Hálft prósent færeysku þjóðarinnar strandaglópar á Seyðisfirði Um það bil þrjú hundruð Færeyingar ásamt fleiri farþegum ferjunnar Norrænu eru nú strandaglópar á Seyðisfirði vegna óveðurs á Fjarðarheiði. Ferjan siglir aftur úr höfn annað kvöld. Innlent 21. mars 2023 14:45
Vælkomin til framtíðina! Gleðilega hátíð kæru landsmenn og „Vælkomin til framtíðina!“ hljómar nú í eyrum frænda okkar Færeyinga. Tilefnið er gleðilegt, tekin hefur verið fyrsta skóflustungan að nýrri Tjóðarhøll Føroya, Føroya Arena. Á meðan framkvæmdir við glæsilega framtíðar Þjóðarhöll Færeyinga eru hafnar að þá erum við Íslendingar pikkfastir í fortíðinni og erum enn að bæta við bindum í áratugalöngu ritröðina "Þjóðarhöll Íslendinga, hvar, hvenær, hvernig og fyrir hvern?". Skoðun 30. desember 2022 07:30
Fyrsta skóflustunga tekin að þjóðarhöll Færeyinga Smíði þjóðarhallar er hafin í Færeyjum og var fyrsta skóflustunga tekin daginn fyrir Þorláksmessu. Henni er ætlað að hýsa landsleiki Færeyinga í innanhússíþróttum en einnig tónleika, sýningar og ráðstefnur. Erlent 28. desember 2022 23:30
Ný landsstjórn hyggst hækka gjöld á sjávarútveg og fiskeldi Ný landsstjórn Færeyja, sem tók við völdum í dag, hyggst styrkja sjálfstæði Færeyinga með því að draga úr þeim fjárhagsstuðningi sem þeir þiggja frá Dönum. Þá verða gjöld á sjávarútveg og fiskeldi hækkuð samhliða því sem sveitarfélög fá stærri hlut af atvinnuvegasköttum. Erlent 22. desember 2022 22:11
Aksel V. Johannesen tekinn við sem lögmaður Færeyja Aksel V. Johannesen, formaður Jafnaðarflokksins, var kjörinn nýr lögmaður Færeyja á fundi Lögþingsins í Þórshöfn, sem hófst klukkan tíu í morgun. Fyrr um morguninn hafði Aksel ásamt formönnum hinna samstarfsflokkanna, þeim Høgna Hoydal frá Þjóðveldi og Ruth Vang frá Framsókn, kynnt samstarfssáttmála á blaðamannafundi. Erlent 22. desember 2022 11:41
Kjósa nýjan lögmann Færeyja í fyrramálið Samkomulag hefur náðst um myndun nýrrar landsstjórnar í Færeyjum undir forystu Aksels V. Johannesen, formanns Jafnaðarflokksins, sem verður á ný lögmaður Færeyja, en því embætti gegndi hann einnig á árunum 2015 til 2019. Erlent 21. desember 2022 22:41
Samkomulag um nýja stjórn í Færeyjum Aksel V. Johannesen, formaður Jafnaðarflokksins í Færeyjum, segir að samkomulag hafi náðst um myndun nýrrar mið- og vinstristjórnar Jafnaðarflokksins, Þjóðveldis og Framsóknar. Erlent 21. desember 2022 09:53
Íbúar Klakksvíkur hvattir til að yfirgefa heimili sín Fjöldi íbúa í Klaksvík í Færeyjum, næststærsta bæ eyjanna þurfti í gær að yfirgefa heimili sín eftir að nokkrar aurskriður féllu í bænum. Erlent 20. desember 2022 08:50
Vindmyllur orðnar helsti raforkugjafi Færeyinga Umskipti hafa orðið í raforkumálum Færeyinga með opnun nýs vindorkuvers í byrjun mánaðarins og fá þeir núna í fyrsta sinn meirihluta raforku sinnar úr sjálfbærum orkulindum. Í fyrra komu yfir sextíu prósent raforkunnar úr dísilrafstöðvum en núna er vindurinn orðinn stærsti orkugjafinn. Viðskipti erlent 18. desember 2022 22:22
Viðræðum slitið um myndun nýrrar stjórnar í Færeyjum Jafnaðarflokkurinn, Sambandsflokkurinn og Framsókn slitu í kvöld viðræðum um myndun nýrrar landsstjórnar í Færeyjum. Ágreiningur um ríkisstuðning frá Danmörku reyndist of stór biti til að kyngja, segir í frétt Kringvarps Færeyja. Erlent 13. desember 2022 21:55
Jafnaðarflokkurinn vann sigur í Færeyjum Jafnaðarflokkur Færeyja er sigurvegari í þingkosningunum sem fram fóru þar í landi í gær. Flokkurinn náði níu þingsætum sem er bæting um tvö frá fyrra þingi og er þar með orðinn stærsti flokkur Færeyja eftir að hafa fengið 26,6 prósent atkvæða. Erlent 9. desember 2022 07:24
Fólk ætti að vera sent til Færeyja í stað heilsuhælis „Þetta er eins og að fara aftur í tímann.“ Svona lýsir Ragnar Axelsson ljósmyndari litlu þorpi í Færeyjum í nýjasta þættinum af RAX Augnablik. Menning 4. desember 2022 07:00
Fiskveiðisamningur Færeyja og Rússlands sagður smekkleysa Evrópusambandið gagnrýnir nýjar fiskveiðisamning Færeyja og Rússlands. Þingmaður Dana á Evrópuþinginu segir samninginn smekklausan. Erlent 3. desember 2022 17:05
Vill bora öll jarðgöng sem þörf er á hérlendis á næstu þrjátíu árum Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra vill að á næstu þrjátíu árum verði reynt að bora öll þau jarðgöng sem þörf er á hérlendis en fjármagna þau í allt að fimmtíu ár eftir það. Innlent 1. desember 2022 22:20
Karlakór Reykjavíkur flytur inn vinakór sinn frá Færeyjum Karlakór Reykjavíkur flytur inn vinakór sinn, Tórshavnar Manskór, frá Færeyjum til þess að taka þátt í hátíðartónleikum. Tónleikarnir fara fram á aðventu í Hallgrímskirkju og hafa verið árleg hefð síðustu þrjátíu árin. Jól 28. nóvember 2022 17:31
Færeyingar endurnýja umdeildan fiskveiðisamning við Rússa Færeyingar hafa endurnýjað umdeildan fiskveiðisamning við Rússland. Almenn pólitísk samstaða er um málið og verður samningurinn endurnýjaður til eins árs. Erlent 23. nóvember 2022 22:08
Annasamt verkefni að flytja jarðgangafréttir í Færeyjum Sá sem skrifar fréttir af gangi jarðgangaverkefna í Færeyjum í vef Landsverks, vegagerðar þeirra Færeyinga, hefur sannarlega frá nógu að segja þessa dagana. Svo mikil er atorkan hjá frændþjóð Íslendinga í að bæta samgöngukerfi sitt með fleiri jarðgöngum. Erlent 19. nóvember 2022 14:20
Færeyingar á sama Svalalausa báti og Íslendingar Það eru ekki bara Íslendingar sem munu ekki geta lengur svalað þorsta sínum með ísköldum Svala. Færeyingar eru í sömu stöðu. Í frétt Dimmalættings um endalok Svalans er drykkurinn kallaður „hinn víðfrægi íslenski svaladrykkur Svali“. Viðskipti innlent 9. nóvember 2022 23:14
Boða til kosninga í Færeyjum eftir útgöngu Miðflokksins Bárður á Steig Nielsen, lögmaður Færeyja, hefur boðað til þingkosninga þann 8. desember næstkomandi. Miðflokkurinn sagði sig úr ríkisstjórnarsamstarfi í gær eftir að Jenis av Rana var vikið úr embætti utanríkis- og menntamálaráðherra. Erlent 9. nóvember 2022 16:08
Kann að enda með að boðað verði til þingkosninga Færeyski Miðflokkurinn hefur sagt skilið við ríkisstjórn landsins eftir að Bárður á Steig Nielsen, lögmaður Færeyja, ákvað að reka formann Miðflokksins, Jenis av Rana, úr embætti utanríkis- og menntamálaráðherra í gær. Miklar líkur eru á að boðað verði til þingkosninga í Færeyjum til að leysa úr þeirri stöðu sem upp er komin í færeyskum stjórnmálum. Erlent 9. nóvember 2022 13:51
Lætur utanríkisráðherrann Jenis av Rana gossa Bárður á Steig Nielsen, lögmaður Færeyja, hefur ákveðið að nýta heimild í lögum til að reka Jenis av Rana úr embætti utanríkis- og menntamálaráðherra. Bárður segir að umburðarlyndi sitt í garð ráðherrans sé á þrotum. Erlent 8. nóvember 2022 11:49
Færeyingar kjósa nýja þingmenn sína á danska þinginu Þingkosningar fara fram í Danmörku á morgun. Færeyingar munu þó kjósa um sína tvo fulltrúa á danska þinginu þegar í dag. Stjórnvöld í Færeyjum óskuðu eftir að kjósa sína fulltrúa á danska þinginu á öðrum degi en 1. nóvember þar sem um sé að ræða dag þar sem Færeyingar minnast látinna sjómanna. Erlent 31. október 2022 08:34
RAX Augnablik: „Táraðist þegar þeir komu syngjandi“ Þegar Björn bóndi, fjölskyldufaðir á eyjunni Koltur, hugðist halda upp á afmælið sitt vissi hann ekki hvort einhver myndu koma því eina leiðin til þess að taka þátt í afmælisveislunni væri að sigla þangað. Menning 30. október 2022 07:01
Selur hlut sinn í Orkufélaginu fyrir tæplega þrjá milljarða SKEL hefur samþykkt kauptilboð frá færeysku félagi í allan 48,3 prósenta hlut íslenska fjárfestingafélagsins í S/P Orkufélaginu fyrir jafnvirði um 2,8 milljarða króna. Orkufélagið er eignarhaldsfélag utan um P/F Magn sem starfar í Færeyjum. Innherji 25. október 2022 16:52
Gunnar um uppganginn Færeyja: „Margir að toppa á sama tíma“ Færeyska landsliðið í fótbolta vann frækinn sigur á Tyrklandi á sunnudag en um er að ræða stærsta sigur liðsins síðan gegn Grikklandi fyrir sjö árum síðan. Gunnar Nielsen, markvörður FH í Bestu deild karla, segir aðstæður gera það að verkum að stærð sigur sunnudagsins virðist ekki eins mikil. Fótbolti 28. september 2022 23:31
Alfreð hefur starfsemi í Færeyjum Íslenska atvinnuleitarappið Alfreð hefur hafið starfsemi í Færeyjum, en þetta er þriðji alþjóðlegi markaðurinn þar sem appið hefur innreið sína. Viðskipti innlent 20. september 2022 13:11
Eimskip fær ekki að áfrýja til Hæstaréttar Hæstiréttur hefur hafnað áfrýjunarbeiðni Eimskipafélags Íslands í CFC-málinu svokallaða. Félagið tilkynnti í gær að málinu væri þar með lokið og að niðurstaðan hefði engin áhrif til gjalda eða greiðslu. Innlent 6. september 2022 07:38
Færeyingar segja nei takk við Herjólfi III Færeyingar hafa stofnað undirskriftarlista þess efnis að fá annað skip en Herjólfur III til þess að sigla milli Þórshafnar og Suðureyjar á meðan ferjan Smyril fer í slipp. Ekki sé nægt pláss í Herjólfi til að hann leysi Smyril af. Erlent 7. ágúst 2022 16:16
Færeyingar setja takmarkanir höfrungadráp Mest má nú veiða fimm hundruð höfrunga yfir árið í Færeyjum. Heimastjórn Færeyja staðfesti lög þess efnis í dag en Færeyingar voru gagnrýndir harðlega í fyrra þegar yfir fjórtán hundruð höfrungar voru drepnir á einum degi. Erlent 10. júlí 2022 20:54
Færeyingar höfðu betur gegn Dönum í fyrsta skipti í sögunni Færeyingar gerðu sér lítið fyrir og unnu sögulegan sigur gegn Dönum er liðin mættust á Evrópumeistaramóti U20 ára landsliða í handbolta í dag. Lokatölur 33-32, en Færeyskt landslið hefur aldrei áður unnið sigur gegn dönsku landsliði í keppnisleik. Handbolti 7. júlí 2022 13:02