Alþjóðleg rannsókn á morðinu á Khashoggi hefst í næstu viku Sérstakur erindreki Sameinuðu þjóðanna fer til Tyrklands í næstu viku til að hefja rannsóknina á sádiarabíska blaðamanninum. 24.1.2019 17:32
Segir Zuckerberg hafa borið fram geit sem hann drap sjálfur Í viðtali við Rolling Stone lýsir forstjóri Twitter því hvernig stofnandi Facebook hafi drepið geitur sem hann hélt heima hjá sér. 23.1.2019 23:17
Fimm féllu í skotárás í banka á Flórída Árásarmaðurinn tilkynnti sjálfur um skotárásina til lögreglu og gafst á endanum upp eftir að hafa haldið kyrru fyrir í bankanum um tíma. 23.1.2019 22:41
Venesúela slítur stjórnmálasambandi við Bandaríkin Forseti Venesúela gefur bandarískum erindrekum þrjá sólahringa til að koma sér úr landi. 23.1.2019 21:18
Microsoft varar við Daily Mail í vefvafra sínum Breska götublaðið fékk sömu einkunn og rússneski ríkismiðillinn RT í falsfréttavörn Microsoft Edge-vafrans. 23.1.2019 20:12
Cohen frestar vitnisburði og ber fyrir sig hótanir Trump Fyrrverandi lögmaður Trump forseta átti að koma fyrir þingnefnd í byrjun næsta mánaðar. Hann segist þurfa að setja öryggi fjölskyldu sinnar í fyrsta sæti. 23.1.2019 19:35
Samfélagslega mikilvægt að styrkja fjölmiðla Menntamálaráðherra kynnir ríkisstjórninni frumvarp um stuðning við einkarekna fjölmiðla í næstu viku. 23.1.2019 19:02
Langreyðar lentu í hættuflokki yrði farið að ráðum Hagfræðistofnunar Náttúrufræðistofnun bendir á að drepa þyrfti allt að 16.000 langreyðar til að ná þeirra aukningu í aflaverðmæti sem Hagfræðistofnun talar um að hægt væri að ná með veiðum á hvalnum. 23.1.2019 17:41
Attenborough í Davos: Erfitt að ofmeta loftslagsvána Breski náttúrufræðingurinn varaði við því að mannkynið gæti hæglega rústað náttúrunni gripi það ekki strax til aðgerða. 22.1.2019 23:30
Málamiðlun demókrata og repúblikana í útgjaldadeilu líklega andvana fædd Til stendur að greiða atkvæði um tvö frumvörp sem gætu skorið á hnútinn og opnað lokaðar alríkisstofnanir. Hvorugt þeirra er líklegt til að hljóta samþykki þingsins. 22.1.2019 22:49