Innlent

Tveir hand­teknir með vopn í unglingapartíi

Freyja Þórisdóttir skrifar
Það er ekkert óalgengt að lögreglan sé kölluð til vegna partístands en í nótt voru útköllin fleiri en gengur og gerist að sögn aðstoðaryfirlögregluþjóns.
Það er ekkert óalgengt að lögreglan sé kölluð til vegna partístands en í nótt voru útköllin fleiri en gengur og gerist að sögn aðstoðaryfirlögregluþjóns. Vísir

Mikill erill var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt en fangageymslur fylltust og útköll voru mörg. Meðal mála sem voru skráð í dagbók lögreglunnar var útkall vegna unglingapartís sem fór úr böndunum en tveir voru handteknir í öðru samkvæmi fyrir vopnalagabrot. 

Þar voru tveir kærðir fyrir að fara ekki eftir fyrirmælum lögreglu og einnig fyrir að bera vopn og brjóta þannig vopnalög. 

Lögreglan var kölluð til vegna fleiri veisluhalda en tilkynnt var um hávaða vegna unglingapartís í Seljahverfi í Reykjavík, þetta staðfestir Hjördís Sigurbjartsdóttir aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við fréttastofu.

Sjá einnig: Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum

Þá var víða sem veisluhöld stóðu yfir fram á nótt og í öðru útkalli voru tveir handteknir vegna sömu brota og í fyrrnefndu máli, vopnalagabrots og að hlýða ekki fyrirmælum lögreglu. Ekki liggur fyrir hvar það partí var haldið. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×