Reykjavík

Reykjavík

Mannfjöldi: 138.772 (2025). Flatarmál: 244 ferkílómetrar.


Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Ætla aftur að mála regnbogafánann

Grafarvogskirkja ætlar að standa fyrir því að fáni hinsegin fólks verði aftur málaður við tröppur kirkjunnar á næstu dögum. Málað var yfir fánann með íslensku fánalitunum af óþekktum einstaklingum í skjóli nætur, um síðustu nótt.

Innlent
Fréttamynd

Skemmdar­vargar máluðu yfir regn­bogafánann

Málað var yfir fána hinsegin fólks við tröppur Grafarvogskirkju í nótt með íslensku fánalitunum. Í samtali við fréttastofu staðfestir séra Arna Ýrr Sigurðardóttir að gjörningurinn hafi ekki verið á vegum kirkjunnar.

Innlent
Fréttamynd

Hand­tekinn eftir röð inn­brota

Alls gistu þrír fangageymslur Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Hún hafði afskipti af fjölmörgum ökumönnum í nótt og maður var gripinn eftir röð innbrota.

Innlent
Fréttamynd

„Ég fer og kíki og þá er þarna þetta stærðarinnar lamba­læri“

Enn hefur ekki fundist skýring á því hvernig stærðarinnar, og kryddað, lambalæri og svo seinna steikarsneiðar og flatkökur enduðu í móa við Hafravatn, langt frá næstu mannabyggð. Kona sem var á hlaupaæfingu í aðdraganda Reykjavíkurmaraþonsins og uppgötvaði matinn þegar hundarnir hennar tveir þefuðu hann uppi segist ekki halda að lærið hafi verið eitrað en skilur hvorki upp né niður í því hvernig það endaði á þessum slóðum.

Innlent
Fréttamynd

Megas er látinn

Tónlistarmaðurinn, rithöfundurinn og myndlistarmaðurinn Magnús Þór Jónsson, betur þekktur sem Megas, er látinn. Hann lést á hjúkrunarheimilinu Grund í gærkvöldi. Megas var 81 árs gamall.

Lífið
Fréttamynd

Ekkert bendi til annars en að um slys hafi verið að ræða

Rannsókn stendur enn yfir eftir að öldruð kona féll fram af svölum á Eir hjúkrunarheimili í Grafarvogi sunnudaginn 28. júní með þeim afleiðingum að hún lést. Andlátið hefur verið rannsakað sem slys og verður það áfram nema eitthvað óvænt komi í ljós í niðurstöðum krufningar.

Innlent
Fréttamynd

Enginn hand­tekinn en á­fram á­ætlað að sömu aðilar hafi verið að verki

Tvö áþekk innbrot voru framin í byrjun sumars, fyrst í svínabú Stjörnugríss í Brimnesi á Kjalarnesi aðfaranótt mánudagsins 11. maí en síðar í Reykjabú í Mosfellsbæ, þar sem ræktaðir eru kalkúnar og kjúklingar, aðfaranótt mánudagsins 1. júní. Rannsókn beggja mála er ólokið og hefur enginn verið handtekinn en lögreglan hefur leitað að vitnum síðan í upphafi júní.

Innlent
Fréttamynd

Efast um að fólk í undir­heimunum pæli í tuftvélinni

Um helmingur þýfisins sem var stolið af vinnustofu Karenar Briem og Antons Lyngdal aðfaranótt laugardagsins, 4. júlí, hefur ratað aftur heim en aðeins annar þjófurinn hefur verið handsamaður. Hugleikur Dagsson, grínisti og eiginmaður Karenar, rifjaði það upp í viðtali á Vísi að Bubbi Morthens hafi aðstoðað sig við að endurheimta harðan disk fyrir um áratug síðan en hann hefur ekki enn verið ræstur út þessa ferðina.

Innlent
Fréttamynd

Snæ­fríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101

Stjörnuparið Högni Egilsson tónlistarmaður og Snæfríður Ingvarsdóttir leik-og söngkona hafa sett íbúð sína á Kolagötu á sölu. Íbúðin er hin glæsilegasta, 125 fermetrar að stærð og ásett verð er 148,9 milljónir.

Lífið
Fréttamynd

Biðlar til þjófa að skila ó­metan­legu þýfi: „Ef þið skilið ekki þessu dóti, kæru þjófar, þá er Bubba að mæta“

Brotist var inn á vinnustofu Karenar Briem og Antons Lyngdal aðfaranótt laugardags og ýmsum tólum og listaverkum stolið þar í skjóli nætur. Hugleikur Dagsson segir að þjófarnir muni skila þýfinu ef einhver heiður er eftir meðal meðlima undirheimanna og hótar að siga Bubba Morthens á þá ef ekki verður af því. 

Innlent
Fréttamynd

Hama­gangur meiri­hlutans minni á norsku Exit-þættina

Pétur Marteinsson, oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík, segir það að fylgjast með asanum í meirihlutanum á sínum fyrstu starfsdögum minni á látagang í norsku þáttunum Exit. Hann hefur litla trú á að 300 milljónir muni raunverulega sparast með nýlegum uppsögnum og gagnrýnir að mannréttindaskrifstofa Reykjavíkurborgar hafi verið lögð niður.

Innlent
Fréttamynd

Heimilis­lausir Píratar leita að nýrri Tortúga

Píratar eru án heimahafnar þessa stundina, þar sem höfuðstöðvum þeirra við Hverfisgötu hefur verið lokað. Þeir leita nú að nýju húsnæði eftir að leigusali þeirra tilkynnti þeim að til stæði að selja eignina, sem hefur samt nú verið auglýst aftur til leigu. Formaður flokksins bindur vonir við að nýtt húsnæði finnist í lok sumars.

Innlent