Alþingi

Alþingi

Fréttir af löggjafarþingi Íslendinga, þingmönnum og fleiri tengdum málum.

Fréttamynd

Frekari ESB-umræður í þinginu

Fyrsta umræða um þingsályktunartillögu utanríkisráðherra um þjóðaratkvæðagreiðslu heldur áfram á Alþingi á þingfundi dagsins. Málið var rætt langt fram á kvöld í gærkvöldi.

Innlent
Fréttamynd

ESB-umræðan leysir ekki efna­hags­vandann

Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur hefur sett aðildarviðræður við Evrópusambandið á dagskrá, þvert á það sem hún lofaði fyrir síðustu kosningar. Nú hertekur sú umræða allt, en mjög heppilega fyrir ríkisstjórnina á sama tíma og staða efnahagsmála hér á landi er erfið. Ríkisstjórninni gengur ekkert í baráttunni við vexti og verðbólgu út af eigin ákvörðunum og atvinnuleysi þýtur upp.

Skoðun
Fréttamynd

Ræddu þjóðar­at­kvæði fram á kvöld og halda á­fram í dag

Þingfundi á Alþingi lauk ekki fyrr en vel var gengið á ellefta tímann í gærkvöldi þar sem tekist var á um þingsályktunartillögu um hvort halda skuli þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhald aildarviðræðna við ESB. Hart var tekist á í þingsalnum og þingmenn stjórnarandstöðunnar voru ívið fjölmennari í þingsalnum.

Innlent
Fréttamynd

Að kljúfa þjóðina með til­finningaþrunginni spurningu

Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, opnaði umræðu um aðildarviðræður við Evrópusambandið með fyrirspurn til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra í óundirbúnum fyrirspurnum á þingi nú fyrr í dag. Víst er að stjórnarandstaðan er að búa sig í skotgrafirnar.

Innlent
Fréttamynd

Saka Þor­gerði um brot á þing­sköpum

Þingmenn stjórnarandstöðunnar fara hörðum orðum um Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra vegna ákvörðunar hennar um að bera þingsályktunartillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við ESB ekki undir utanríkismálanefnd. Þeir segja það brot á þingsköpum en stjórnarliðar vísa því alfarið á bug. Hún biður stjórnandstöðuna um að treysta þjóðinni „í guðanna bænum.“

Innlent
Fréttamynd

Bein út­sending: ESB-ballið byrjar á Al­þingi

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra mælir fyrir þingsályktunartillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópu­sambandinu á þingfundi dagsins, sem hefst klukkan 15. Ætla má að hart verið tekist á um málið og fylgjast má með fundinum í beinni á Vísi.

Innlent
Fréttamynd

Land­búnaðar­stefna ESB henti ís­lenskum land­búnaði illa

Búast má við hörðum umræðum á Alþingi í dag um þingsályktunartillögu utanríkisráðherra um þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort haldið skuli áfram með aðildarviðræður Íslands að Evrópusambandinu. Bændasamtökin hafa ekkert á móti því að kanna hug þjóðarinnar til málsins. Landbúnaðarstefna sambandsins henti hins vegar afar illa hér á landi.

Innlent
Fréttamynd

Rósa Björk nýr for­maður VG

Rósa Björk Brynjólfsdóttir er nýr formaður Vinstri grænna. Rósa Björk var kjörin með 95 prósent atkvæða samkvæmt tilkynningu. Bjarki Hjörleifsson var kjörinn varaformaður VG með 99 prósent atkvæða

Innlent
Fréttamynd

Úti­loka að þjóðar­at­kvæða­greiðslan fái hraða af­greiðslu

Formaður Miðflokksins útilokar að þjóðaratkvæðagreiðsla um áframhaldandi viðræður við ESB muni hljóta skjóta afgreiðslu á þingi. Formaður Sjálfstæðisflokksins segir dagsetninguna henta frasakenndri stefnu ríkisstjórnarinnar en ekki þjóðinni. Þeir segja utanríkismálanefnd hafa verið hundsaða með öllu og segja ekkert að marka fyrri orð forsætisráðherra.

Innlent
Fréttamynd

Ís­land sé í sterkari stöðu en áður fyrir aðildar­við­ræður

Þjóðaratkvæðagreiðsla um áframhaldandi viðræður við Evrópusambandið um inngöngu Íslands fer fram 29. ágúst. Það tilkynnti ríkisstjórnin á blaðamannafundi fyrr í dag. Forsætisráðherra sagði tilefni til viðræðna núna. Samningsstaða Íslendinga væri góð, betri en áður, auk þess sem mikið rót væri í alþjóðamálum.

Innlent
Fréttamynd

Þjóðar­at­kvæða­greiðslan fer fram 29. ágúst

Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið fer fram þann 29.ágúst, að því gefnu að þingsályktunartillaga þess efnis verði samþykkt. Mælt verður fyrir þingsályktunartillögunni í upphafi næstu viku.

Innlent
Fréttamynd

Breytingin auki hvorki traust né öryggi á leigubílamarkaði

Kristín Hrefna Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri Hopp Reykjavíkur, á ekki von á því að breyting innviðaráðherra á stöðvarskyldu leigubílstjóra verði til þess að bílstjórar og farþegar upplifi meira öryggi. Akstur með mæli skapi mikið óöryggi meðal beggja og lagabreyting um stöðvarskyldu breyti því ekki.

Neytendur
Fréttamynd

Eyjólfur færir klukkuna aftur

Stöðvarskylda leigubílstjóra var endurvakin með lagabreytingu sem samþykkt var á Alþingi í dag. Þurfa bílstjórar að vera skráðir hjá leigubifreiðastöð með gilt starfsleyfi og verður stöðvunum skylt að skrá allar ferðir, þar á meðal upphafs- og endastöð, staðsetningu bifreiðar, akstursleið og greiðslur farþega.

Innlent
Fréttamynd

„Þessi um­ræða er rosa­lega niður­lægjandi“

Formaður Öryrkjabandalags Íslands segir umræðu varðandi frumvarp um að tengja bætur við vísitölu vera niðurlægjandi. Hún kveðst langþreytt á gagnrýni sem hefur komið úr ýmsum áttum og segir af og frá að fyrirhugaðar breytingar dragi úr hvata öryrkja til að leita á vinnumarkað. 

Innlent
Fréttamynd

Er Jón Gnarr búinn að horfa að­eins of oft á Pretty Woman?

Árið 2002 heyrði Andrew Norfolk, blaðamaður málefna Norður-Englands hjá The Times, orðróm um skipulagða misnotkun á ungum hvítum stúlkum af hálfu karlmanna af pakistönskum uppruna. Kvað þingkona í Yorkshire sjö mæður af svæðinu hafa sagt menn sitja um dætur þeirra, misnota þær kynferðislega og láta þær ganga á milli manna sem þeim var sagt að sofa hjá.

Lífið
Fréttamynd

Grásleppufrumvarpið sam­þykkt

Grásleppufrumvarp meiri hluta atvinnuveganefndar hefur verið samþykkt. Með því er kvótakerfi sem komið var á 2024 með grásleppu lagt af og hið gamla dagakerfi tekið upp að nýju. 

Innlent
Fréttamynd

Baðst af­sökunar í þinginu: „Þeir eru að verja ríka fólkið, kvótakóngana, sægreifana“

Grétar Mar Jónsson, varaþingmaður Flokks fólksins, fékk orðið við upphaf þingfundar dagsins áður en gengið var til dagskrár. Það nýtti hann til að biðjast afsökunar á orðum sem hann lét falla í þinginu í gær. „Ég vil minna á að þetta eru sérhagsmunaöfl sem stjórnarandstaðan er að verja. Þeir eru að verja ríka fólkið, kvótakóngana, sægreifana og fórna sér fyrir þá,“ sagði hann meðal annnars.

Innlent
Fréttamynd

Brynjar ráðinn korter í kosningar

Brynjar Níelsson, sem skipar þriðja sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík í komandi borgarstjórnarkosningum hefur óvænt verið ráðinn starfsmaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins. Ráðningin er gerð tíu vikum fyrir kosningar í borginni þar sem telja má fullvíst að Brynjar nái kjöri sem borgarfulltrúi.

Innlent
Fréttamynd

Þegar nóg er aldrei nóg

Í umræðum á Alþingi sl. mánudag vísaði forsætisráðherra til svokallaðs vanfjármögnunargats ríkisins og tengdi það m.a. við að gjaldskrár ríkisins haldi ekki í við kostnað og þjónustuþróun.

Skoðun
Fréttamynd

„Ekki Al­þingi sem skipar mér hvað ég á að segja“

Kanslari kaþólsku kirkjunnar segir að lög guðs gildi þegar þau stangist á við landslög og að engar skipulagðar bælingarmeðferðir fyrir samkynhneigða séu stundaðar innan kaþólsku kirkjunnar hér á landi. Hann segir lög sem banna fólki að breyta um líferni ekki forsvaranleg.

Innlent
Fréttamynd

Rósa vill leggja fjölmiðla­nefnd niður

Rósa Guðbjartsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins lagði það til í ræðu á þingi fyrr í dag að fjölmiðlanefnd verði lögð niður. Hún sagði löngu tímabært að Logi Einarsson nýsköpunar- og háskólaráðherra svari því hvers vegna brýnt þyki að ríkið haldi nefndinni úti.

Innlent
Fréttamynd

Davíðs minnst á Al­þingi

Alþingismenn minntust Davíðs Oddsonar við upphaf þingfundar dagsins, með því að rísa úr sætum að loknum minningarorðum Þórunnar Sveinbjarnardóttur, forseta Alþingis.

Innlent
Fréttamynd

Minnis­stæð heim­sókn til Davíðs fyrir jól

Formaður Sjálfstæðisflokksins segir að með fráfalli Davíðs Oddssonar fyrrverandi formanns flokksins, borgarstjóra og forsætisráðherra sé fallinn frá einn áhrifamesti stjórnmálamaður í sögu íslenska lýðveldisins. Hún segir boð á heimili Davíðs fyrir jól eina af þeim minningum sem sitji eftir.

Innlent