„Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 27. október 2026 14:11 Ragnar Sigurðsson er formaður Sambands sveitarfélaga á Austurlandi og er bæjarfulltrúi í Fjarðabyggð. Samband sveitarfélaga á Austurlandi mótmælir fyrirhugaðri breytingu á fyrirkomulagi Loftbrúarinnar. Skerðingin sé aðför að búsetuskilyrðum á landsbyggðinni.
Fyrir helgi var greint frá áformum Eyjólfs Ármannssonar innviðaráðherra um að breyta fyrirkomulagi Loftbrúarinnar. Núna fá íbúar með lögheimili utan stórhöfuðborgarsvæðisins fjörutíu prósenta afslátt af sex flugleggjum á ári en til stóð að breyta afslættinum í sjö þúsund krónur á fluglegg. Breytingin hlaut töluverða gagnrýni um helgina og sagðist Eyjólfur þá vera með til skoðunar að hækka afsláttinn upp í níu þúsund krónur. Þar með hafi Loftbrúin aldrei verið jafn fjármögnuð. Þrátt fyrir breytinguna leggst SSA gegn fyrirhugaðri breytingu og segir í ályktun að með henni sé jafnræði á niðurgreiðslu fellt og brott auk þess sem þeir sem mest þurfa að borga fái hlutfallslega minnst. Þingmenn verði að standa með kjósendum Haft var eftir Eyjólfi fyrir helgi að með nýja fyrirkomulaginu gæti afslátturinn orðið hærri í prósentum þegar fólk bókar fyrr og tryggir sér hagstæð fargjöld. „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu. Skerðingin er aðför að búsetuskilyrðum á landsbyggðinni enda gegnir innanlandsflugið mikilvægu hlutverki almenningssamgangna Austurlands,“ segir í ályktuninni. „SSA krefst þess að stjórnvöld falli frá breytingum í fasta krónutölu og tryggi þess í stað nægilegt fjármagn til að efla stuðninginn enn frekar með hærra hlutfalli afsláttar á innanlandsflugi. Þingmenn kjördæmisins verða að standa með íbúum gegn skerðingu á meginsamgönguæð fjórðungsins.“ Þingmenn Norðausturkjördæmis hafa verið boðaðir á fund í næstu viku eftir að Ingibjörg Isaksen, þingmaður Framsóknar, óskaði eftir því. Samráðsleysi og boðaðar aðgerðir gegn landsbyggðinni SSA gagnrýnir þá harðlega samráðsleysi stjórnvalda sem hafi einkennt undirbúning breytinganna. Það sé óásættanlegt að fara í slíkt án þess að hafa raunverulegt samráð. Það sé mikilvægt að þekking og reynsla heimamanna hafi vægi við ákvarðanatöku. „Þegar fulltrúar landsbyggðarinnar lýsa aðgerðum stjórnvalda sem aðför að búsetuskilyrðum verður þeirri gagnrýni ekki vísað frá sem einberri upplifun,“ segir í yfirlýsingunni. Þess í stað byggi gagnrýnin á þegar boðuðum áformum á við hækkun kílómetragjalds, hækkun virðisaukaskatts á aðgangi að baðlónum, aukinni miðstýringu lögregluembætta og hugmyndum um fækkun þingmanna. „Samanlagt auka þessar aðgerðir kostnað, veikja svæðisbundið ákvörðunarvald og þrengja að forsendum búsetu og atvinnustarfsemi á landsbyggðinni.“ 8SSA leggur áherslu á að byggðastefna verður að birtast í raunverulegum ákvörðunum og fjármögnuðum aðgerðum, ekki aðeins í yfirlýsingum um mikilvægi landsbyggðarinnar. Ábyrg byggðastefna verður ekki mótuð án aðkomu þeirra sem búa á landsbyggðinni. Það er ekki ásættanlegt að stjórnvöld taki ákvarðanir sem hafa veruleg áhrif á lífsskilyrði íbúa án þess að hlusta á sjónarmið þeirra og sveitarfélaga þeirra.“
Byggðamál Flug Sveitarstjórnarmál Samgöngumál Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent „Galin vinnubrögð“ Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Innlent Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi Innlent Fleiri fréttir Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Stakk af frá fargjaldi leigubíls Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Sjá meira