NATO-ríki auki stuðning við Úkraínu Utanríkisráðherra segir aðild Íslands að NATO mikilvæga og nýlegar árásir Rússa á Úkraínu dragi fram mikilvægi þess að sýna fram á samheldni bandalagsins. Ísland, meðal annarra aðildarríkja, ætli að auka stuðning við Úkraínu. 7.7.2026 18:33
Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Ísak Elí Sæmundsson gaf út sína fyrstu bók, Ævintýri Dalla Dollu, á dögunum en hann er ellefu ára og búsettur á Tálknafirði. Hann segir krökkum sem langi að skrifa bók að láta bara vaða og ekki gefast upp. 5.7.2026 20:00
Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut um fjögurleytið í dag. Engin slys urðu á fólki en fjarlægja þurfti tvo bílanna af vettvangi með kranabíl. 3.7.2026 16:53
Ísland kallaði eftir brýnni umræðu um stöðu mála í Súdan Ísland var meðal þeirra ríkja sem kölluðu eftir brýnni umræðu (e. urgent dabate) um stöðu mála í Súdan í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna. 3.7.2026 15:57
Ódýrast að tjalda á Vesturlandi Verð fyrir gistinótt eins fullorðins á tjaldsvæðum landsins hefur hækkað að meðaltali um tæp sjö prósent á milli ára en verð á rafmagni um rúm ellefu prósent. Þegar litið er á meðalverð landshluta er dýrast að tjalda á höfuðborgarsvæðinu en ódýrast á Vesturlandi. 3.7.2026 15:03
Ný þungunarrofslög taka gildi í Færeyjum Ný lög um þungunarrof tóku gildi á miðvikudaginn síðastliðinn í Færeyjum. Fyrri lög voru ein þau ströngustu í Evrópu en nýju lögin eru afar umdeild og naumt var á milli þegar lögin voru samþykkt í desember síðasta árs. 3.7.2026 11:57
Alexandra ráðin bæjarstjóri Suðurnesjabæjar Alexandra Jóhannesdóttir hefur verið valin til að taka við starfi bæjarstjóra Suðurnesjabæjar. Gert er ráð fyrir að bæjarstjórn staðfesti ráðninguna á fundi sínum þann 15. júlí næstkomandi. 3.7.2026 09:16
Ekki í fyrsta sinn sem brugðið er á leik með liminn Á þriðjudag vakti myndband af uppátæki starfsmanns Hvals hf. sem lék sér að limi hvalhræs sem Hvalur 8 dró að landi mikla athygli. Uppátækið virðist ekki vera einsdæmi en ljósmynd frá árinu 2023 sýni starfsmann Hvals í svipuðu látæði. 2.7.2026 17:36
Heilsustofnunin í Hveragerði fær langtímasamning Heilbrigðisráðherra, forstjóri Sjúkratrygginga Íslands og forseti Heilsustofnunar NLFÍ undirrituðu í dag nýjan fjögurra ára þjónustusamning um sérhæfða endurhæfingu. 2.7.2026 16:05
Gary Glitter ákærður fyrir kynferðisbrot eina ferðina enn Gary Glitter, fyrrverandi poppstjarna og dæmdur barnaníðingur, hefur verið ákærður fyrir kynferðisbrot gegn þrettán ára stúlku. Meintu brotin ná aftur til ársins 1978. Glitter var dæmdur í sextán ára fangelsi árið 2015 fyrir að brjóta á stúlkum, átta til þrettán ára. 2.7.2026 14:44