„Við erum svolítið strand“ Lítið er að frétta af rannsókn lögreglu á innbroti í minkabúi í Mosfellsdal þar sem fjölda minka var sleppt úr búrunum sínum. Enn á eftir að fara yfir töluvert af myndefninu. Innlent 4.8.2026 14:34
Engir minkar hafi ratað í gildrur síðustu sólarhringa Engir minkar hafa ratað í gildrur í nágrenni við Dalsbú síðastliðna þrjá sólarhringa og aðgerðir hafa gengið vonum framar að sögn bæjarstjóra Mosfellsbæjar. Innlent 4.8.2026 12:40
Minkur í Vestmannaeyjum tilkynntur til Mosfellsbæjar Vel gengur að fanga minka í Mosfellsdal og lítið af tilkynningum berast til bæjarins, segir Hilmar Gunnarsson bæjarstjóri. „Við erum að fá mjög lítið af tilkynningum. Þetta gengur bara vel.“ Innlent 1.8.2026 17:12
Mosfellsdalur minnti á vígvöll „Þetta líktist næstum því vígvelli,“ sagði Tómas Arnar Þorláksson, fréttamaður sem fylgt hefur eftir atburðum í Mosfellsdal í dag, en þar hefur mátt heyra skothvelli á meðan drónar sveima yfir. Fréttir bárust af því í morgun að þúsundum minka hefði verið sleppt úr búrum sínum á Dalbúi, síðasta minkabúi landsins, og er unnið hörðum höndum að því að ná stjórn á minkafaraldrinum. Innlent 30. júlí 2026 00:02
„Þeir skulu ekki halda það að þeir geti drepið mig“ Eigandi síðasta minkabús landsins ætlar ekki að gefast upp þrátt fyrir að bróðurparti minkanna hafi verið sleppt í morgun. Skothvellir hafa ómað í Mosfellsdal í dag. Innlent 29. júlí 2026 15:23
„Það er bara ekkert sniðugt við þetta“ Íbúi í Mosfellsdal og nágranni Dalsbús, varð var við nokkra minka á kreiki í garðinum heima hjá sér fyrr í dag. Ástandið í dalnum sé nokkuð súrrealískt enda ómi byssuskot um dalinn og lögreglan fljúgi drónum til aðstoðar við leit að minkunum. Innlent 29. júlí 2026 12:06
Vaktin: Íbúum verulega brugðið og óttast framtíðina í sveitinni Íbúar og ræktendur í Mosfellsdal og nærsveitum eru verulega áhyggjufullir eftir að hundruð ef ekki þúsundir minka sluppu úr búrum sínum í morgunsárið. Lögregla rannsakar innbrot í búið. Brotist var inn í svínabú í maí og kjúklingabú í júní. Innlent 29. júlí 2026 10:55
Talið að fleiri þúsund minkar gangi lausir Talið er að fleiri þúsund dýr hafi sloppið af minkabúi í Mosfellsdal. Yfirdýralæknir Matvælastofnunar segir að talið sé að dýrunum hafi verið sleppt viljandi. Um stórslys sé að ræða sem geti valdið öðrum dýrum miklum þjáningum. Innlent 29. júlí 2026 10:30
Náttúran verði sett í fyrsta sæti en ekki ræktandinn Stjórn Víghóls, íbúasamtaka Mosfellsdals, segist verulega brugðið yfir því að hundruðir minka hafi sloppið út í Dalsbúi. Mosfellsdalur sé gróðursæl náttúruparadís, þar sem sé að finna fjölskrúðugt fuglalíf sem nú steðjar ógn að. Innlent 29. júlí 2026 10:27
Bæjarstjórinn hvetur íbúa til að halda dýrum inni í bili Bæjarstjóri Mosfellsbæjar ráðleggur íbúum að halda dýrum sínum inni á meðan mynd kemst á stöðuna í tengslum við atvikið á Dalsbúi í nótt, þar sem hundruðum minka var sleppt úr búrum sínum. Innlent 29. júlí 2026 10:04
Gríðarlegur fjöldi minka slapp úr búrum sínum Mörg hundruð ef ekki þúsund minkum var sleppt út í Dalsbúi í Mosfellsbæ, síðasta minkabúinu á Íslandi, í nótt. Íbúar í nágrenninu óttast um lífríkið á meðan minkarnir ganga lausir. Fylgst er með gangi mála í vaktinni hér að neðan. Innlent 29. júlí 2026 08:53
Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Meðal þess helsta á lista lögreglustöðvar eitt, sem sinnir verkefnum í Austurbæ, Miðbæ, Vesturbæ og á Seltjarnarnesi, var tilkynning um líkamsárás þar sem aðila var fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss. Þeir sem fleygðu honum fram af fundust skammt frá vettvangi og voru handteknir en árásarþoli var fluttur á slysadeild til aðhlynningar með minniháttar áverka. Málið er enn í rannsókn. Innlent 25. júlí 2026 07:59
Hvað veistu um… Mosfellsbæ? Mosfellsbær er sveitarfélag á höfuðborgarsvæðinu, staðsett norðan við Reykjavík. Bærinn er þekktur fyrir fallegt náttúrulegt umhverfi með fjöllum, dölum og strönd. Lífið 22. júlí 2026 20:02
Bakkakotsvelli lokað vegna rigninga: Grjótharðir golfarar láta í minnipokann Grjótharðir golfarar á suðvesturhorninu láta úrhellisrigningu í júlí ekki trufla sig en stundum er nóg nóg. Golfklúbbur Mosfellsbæjar hefur lokað Bakkakotsvelli sem er orðinn vatnssósa. Innlent 22. júlí 2026 12:14
Kölluð út um helgina vegna barns sem læstist inni á salerni Sjúkraflutningar um helgina voru fleiri en vant er. Eitt þeirra útkalla sem Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins fór í á laugardaginn var vegna barns sem hafði læsts inni á baðherbergi en engum varð meint af. Innlent 20. júlí 2026 16:59
Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Nýbökuð móðir tvíburastúlkna uppfyllir ekki kröfu um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði eftir að hafa gengist undir bráðakeisara sex vikum fyrir settan dag. Á meðan stúlkurnar lágu á vökudeild barst móðurinni óvænt niðurstaða sjóðsins sem faðirinn lýsir sem þungu höggi. Þau hafa kært niðurstöðuna til úrskurðarnefndar velferðarmála. Innlent 17. júlí 2026 16:56
Krefjast tæps milljarðs af félagi Bergþórs Farið hefur verið fram á nauðungarsölu á lóð í Mosfellsbæ í eigu félagsins Render Centium. Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins, er helmingseigandi félagsins á móti föður sínum. Krafan er upp á tæpan milljarð króna. Innlent 17. júlí 2026 08:01
Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Drangar, sem eiga meðal annars Nettó, Lyfjaval og Brauð og Co., ætla að opna nýjan verslunarkjarna á Korputúni. Forsvarsmenn Dranga og Reita undirrituðu leigusamning þess efnis í dag. Viðskipti innlent 14. júlí 2026 12:44
Gjaldskrá Strætó hækkuð á ný Tímabilskort hækka um rúm þrjú prósent í nýrri gjaldskrá Strætó. Verð á stökum fargjöldum helst óbreytt. Neytendur 14. júlí 2026 08:19
„Ég fer og kíki og þá er þarna þetta stærðarinnar lambalæri“ Enn hefur ekki fundist skýring á því hvernig stærðarinnar, og kryddað, lambalæri og svo seinna steikarsneiðar og flatkökur enduðu í móa við Hafravatn, langt frá næstu mannabyggð. Kona sem var á hlaupaæfingu í aðdraganda Reykjavíkurmaraþonsins og uppgötvaði matinn þegar hundarnir hennar tveir þefuðu hann uppi segist ekki halda að lærið hafi verið eitrað en skilur hvorki upp né niður í því hvernig það endaði á þessum slóðum. Innlent 7. júlí 2026 15:21
Enginn handtekinn en áfram áætlað að sömu aðilar hafi verið að verki Tvö áþekk innbrot voru framin í byrjun sumars, fyrst í svínabú Stjörnugríss í Brimnesi á Kjalarnesi aðfaranótt mánudagsins 11. maí en síðar í Reykjabú í Mosfellsbæ, þar sem ræktaðir eru kalkúnar og kjúklingar, aðfaranótt mánudagsins 1. júní. Rannsókn beggja mála er ólokið og hefur enginn verið handtekinn en lögreglan hefur leitað að vitnum síðan í upphafi júní. Innlent 6. júlí 2026 13:58
Úlfar vill verða lögreglustjóri á ný Úlfar Lúðvíksson fyrrverandi lögreglustjóri á Suðurnesjum er meðal þeirra sem sóttu um starf lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu. Innlent 29. júní 2026 09:39
Kastaðist af hjólinu þegar ekið var á hann Lögreglunni barst tilkynning um árekstur á áttunda tímanum í morgun, fimmtudaginn 25. júní, þar sem ekið hafði verið á reiðhjólamann með þeim afleiðingum að hann kastaðist af hjólinu. Þá hafnaði hann á gangstéttarkanti og var fluttur á slysadeild en ekki liggur fyrir hve alvarlega áverka hann hlaut. Innlent 25. júní 2026 17:57
„Þeir gáfu mér þessi dýrmætu augnablik til að sveigja úr leið“ Á níunda tímanum í kvöld, mánudaginn 22. júní, skall hurð nærri hælum á göngustíg við Ásgarð í Mosfellsbæ en minnstu munaði að þrír ungir fjallahjólarar keyrðu niður barnungan dreng. Móðir drengsins segist enn vera í hálfgerðu áfalli en að „skyndileg ónotatilfinning“ hafi orðið til þess að hún greip son sinn upp og hljóp með hann af stígnum augnabliki áður en drengir á fjallahjólum birtust ofar á stígnum. Þá segir hún alls ekki vera við þá að sakast enda sárvanti betri merkingar og skilti við stíginn. Innlent 22. júní 2026 23:32