafns síns getið“ um að tveir sakborninganna, þeir Kareem og Mohamed, hefðu hringt úr fangelsinu á Hólmsheiði í „ótilgreinda menn og sagt þeim hvernig þeir ættu að haga framburði sínum hjá lögreglu“. Jafnframt hefðu þessum mönnum verið „boðnar háar peningafjárhæðir fyrir að taka á sig sök í málinu.“ Útilokað að fullvaxta karlmenn skipti um sæti í miklum hasar Helsta sönnunargagn málsins var myndskeið sem sýnir þegar jeppanum er ekið „óhikað“ og af miklu afli og á talsverðum hraða gegnt steinsteyptum vegg á brotaþolann meðan hann hljóp undan. Kareem, sem var umráðamaður Land Rover-jeppans, játaði að hafa ekið honum inn í bílastæðahúsið og úr því umrædda nótt. Hins vegar vildi hann meina að hann hafi ekki verið við stýrið þegar ekið var á brotaþolann. Samkvæmt Kareem og öðrum vitnum skipti hann um sæti við annan mann, sem sat frami í hjá honum. Að mati dómsins hefði það þurft að gerast meðan mikill hasar var í gangi, og var niðurstaða dómsins sú að útilokað væri að tveir fullvaxta karlmenn hafi skipt um sæti með þeim hætti. Því þótti ljóst að Kareem hafi ekið jeppanum á brotaþolann og gerðist hann þar með sekur um tilraun til manndráps, en að mati dómsins var það hending ein sem réð „úrslitum um hverjar afleiðingar ákeyrslunnar yrðu fyrir líf og heilsu brotaþola.“ Fundarefnið óljóst en þó ekki óvæntur fundur Dómurinn telur rétttæpar sjötíu blaðsíður, en þrátt fyrir fjölda vitna og gagna varð honum ekki ljóst hvert tilefnið var fyrir fundi mannanna í bílastæðahúsinu umrætt kvöld. Þó þykir ljóst að ekki var um óvæntan fund að ræða. Margir mannanna mætti með vopn og barefli, og þykir það benda til þess að Kareem og Mohamed og þeir sem með þeim voru „hafi að einhverju leyti sammælst um að taka vopnaðir á móti mönnum sem þeir áttu von á.“ Að mati dómsins liggur ekkert fyrir um að þeir hafi skipulagt að ráðast á brotaþolann með lífshættulegum hætti. Það var þess vegna niðurstaðan að ekki væri sannað að Mohamed hafi haft ásetning til að drepa brotaþolann þegar hann stakk hann í rasskinnina. Það er þrátt fyrir að stunga hans hafi verið samverkandi þáttur í því að brotaþoli komst í lífshættulegt ástand í kjölfarið. Í dómnum segir að áverkarnir hefðu leitt manninn til dauða hefði hann ekki hlotið lífsnauðsynlega fyrstu hjálp og læknismeðferð. Hann var því sakfelldur fyrir stórfellda líkamsárás. Kareem og Mohamed er gert að greiða brotaþolanum tæplega 1,5 milljónir króna, auk vaxta. Þá þarf Kareem að greiða sakarkostnað upp á rúmlega 13,6 milljónir, og Mohamed rétttæplega níu milljónir. Ofan á það þurfa þeir svo saman að greiða tæplega 4,2 milljónir króna í annan sakarkostnað.
Alvarleg líkamsárás í bílakjallara Höfðatorgs Dómsmál Lögreglumál Mest lesið Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent Fleiri fréttir Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sjá meira