Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar 3. nóvember 2026 15:33 Nú fyrir helgi skrifaði ég og fékk birtar í héraðsmiðlum hugleiðingar nýliða í bæjarmálum, þar sem ég játaði skilningsleysi mitt á hversu hátt hlutfall framkvæmdaáætlunar kjörtímabilsins væri eyrnamerkt tveimur íþróttafélögum hér í bæ. Fljótlega hefst margra milljarða uppbygging á Þórssvæðinu, á meðan enn á eftir að klára gríðarlega uppbyggingu á KA-svæðinu. Í greininni lýsti ég undrun minni á að ekki sé hægt að samnýta mannvirki sveitarfélagsins betur en nú er gert, ekki síst þegar kemur að þeim innviðum sem helst nýtast kappleikjum fullorðins fólks og tók þar dæmi af Milan-liðunum tveimur. Þessi grein hefur vakið talsvert meiri athygli en ég bjóst við. Það hefur verið gaman að fá símtöl og skilaboð, gjarnan frá fólki sem hefur mikinn áhuga á og ástríðu fyrir íþróttum en deilir áhyggjum mínum af því að of mikið sé gert, of hratt, og að ekki sé nægilega litið til samnýtingar þegar verkefni eru keyrð af stað. Algengasta hrósið snýr að því að ég sé hugrökk að þora yfir höfuð að ræða þessi mál. Það þykir mér umhugsunarvert. Nú hefur reynslumeiri maður en ég, forseti bæjarstjórnar, tekið að sér að svara vangaveltum nýliðans í föðurlegum tón. Í grein sinni undirstrikar hann að gott sé að ræða forgangsröðun fjármuna, en minnir jafnframt á að umræðan þurfi að byggja á heildarmynd og réttum forsendum. Um það getum við verið sammála. Réttar forsendur Mér er því bæði ljúft og skylt að leiðrétta þær röngu forsendur sem ég notaði í fyrri grein minni. Mér láðist nefnilega að taka í myndina það fjármagn sem ætlað er í nýtt gervigras í Boganum á Þórssvæðinu, en áætlað er að það kosti bæinn 250 milljónir. Ef við bætum þeirri framkvæmd við það sem áður var talið saman, er upphæðin sem ætluð er félögunum tveimur í heildina 4,1 milljarður en ekki 3,8 milljarðar. Rétt skal vera rétt. Höldum áfram að rýna í tölur og skoða söguna. Í þeim samningsdrögum við Þór sem bæjarráð samþykkti í byrjun árs (fulltrúi Samfylkingar þar með talinn) var gert ráð fyrir 1,59 milljarða fjárveitingu úr bæjarsjóði til verkefnisins á árunum 2026-2029. Í framkvæmdaáætlun meirihlutans sem nú er til umræðu eru milljarðarnir hinsvegar orðnir 2,9 talsins. Framlagið hefur þar með hækkað um 82% frá því að farið var af stað, ekki ár liðið frá undirskrift og blekið varla þornað. Ég hef hvorki orðið vör við umræðu né heyrt skýringu á þessari skyndihækkun, og sit þó í því ráði sem fer með málaflokkinn. Hvað breyttist? Skoðum samninginn áfram. Íþróttahúsið sem þar er lýst verður feykistórt, eða um 5.000 fermetrar, og verður áhugavert að sjá hvernig það mun rúmast innan svæðis. Aðstaða skal verða hin glæsilegasta. Framtíðarmyndin hljóðar m.a. upp á nokkra fullbúna keppnisvelli fyrir boltaíþróttir, aðstöðu fyrir bardagaíþróttir og píludeild, blaðamannaaðstöðu, stærðarinnar tvískipta félagsaðstöðu með eldhúsi og skrifstofurými fyrir starfsfólk og íþróttadeildir. Ekki má þá gleyma heitum og köldum pottum fyrir meistaraflokk, í göngufjarlægð frá nýuppgerðu pottasvæði Glerárlaugar. (Í samningnum stendur einungis MFL fyrir meistaraflokk, og ég veit því ekki hvort gert er ráð fyrir að meistaraflokkar karla og kvenna munu báðir geta nýtt sér pottaaðstöðuna. Svar óskast). Menning eða íþróttir, barnastarf eða atvinnumennska? Ég tek ekki undir þá skoðun forseta bæjarstjórnar að ég hafi með vangaveltum mínum stillt menningu upp gegn íþróttum, þó ég taki dæmi af því hversu lág upphæð er ætluð menningarmálum á kjörtímabilinu. Ég tók raunar annað dæmi í greininni, af sannarlega lögbundnu hlutverki sveitarfélaga; bruna- og almannavörnum sem fá úthlutað einu prósenti af því sem íþróttafélögunum tveimur er ætlað. Allar framkvæmdir sem falla undir fræðslusvið bæjarins eru um 16%, sem er minna en helmingur þess sem íþróttafélögin fá. Punkturinn minn er einfaldlega sá að hlutverk sveitarfélaga eru fjölmörg og mikilvæg, og það er kjörinna fulltrúa að sýna ábyrgð og taka erfiðar ákvarðanir – líka, og jafnvel sérstaklega, þegar þrýstihópar eru háværir og hafa mikið vægi í umræðunni. Meirihlutanum ber að sýna bæjarbúum fram á að forgangsröðun fjármuna sé skynsamleg og í þágu samfélagins alls. Það er raunar ekki svo langt síðan að forseti bæjarstjórnar og oddviti Framsóknarflokksins á Akureyri, þá í minnihluta, lýstu yfir áhyggjum af því að of mikið væri að gert í fjárfestingum bæjarins og of hratt. Nú kveður við annan tón þar sem forseti segir það bókstaflega skyldu sveitarfélaga að framkvæma þegar þau hafa svigrúm fyrir. Skjótt skipast veður eftir að þú ert kosinn í liðið með boltakrökkunum, býst ég við. Í framtíðinni væri svo gagnlegt ef hægt væri að aðgreina að einhverju leyti þann stuðning sveitarfélaga við íþróttafélög sem snýr að sérstaklega að barnastarfi og þess sem hefur minna með það að gera. Það var hjartnæmt að heyra lýsingar handboltaþjálfarans og formanns Umhverfis- og mannvirkjaráðs í morgunútvarpi Rásar 2 í morgun, þar sem hann talaði um mikilvægi barnastarfs í íþróttum. Þar erum við sammála, og mikilvægt að tryggja öllum börnum aðgengi að þeirri reynslu. Í viðtalinu fullyrti hann að allt sem gert er fyrir íþróttalífið á Akureyri væri með félagsanda barnanna að leiðarljósi. Ég held áfram að afhjúpa skilningsleysi mitt og biðst forláts ef þolinmæði meirihlutans fer þverrandi gagnvart spurningum nýliðans. Telja forseti bæjarstjórnar og formaður Umhverfis- og mannvirkjaráðs að íþróttastarfi akureyskra barna yrði á einhvern hátt ógnað ef meistaraflokkslið í fótbolta þyrfti að ganga nokkra metra til að njóta heitra og kalda baða í boði sveitarfélagins? Höfundur er fulltrúi Samfylkingar í umhverfis- og mannvirkjaráði Akureyrar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Akureyri Mest lesið Eineltið byrjar kannski við eldhúsborðið! Birta Róbertsdóttir Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson Skoðun Þegar veikindaleyfi verður að fríi Gunnar Ármannsson Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson Skoðun Hvaða skilaboð erum við að senda framtíðarkennurum? Eyrún Ósk Hjartardóttir Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Draumsýn menntamála Álfhildur Leifsdóttir ,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Íslenska Z-kynslóðin hefur hægt um sig Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin kjósa – en hver hefur eftirlit með forsetanum? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason skrifar Sjá meira
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar