Innlent

Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugg­lega dregin yfir ána

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Brúin er svo sannarlega farin að taka á sig mynd
Brúin er svo sannarlega farin að taka á sig mynd Vísir/Anton Brink

Þessa dagana er unnið að einum mikilvægasta áfanganum við gerð nýrrar Ölfusárbrúar: Að draga brúna hægt en örugglega frá eystri bakkanum og yfir á þann vestari. Áætlað er að þetta muni taka átta til tíu daga en brúin er dregin fimmtíu sentímetra í einu yfir ána, 330 metra vegalengd.

Ljósmyndari fréttastofunnar Anton Brink skellti sér á vettvang á þriðjudag þegar verkið við að draga brúna yfir ána hófst formlega. Sjá má á myndefninu að um mikið þolinmæðisverk er að ræða.

Brúin var smíðuð í einingum í Póllandi. Samkvæmt tilkynningu Vegagerðarinnar er þyngd brúarinnar rétt um tvö þúsund tonn. Áætlað er að brúin verði komin í gagnið haustið 2028.

Sjá má brúna skríða yfir ána í myndbandinu hér fyrir neðan.

Yfirlitsmyndefni af brúnni má sjá í myndbandinu hér fyrir neðan.

Vísir/Anton Brink

Vísir/Anton Brink

Vísir/Anton Brink

Vísir/Anton Brink

Vísir/Anton Brink

Vísir/Anton Brink

Vísir/Anton Brink

Vísir/Anton Brink

Vísir/Anton Brink

Vísir/Anton Brink

Vísir/Anton Brink

Vísir/Anton Brink

Vísir/Anton Brink

Vísir/Anton Brink

Vísir/Anton Brink

Vísir/Anton Brink

Vísir/Anton Brink

Vísir/Anton Brink

Vísir/Anton Brink

Vísir/Anton Brink

Vísir/Anton Brink



Fleiri fréttir

Sjá meira


×