Hollywood

Hollywood

Fréttir af fræga fólkinu úti í hinum stóra heimi.

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Taylor segir mynd­bandið hluta af rógs­her­ferð en Dakota vill nálgunarbann

Raunveruleikastjarnan Taylor Frankie Paul segir myndband af henni beita fyrrverandi kærasta sinn, Dakota Mortensen, ofbeldi tekið úr samhengi, það sé hluti af áframhaldandi ófrægingarherferð gegn henni og hann hafi beitt hana ofbeldi. Mortensen hefur aftur á móti farið fram á nálgunarbann á hendur Paul og hafnar öllum ásökunum hennar.

Lífið
Fréttamynd

Piparjónkan tekin af dag­skrá þremur dögum fyrir frum­sýningu

Sjónvarpsstöðin ABC hefur ákveðið að taka nýjustu þáttaröð The Bachelorette af dagskrá eftir að myndskeið af raunveruleikastjörnunni Taylor Frankie Paul, piparjónku seríunnar, að beita fyrrverandi kærasta sinn heimilisofbeldi, fór í dreifingu. Frumsýna átti þáttaröðina eftir þrjá daga. 

Lífið
Fréttamynd

Klæddist fimm kílóum af mannahárum

Raunveruleikastjarnan Lisa Rinna úr þáttunum Raunverulegar húsmæður Beverly Hills vakti mikla athygli í Óskarspartýi Eltons John á sunnudagskvöld. Lisa, sem er orðin eins konar tískugoðsögn í Hollywood, er þekkt fyrir að fara eigin leiðir í tískunni og sýndi það og sannaði þarna.

Tíska og hönnun
Fréttamynd

Ó­þekkjan­leg á Óskarnum

Raunveruleikastjarnan Kim Kardashian er þekkt fyrir að taka áhættu í klæðaburði og fer oft frumlegar leiðir í fatavali. Í gegnum tíðina hefur hún unnið náið með umdeilda listræna stjórnandanum Demna sem var lengi hjá tískuhúsinu Balenciaga en hefur nú fært sig yfir til Gucci.

Tíska og hönnun
Fréttamynd

Sjöunda jafn­teflið á 98 árum

Eitt það óvæntasta á Óskarsverðlaunahátíðinni í nótt var jafntefli leiknu stuttmyndanna The Singers og Two People Exchanging Saliva. Í 98 ára sögu Óskarsins hefur slíkt aðeins gerst sex sinnum áður.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Þau flottustu og mest púkó á Óskarnum

Óskarsverðlaunin eru stærsta uppskeruhátíð Hollywood þannig að stjörnurnar passa sig alltaf að vera í sínu fínasta pússi en hátíðin er ekki síður þekkt fyrir tískuveisluna sem þar fer fram. Rauði dregillinn var sérstaklega stælí í nótt þegar Óskarinn fór fram í 98. sinn.

Tíska og hönnun
Fréttamynd

One Battle After Another bar sigur úr býtum

Kvikmyndin One Battle After Another var sigursælust á Óskarsverðlaunahátíðinni í nótt og hreppti sex verðlaun, þar á meðal sem besta mynd og fyrir bestu leikstjórn. Vampírumyndin Sinners fékk fern verðlaun úr sextán tilnefningum meðan aðstandendur Marty Supreme fóru tómhentir heim eftir að hafa hlotið níu tilnefningar.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Hvernig fer Óskarinn?

Óskarsverðlaunahátíðin fer fram í 98. sinn um helgina og ríkir mikil spenna í ýmsum flokkum. Stóru spurningar eru nokkrar: Hvort hefur One Battle After Another eða Sinners betur? Er Timothee Chalamet búinn að skemma fyrir sjálfum sér með stælum og hroka? Er Jessie Buckley alveg gulltryggð og hvað verður um aukahlutverkin?

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Fimmta dóttirin skírð Ozzy

Jack Osbourne, sjónvarpsmaður og sonur Ozzy Osbourne, og eiginkona hans, innanhúsarkitektinn Aree Osbourne, eignuðust dóttur 5. mars síðastliðinn og hefur hún fengið nafnið Ozzy Mathilda Osbourne.

Lífið
Fréttamynd

„Enn önnur ömur­lega lygasagan um mig“

Sjónvarpsþættirnir Love Story hafa notið mikilla vinsælda undanfarið og segja frá ástarsögu JFK Jr. og Carolyn Bessette Kennedy, sem voru gríðarlega ástfangin en féllu frá langt fyrir aldur fram. Tískuunnendur bíða margir spenntir eftir hverjum þætti en aðrir eru mjög ósáttir við seríuna. Má þar nefna að Darryl Hannah, fyrrverandi kærasta JFK Jr., er ekki par sátt við karakter sinn í seríunni.

Lífið
Fréttamynd

Gimpið í Pulp Fiction er látið

Breski leikarinn Stephen Hibbert er látinn, 68 ára að aldri. Hann er þekktastur fyrir hlutverk sitt sem gimpið í kvikmyndinni Pulp Fiction eftir Quentin Tarantino.

Lífið
Fréttamynd

„Þú ert stærsta súperstjarnan á plánetunni jörð“

Hollywood-leikarinn Jeff Goldblum var óvæntur gestur á tónleikum Laufeyjar Línar í Manchester í gærkvöldi. Laufey söng djazzklassíkina „Misty“ meðan Goldblum spilaði undir og að því loknu lýsti Goldblum henni sem stærstu súperstjörnu jarðarinnar.

Tónlist
Fréttamynd

Bruce Campbell með ó­læknandi krabba­mein

Bruce Campbell, sem er þekktastur fyrir leik sinn í Evil Dead-myndunum, hefur greinst með krabbamein. Hann gefur ekki upp hvernig krabbamein hann glímir við og segir það ólæknandi þó hægt sé að halda því í skefjum með lyfjameðferð.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Britney Spears hand­tekin og í haldi yfir nótt

Bandaríska poppstjarnan Britney Spears var handtekin í nótt á þjóðvegi í suðurhluta Kaliforníu. Hún var í haldi yfir nótt en sleppt í morgun og hefur verið gert að mæta fyrir dómara 4. maí vegna málsins.

Lífið
Fréttamynd

„Til hamingju með daginn Brooklyn, við elskum þig svo mikið“

Hjónin David og Victoria Beckham sendu syni sínum, Brooklyn Beckham, afmæliskveðjur í tilefni dagsins. Brooklyn opinberaði erjur fjölskyldunnar fyrir sex vikum síðan, sakaði foreldrana um að reyna að skemma samband hans við eiginkonuna Nicolu Peltz og sagðist hafa lokað á þau.

Lífið
Fréttamynd

Ó­metan­legt að hafa sagt frá átröskuninni

„Þetta er eitt það erfiðasta sem ég hef gert en á sama tíma það sem hefur verið hvað mest gefandi,“ segir Hollywood leikkonan Lily Collins um það að ræða opinskátt um átröskun. Nú eru liðin tíu ár frá því að þessi Emily in Paris stjarna ræddi fyrst opinberlega um veikindi sín og hún segist aldrei sjá eftir því að hafa opnað umræðuna.

Lífið
Fréttamynd

Slakur með 62 milljón króna háls­men

Rísandi stjarnan Connor Storrie sem leikur einhvern heitasta homma heims í sjónvarpsseríunni Heated Rivalry skín skærar en nokkru sinni fyrr. Hann var kynnir í hinum sívinsælu þáttum SNL vestanhafs um helgina, sömuleiðis kynnti hann leikaraverðlaunin á sunnudag og skartaði þar 62 milljón króna hálsmeni eins og ekkert væri eðlilegra.

Tíska og hönnun