Innlent

Til Ilulissat á Airbus með nýjum flug­velli

Kristján Már Unnarsson skrifar
Nýja flugbrautin í Ilulissat, séð úr stjórnklefa Beechcraft King Air-flugmælingavélar Avians.
Nýja flugbrautin í Ilulissat, séð úr stjórnklefa Beechcraft King Air-flugmælingavélar Avians. Avians

Nýr alþjóðaflugvöllur verður opnaður við Ilulissat, þriðja stærsta bæ Grænlands, í dag. Bæði Icelandair og Air Greenland hyggjast fljúga þangað á Airbus-þotum en hann er með 2.200 metra langri flugbraut, sem leysir af völl við hliðina með aðeins 845 metra langri braut.

Breytingin þýðir að Icelandair getur í stað hinna 37-sæta Dash 8 Q200 nýtt mun stærri og hraðfleygari farþegaþotur í áætlunarflugi sínu til Ilulissat.

„Já, við gerum ráð fyrir að fljúga þangað á Airbus næsta sumar,“ segir Guðni Sigurðsson, upplýsingafulltrúi Icelandair.

Nýja flugstöðin og flughlaðið.Greenland Airports

Guðni segir félagið í ár hafa flogið til Ilulissat yfir sumartímann frá júníbyrjun til loka september með tíðni frá sjö til níu sinnum í viku.

„Næsta sumar munum við fljúga frá 3. júní til 16. október á Airbus A320, sem hefur 154 sæti, en tíðnin fer niður í þrjár ferðir í viku.

Þótt tíðnin sé að fara niður eru sætin að aukast um þrjátíu prósent milli ára,“ segir Guðni.

Gamla 845 metra langa flugbrautin til hægri. Nýja 2.200 metra flugbrautin fjær.Avians

Flug Icelandair milli Íslands og Ilulissat hefur til þessa verið eina millilandaflugið til höfuðstaðar Diskóflóans. Í dag bætist við beint flug Air Greenland milli Kaupmannahafnar og Ilulissat sem verður vígsluferð nýja flugvallarins.

Airbus A330-breiðþota Air Greenland fór í loftið frá Kaupmannahöfn laust eftir klukkan níu í morgun að íslenskum tíma að lokinni borðaklippingu og ræðuhöldum á Kastrup-flugvelli. Lending í Ilulissat er áætluð um hálftvöleytið að íslenskum tíma. Opnunarhátíð verður á flugvellinum og hefur íbúum þessa fimmþúsund manna bæjar í framhaldinu verið boðið til kaffisamsætis í félagsmiðstöð bæjarins.

Airbus A330-breiðþota Air Greenland er væntanleg til Ilulissat klukkan hálftvö. Hún verður fyrsta flugvél til að lenda á nýja flugvellinum.Egill Aðalsteinsson

Íslenskir flugprófanamenn Avians, sem áður hét Isavia ANS, hafa undanfarnar vikur og mánuði farið nokkrar ferðir til Ilulissat til að taka út flugleiðsögutæki vallarins og aðflugsbúnað. Með flugmælingavélinni TF-FMS hafa þeir mælt aðflugsferla, flugradíótæki, stefnuvita, aðflugshallartæki og lendingarljós svo allt verði klárt fyrir fyrstu lendingu í dag. Hér má sjá myndskeið frá flugmælingunum:

Þetta er þriðji nýi alþjóðaflugvöllurinn sem Grænlendingar taka í notkun á tveimur árum, á eftir völlunum í Nuuk og Qaqortoq. Þetta er mesta innviðauppbygging í sögu Grænlands, en flugvellir gegna þýðingarmiklu hlutverki í samgöngum landsins, sem er án vegtenginga á milli byggða.

Ilulissat er höfuðstaður Diskóflóans og einn vinsælasti ferðamannastaður Grænlands. Það er einkum vegna Ísfjarðarins, sem er á heimsminjaskrá Sameinuðu þjóðanna. Skriðjökullinn í botni fjarðarins skilar af sér þvílíku magni ísjaka á haf út að til verður sannkölluð ævintýraveröld, eins og kynnast má í þætti Íslands í dag frá árinu 2012. Þar má sjá krefjandi lendingu Q200-vélar Flugfélags Íslands á gamla vellinum:


Tengdar fréttir

Aldrei neinn afsláttur gefinn í flugprófunum

Prófanir á flugleiðsögutækjum annarra þjóða eru ein sérhæfðasta útrás íslenska fluggeirans. Þannig er flugvél Isavia nýtt í mælingum fyrir Grænlendinga, Færeyinga og Norðmenn og íslenskir flugprófanamenn gegna um þessar mundir lykilhlutverki í úttekt á nýjum flugvöllum Grænlands.

Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll

Grænlendingar fagna á morgun opnun nýs flugvallar við bæinn Qaqortoq, stærsta bæ Suður-Grænlands. Samtímis verður flugvellinum í Narsarsuaq lokað en hann hefur í gegnum áratugina komið mikið við sögu íslenskra flugmála.

Flugið er líflína milli byggða Grænlands

Grænlendingar búa við eitt flóknasta og dýrasta samgöngukerfi allra þjóða. Þeir treysta mest á flugsamgöngur til að komast á milli byggða þar sem landið er án vegakerfis.

Þotur notaðar í flugi Icelandair til Nuuk

Icelandair hefur ákveðið að nota Boeing 737 Max-þotur í áætlunarflugi sínu milli Keflavíkur og Nuuk. Þetta er í fyrsta sinn sem farþegaþotur eru notaðar í flugi milli Íslands og höfuðstaðar Grænlands.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×