Fótbolti

Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins

Andri Broddason skrifar
Real Betis átti að spila í kvöld gegn Navalcarnero í spænsku bikarkeppninni í kvöld.
Real Betis átti að spila í kvöld gegn Navalcarnero í spænsku bikarkeppninni í kvöld. Octavio Passos/Getty Images

24 leikjum í Copa del Rey-bikarkeppninni á Spáni í fótbolta hefur verið aflýst vegna lestarslyss sem varð á Spáni í dag.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá spænska knattspyrnusambandinu og er ástæða frestunarinnar til að sýna virðingu fyrir þeim látnu. Ekki er búið að ákveða hvenær leikirnir sem áttu að fara fram í kvöld eiga að vera spilaðir.

Að auki leikjanna í dag eiga 14 leikir að fara fram á morgun en þeir halda plani að svo stöddu.

FreLestarslysið varð rétt fyrir utan Madrid, höfuðborg Spánar, en lestarnar voru á leið til Sevilla. Að minnsta kosti 64 eru sagðir hafa látist en búist er við að sú tala muni hækka.

Valencia, Real Betis og Levante eru nokkur af þeim liðum í spænsku úrvalsdeildinni sem áttu að spila í kvöld. Stórliðin Barcelona og Real Madrid koma ekki í keppnina fyrr en í næstu umferð og því hefur frestunin lítil áhrif á þau.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×