Evrópu­sam­bandið

Evrópu­sam­bandið

Fréttamynd

ESB boðar aldurstakmörk á samfélagsmiðlum

Forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins segir sambandið þurfa að setja aldursmörk á aðgang að samfélagsmiðlum. Nefnd á vegum framkvæmdastjórnarinnar kynnti í dag skýrslu um fylgni notkunar ungmenna á samfélagsmiðlum og vanlíðanar.

Erlent
Fréttamynd

Sænskur Evrópuþingmaður kærir danskan kollega til lög­reglu

Sænskur þingmaður Evrópusambandsins hefur lagt fram kæru til lögreglu þar sem hún sakar danskan kollega sinn um hatursorðræður byggðar á kynþáttafordómum. Þingmaðurinn varð fyrir áreiti á samfélagsmiðlum fyrir að fordæma fagnaðarlæti á Evrópuþinginu.

Erlent
Fréttamynd

„Af og frá“ að Ís­land fram­selji lög­gjafar­valdið með inn­göngu

Prófessor við lagadeild Háskólans á Akureyri telur að ef verði af inngöngu Íslands í Evrópusambandið sé þjóðin ekki sömuleiðis að framselja löggjafarvaldið. Hins vegar felist í því að framselja dómsvaldið að hluta. Lagalega séð séu undanþágur frá samningnum mögulegar en á sama tíma séu þær háðar pólitískum vilja.

Innlent
Fréttamynd

Upp­taka evru myndi ekki einungis hafa á­hrif á vexti

Prófessor í hagfræði og fyrrverandi viðskiptaráðherra segir kostnaðinn við kortanotkun og aðra greiðslumiðlun vera háan á Íslandi og talsvert hærri en í nágrannalöndum. Telur hann að þessi kostnaður myndi lækka við upptöku evru þar sem Íslendingar myndu njóta hagkvæmni stórrekstrar í ríkari mæli.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

„Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlut­laus“

Nýr vefur sem á að auðvelda kjósendum lífið í aðdraganda kosninga um aðildarviðræður við Evrópusambandið hefur litið dagsins ljós. Formaður landskjörstjórnar segir hlutlausar upplýsingar mikilvægar þegar um jafn mikið hitamál sé að ræða. 

Innlent
Fréttamynd

ESB-deilan harðnar eftir um­mæli er­lendra ráða­manna

Hart var tekist á um Evrópusambandið, sjávarútveg og mögulegar sérlausnir Íslands í aðildarviðræðum þegar Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi utanríkisráðherra, og Dagbjört Hákonardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar sem á sæti í utanríkismálanefnd, ræddu málið í Reykjavík síðdegis í dag.

Innlent
Fréttamynd

„Þá sé þetta sem næst úti­lokað“

Innganga Íslands í Evrópusambandið er svo gott sem úr myndinni áður en gengið er til hugsanlegra aðildarviðræðna. Þetta segir framkvæmdastjóri SFS í ljósi þess að forsætisráðherra Hollands tjáði sig um kröfu Íslands um undanþágu frá sjávarútvegsstefnu sambandsins. 

Innlent
Fréttamynd

Evrópu­þing­menn kalla eftir rann­sókn á Infantino

Tugir þingmanna á Evrópuþinginu kalla eftir rannsókn á Gianni Infantino, forseta FIFA, og tengslum hans við Donald Trump Bandaríkjaforseta. Til skoðunar er hvort Infantino hafi haft áhrif á þá fordæmalausu ákvörðun FIFA að aflétta leikbanni Folarin Balogun á miðju heimsmeistaramóti.

Fótbolti
Fréttamynd

Le Pen stað­festir forsetaframboð

Marine Le Pen hyggst bjóða sig fram til forseta Frakklands á næsta ári. Franskur áfrýjunardómstóll staðfesti sakfellingu Le Pen í fjárdráttarmáli hennar í dag en hún ætli að áfrýja til hæstaréttar Frakklands.

Erlent
Fréttamynd

Ó­víst með fram­boð Le Pen eftir tví­ræðan dóm

Franskur áfrýjunardómstóll staðfesti sakfellingu Marine Le Pen í fjárdráttarmáli hennar í dag en mildaði verulega bann sem hún hlaut við því að bjóða sig fram. Hún getur tæknilega boðið sig fram til forseta á næsta ári en óljóst er hvort hún geri það eftir niðurstöðuna.

Erlent
Fréttamynd

„Enginn búið til fleiri þjóðar­at­kvæða­greiðslur en ég“

Fjölsóttur stofnfundur samtakanna Áfram Ísland fór fram síðdegis. Um átta hundruð manns sóttu fundinn og var húsfyllir var í Sjálfstæðissalnum við Austurvöll. Samkvæmt fyrsta ræðumanni og fundarstjóra, Halldóri Benjamín Þorbergssyni, hafa á þriðja þúsund skráð sig í samtökin.

Innlent
Fréttamynd

„Skráningum rignir inn“

Áfram Ísland er ný hreyfing sem vill berjast gegn fullri aðild að Evrópusambandinu. Stofnfundur fer fram á mánudag. Halldór Benjamín Þorbergsson, einn stofnfélaga, segir að þó svo að baráttan fari fram um hásumar skynji hann mikinn áhuga. Skráningum rigni inn. Það sé ábyrgð þjóðar að kynna sér málið fyrir kosningar í ágúst.

Innlent
Fréttamynd

Þýska lands­liðið spegli land stöðnunar

Þýskaland er úr leik á HM eftir tap gegn Paragvæ í vítaspyrnukeppni. Fallið er stórt áfall fyrir fjórfalda heimsmeistara en í Þýskalandi hefur umræðan ekki aðeins snúist um vítaspyrnur, leikskipulag eða framtíð Julian Nagelsmann. Sumir þýskir miðlar hafa gert ósigurinn að stærri spurningu: hvort landsliðið endurspegli ástand lands sem glímir við stöðnun, slitna innviði og þrýsting á gamla efnahagsmódelið.

Erlent
Fréttamynd

Segjum NEI fyrir kyn­slóðir fram­tíðarinnar

Þó svo að skilmálarnir kveði á um að það eigi að vera hægt að ganga úr ESB þá sýnir reynsla Bretlands að það er næstum því ómögulegt að gera slíkt og ESB mun gera allt til þess að hegna þeim sem vilja út.

Umræðan
Fréttamynd

Rétt rúmur helmingur myndi segja já í ágúst

Rétt rúmlega helmingur landsmanna, 52 prósent, telur líklegast að ef atkvæðagreiðslan færi fram núna myndi hann greiða atkvæði með því að Ísland hefji aðildarviðræður við Evrópusambandið á ný en rétt tæplega helmingur, 48 prósent, telur líklegast að hann greiddi atkvæði gegn því.

Innlent
Fréttamynd

Ó­vissa út við sjón­deildar­hring

Stöðugt, fyrirsjáanlegt og einfalt efnahags- og rekstrar umhverfi er ein mikilvægasta forsenda þess að lítil og meðalstór fyrirtæki geti fjárfest, ráðið fólk og vaxið. Það ætti að ríma vel við nýsamþykkta atvinnustefnu stjórnvalda sem leggur sérstaka áherslu á aukna framleiðni, samkeppnishæfni og nýsköpun.

Umræðan
Fréttamynd

Vilja að konur upp­fylli sinn æðsta til­gang: að verða mæður

Miðflokkurinn er orðinn fullgildur meðlimur Samtaka evrópskra íhaldsmanna og umbótasinna (European Conservatives and Reformists Group, eða ECR). Á síðu ECR er fullyrt að kristnir sæti mestum ofsóknum allra trúarhópa og að vegna lækkandi fæðingartíðni fái konur ekki að uppfylla sinn æðsta tilgang: að verða móðir. 

Innlent
Fréttamynd

„Við erum eitt þeirra landa sem skilja fisk­veiðarnar einna best“

Utanríkisráðherra Spánar segir Spánverja eiga Evrópusambandinu mikið að þakka og að uppbygging landsins frá því að það gekk í sambandið fyrir fjörtíu árum hafi að miklu leyti verið fjármögnuð með sjóðum ESB. Hann ræddi við Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur á opnum fundi í Norræna húsinu í dag.

Innlent