Einkunnir Strákanna okkar á móti Króatíu: Enn og aftur erfiður Dagur gegn Króatíu Íslenska karlalandsliðið í handbolta tapaði með minnsta mun fyrir Króatíu, 33-34, í leiknum um bronsið á EM í dag. Íslendingar voru nær allan tímann í eltingarleik en áttu gott áhlaup undir lok leiks sem dugði þó ekki til. Of mörg dauðafæri fóru í súginn og markvarslan var takmörkuð framan af leik. Handbolti 1. febrúar 2026 16:46
„Helvíti dýrt í leik eins og þessum“ „Ég er náttúrulega eðlilega bara súr og svekktur,“ sagði landsliðsþjálfarinn Snorri Steinn Guðjónsson eftir tap íslenska karlalandsliðsins í handbolta gegn Króatíu í bronsleik EM í dag. Handbolti 1. febrúar 2026 16:44
„Finnst við þurfa að bæta okkur alls staðar“ „Við bara gerðum ekki nógu vel,“ sagði Ómar Ingi Magnússon eftir súrt tap Íslands gegn Króatíu í bronsleik EM í handbolta í dag. Handbolti 1. febrúar 2026 16:30
Tölfræðin á móti Króötum: Ómar nýtti öll skotin en aðrir fóru illa með dauðafærin Íslenska karlalandsliðið í handbolta tapaði með einu marki á móti Króatíu í leiknum um bronsverðlaunin á Evrópumótinu í handbolta 2026. Hér má sjá tölfræðina úr leiknum. Handbolti 1. febrúar 2026 16:28
Danmörk vann gullið og Þjóðverjar Alfreðs fá silfur Danmörk er Evrópumeistari í handbolta eftir verðskuldaðan sjö marka, 34-27, sigur gegn Þýskalandi í úrslitaleiknum. Danir skráðu sig þar með á spjöld sögunnar sem aðeins annað liðið á eftir Frakklandi til ríkja sem heims-, Ólympíu- og Evrópumeistari. Handbolti 1. febrúar 2026 16:15
Ísland - Króatía 33-34 | Of seint áhlaup og bronsið fer til Króatíu Íslenska karlalandsliðið í handbolta þarf að sætta sig við 4. sæti Evrópumótsins í handbolta eftir súrt eins marks tap gegn Króötum í bronsleiknum í dag, 34-33. Handbolti 1. febrúar 2026 16:00
Sigvaldi kemur inn fyrir Teit Snorri Steinn Guðjónsson gerir eina breytingu á íslenska landsliðshópnum fyrir leikinn gegn Króatíu um bronsið á Evrópumótinu í handbolta. Handbolti 1. febrúar 2026 13:34
Allir trúa á brons í Herning Það er ljómandi stemning hjá íslenskum áhorfendum í Boxen fyrir leik og allir trúa því að bronsið fari til Íslendinga. Handbolti 1. febrúar 2026 13:17
Hjartað og andinn muni skila sigri „Menn eru bara spenntir og vilja gera allt til að klára þennan mánuð okkar saman vel. Medalía yrði frábær endir á þessu móti,“ segir Arnór Atlason, aðstoðarþjálfari íslenska landsliðsins, sem mætir Króatíu í leik um bronsið á EM í Herning í dag. Handbolti 1. febrúar 2026 13:08
Myndaveisla: Íslendingar klárir í lokabardagann á EM Glatt var á hjalla hjá stuðningsmönnum Íslands fyrir leikinn gegn Króatíu um bronsið á Evrópumótinu í handbolta karla 2026. Handbolti 1. febrúar 2026 12:49
Gísli valinn í úrvalslið EM Leikstjórnandi íslenska karlalandsliðsins í handbolta, Gísli Þorgeir Kristjánsson, var valinn í úrvalslið Evrópumótsins 2026. Handbolti 1. febrúar 2026 12:08
„Held og vona að Ísland taki bronsið“ Það er risastór dagur hjá Alfreð Gíslasyni en hann mætir með Þjóðverjana sína í úrslitaleik EM í dag gegn Dönum í Boxen. Handbolti 1. febrúar 2026 12:00
Sér fyrir sér bronsverðlaun um hálsinn „Maður er eins góður og við má búast. Maður hefur reynt að gleyma svekkelsinu og einblína á Króatana,“ sagði Elliði Snær Viðarsson, línumaður íslenska landsliðsins, þegar hann var tekinn tali í gær. Ísland mætir Króatíu í leik um bronsið á EM í dag. Handbolti 1. febrúar 2026 11:30
Sigvaldi skráður til leiks Hornamaðurinn Sigvaldi Björn Guðjónsson hefur verið skráður inn í Evrópumótið í handbolta Handbolti 1. febrúar 2026 10:54
Dreymdi medalíu og fær óskiljanlega emoji kalla frá pabba sínum Einar Þorsteinn Ólafsson var einn þeirra sem mættu snemma í Boxen í gær til þess að hitta fjölmiðla en hittingurinn var það snemma að ákveðinn hluti íslenska hópsins var enn sofandi. Handbolti 1. febrúar 2026 10:31
Veikindi í króatíska hópnum og markvörðurinn sat heima Króatískir fjölmiðlar greina frá því að veikindi herji á króatíska landsliðshópinn í handbolta sem mætir Íslandi í leik um bronsið á EM í Herning í dag. Markvörður liðsins hélt sig á hótelinu á meðan liðið fór í leikdagsgöngu. Handbolti 1. febrúar 2026 10:15
„Bæði lið eru á felgunni“ Það er komið að því. Í dag skýrist hvort strákarnir okkar fara með verðlaun heim frá EM eður ei. Fram undan er leikur gegn Króatíu um bronsverðlaunin. Handbolti 1. febrúar 2026 09:31
Sér í gegnum Dag: „Hann er bara að segja þetta til að spila með Íslendinga“ Búast má við hörku leik þegar að Ísland og Króatía mætast og berjast um bronsverðlaun á EM í handbolta í dag. Sérfræðingur Besta sætisins gefur lítið fyrir ummæli landsliðsþjálfara Króata, Dags Sigurðssonar, um lágt orkustig hjá liðinu. Handbolti 1. febrúar 2026 09:24
„Verður nú varla verra. Eða jú, kannski“ Spurning sem brennur á mörgum Íslendingum í dag er hvort Dagur Sigurðsson muni hafa af liðinu bronsmedalíu á EM. Hann stýrir Króötum gegn Íslandi í leik um bronsið í dag. Handbolti 1. febrúar 2026 08:31
Allir sérfræðingar TV 2 með Gísla í úrvalsliðinu Gísli Þorgeir Kristjánsson var valinn í öll úrvalsliðin sem TV 2 í Danmörku fékk þrjá sérfræðinga sína til að gera. Handbolti 31. janúar 2026 23:26
Gidsel gefur lítið fyrir tuð Þjóðverja Mathias Gidsel, markahæsti leikmaður Evrópumótsins í handbolta, segir að stuðningsmönnum Danmerkur sé frjálst að styðja liðið á þann hátt sem þeir kjósi. Handbolti 31. janúar 2026 21:20
Sigurganga Blomberg-Lippe heldur áfram Íslendingaliðið Blomberg-Lippe vann sinn fjórða sigur í röð þegar liðið lagði Sachsen Zwickau að velli, 32-28, í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag. Handbolti 31. janúar 2026 18:24
EM í dag: Meira EHF bras og Danir í forgangi Dagurinn var tekinn snemma eftir svekkjandi tap fyrir Dönum í gær. EM í dag í höllinni í Herning innan um þreytta leikmenn. Handbolti 31. janúar 2026 16:11
Segir Dag hafa beðist afsökunar Forseti Evrópska handknattleikssambandsins segir Dag Sigurðsson, landsliðsþjálfara Króatíu hafa beðist afsökunar á því hvernig hann orðaði gagnrýni sína á keppnisfyrirkomulagi og skipulagi sambandsins á EM á blaðamannafundi fyrir úrslitahelgi mótsins í Herning. Handbolti 31. janúar 2026 15:38
Bláir í rauðu hafi: „Eins og við værum boðflennur í einkapartýi“ Bræður frá Íslandi vöktu ekki mikla kátínu meðal danskra stuðningsmanna á leik Íslands og Danmerkur í undanúrslitum EM í handbolta í Herning í gær. Í miðri stúku voru þeir, tveir Íslendingar, innan um þúsundir danskra stuðningsmanna. „Við Íslendingar eigum alveg sama tilverurétt þarna og aðrir,“ segir annar bróðirinn í samtali við Vísi. Handbolti 31. janúar 2026 13:56
„Mér var nákvæmlega sama um þetta allt saman“ Alfreð Gíslason er kominn með Þýskaland í úrslitaleik EM og hann var eftirsóttur maður á viðtalssvæðinu í Boxen í gær. Hann sagðist hafa átt fína nótt. Handbolti 31. janúar 2026 13:32
Svaf yfir sig og missti af rútunni Orri Freyr Þorkelsson kom með seinni skipum á fjölmiðlahitting íslenska landsliðsins í Herning í Danmörku eftir langa nótt. Stór hluti íslenska hópsins fékk að sofa út. Handbolti 31. janúar 2026 12:46
Utan vallar: Af hverju töpuðu hetjurnar okkar gegn Dönum? Það hefði verið svo auðvelt að kenna einfaldlega dómurunum um tapið sára gegn Dönum. Skipulagið á mótinu með tilheyrandi ferðalagi. Miðaruglinu sem varð til þess að höllin í Herning var rauð og hvít. Strákarnir okkar eru aftur á móti komnir svo langt sem lið að þeir gerðu sér grein fyrir því að stóra ástæðan fyrir tapinu var sú að í jöfnum leik tveggja frábærra liða þá voru Danir betri. Það vantaði samt svo lítið upp á að okkar menn stigu sigurdans í leikslok. Það er nefnilega ekkert alltaf sterkara liðið á pappírnum sem vinnur sigur heldur sterkara liðið þann daginn. Í því felst fegurð hópíþrótta. Sport 31. janúar 2026 12:15
„Ég nenni ekki að eyða orku í þetta EHF lið“ Þau voru þung skrefin hjá Snorra Steini Guðjónssyni landsliðsþjálfara í Boxen í morgun. Eðlilega enn svekktur eftir tapið í gær og svo var ekki mikill tími fyrir svefn þar sem fjölmiðlahittingurinn var snemma í morgun. Handbolti 31. janúar 2026 12:02
Gróf stríðsöxina við framkvæmdastjóra EHF Dagur Sigurðsson hefur sæst við framkvæmdastjóra EHF, sem hann segir góðan vin sinn. Legið hafi fyrir að Dagur myndi láta sambandið heyra það fyrir blaðamannafund vikunnar sem fór víða. Handbolti 31. janúar 2026 11:15