Erlent

Kælar mat­vöru­verslana hakkaðir á ný

Smári Jökull Jónsson skrifar
Ica-verslunarkeðjan er ein stærsta keðja matvöruverslana í Svíþjóð.
Ica-verslunarkeðjan er ein stærsta keðja matvöruverslana í Svíþjóð. Vísir/Getty

Tölvuþrjótar réðust gegn matvöruverslunum í Svíþjóð í morgun með þeim afleiðingum að hitastig í kælum og frystiskápum rauk upp úr öllu valdi. Árás af svipuðum toga var gerð í Frakklandi á dögunum og brugðust íslensk fyrirtæki við í kjölfarið.

Greint er frá tölvuárásunum á vef SVT en þar segir að árásin hafi haft áhrif á fjölmargar verslanir Ica víðsvegar um landið, meðal annars í Stokkhólmi, Sjöbo og Tomelilla.

Í færslu á Facebook segir að hitastig kælanna hafi farið upp í fimmtíu gráður og þurfti að loka verslunum í kjölfarið. Verslunarstjóri segir að unnið sé að því að tæma kælana og að öll matvara sem þar var geymd sé ónýt.

Þá staðfestir fjölmiðlafulltrúi verslana Coop að ráðist hafi verið á sex verslanir fyrirtækisins á svipaðan hátt. Árásirnar koma aðeins nokkrum vikum eftir að tölvuþrjótar nýttu sér veikleika í stýrikerfum kæla og áttu við stillingar þeirra í hundruðum matvöruverslana í Frakklandi. Þar hljóp tjónið á tugum milljarða evra.

Í kjölfarið brugðust íslensk fyrirtæki við með því að taka kæla af netinu en forstöðumaður netöryggissveitarinnar CERT-IS sagði þá að engar tilkynningar hefðu borist um árásir gegn íslenskum verslunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×