Einn af hverjum átta Bandaríkjamönnum alkóhólisti Alkóhólismi hefur aukist verulega í Bandaríkjunum á þessari öld og er vanrækt lýðheilsuvandamál. Ný rannsókn bendir til þess að rúm 12% Bandaríkjamanna glími við áfengissýki. 12.8.2017 10:31
Kid Rock fær stuðning frá Repúblikanaflokknum Mögulegt þingframboð sveitarokkarans Kid Rock virðist hljóta hljómgrunn innan Repúblikanaflokksins. Kid Rock studdi Donald Trump til forseta í kosningunum síðasta haust. 12.8.2017 09:29
Soundcloud rambaði á barmi þrots Hlutafjáraukning bjargaði tónlistarveitunni Soundcloud frá þroti á síðustu stundu. 12.8.2017 08:55
Máli útvarpsmanns gegn Taylor Swift vísað frá Skortur á sönnunargögnum var ástæða þess að kæru fyrrverandi útvarpsmanns gegn Taylor Swift vegna atvinnumissins var vísað frá í gær. Swift hefur sakað útvarpsmanninn um að hafa káfað á afturenda sínum. 12.8.2017 08:26
Kínverjar hvetja til stillingar á meðan Trump heldur hótunum áfram "Enginn elskar friðsamleg lausn eins og Trump forseti, ég get sagt ykkur það,“ sagði Donald Trump Bandaríkjaforseti í gær um leið og hann hótaði Norður-Kóreu miklum vandræðum og hörðustu refsiaðgerðum sem til eru. 12.8.2017 07:59
Var „nokkuð sama“ þegar lögregla stöðvaði hann Ökumaður sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði í nótt grunaðan um ölvunarakstur er sagður hafa kippt sér lítið upp við það. Lögreglan telur að maðurinn hafi verið stöðvaður tíu sinnum áður fyrir sambærileg brot. 12.8.2017 07:20
Rússar segja hótanir vegna Norður-Kóreu fara yfir strikið Stjórnvöld í Kreml hafa áhyggjur af stríðsæsingatali Bandaríkjamanna og Norður-Kóreumanna vegna kjarnorkuáætlunar þeirra síðarnefndu. Vonast þau til að skynsemin ráði för. 11.8.2017 14:59
Mannskæður árekstur tveggja lesta í Egyptalandi Að minnsta kosti tuttugu manns eru sagðir hafa farist þegar tvær farþegalestir rákust á í Alexandríu í norðanverður Egyptalandi. 11.8.2017 14:35
Trump áfram hofmóðugur gagnvart Norður-Kóreu Hótanir sem ganga á milli Norður-Kóreu og Donalds Trump Bandaríkjaforseta stigmagnast. Nú tístir forsetinn að hernaðarlausnir séu tilbúnar ef Norður-Kóreumenn hegða sér ekki skynsamlega. 11.8.2017 13:25
Kosningastjóri Trump rekur lögmenn sína Sérstakur rannsakandi á afskiptum Rússa af bandarísku forsetakosningunum hefur stefnt erlendum bönkum til að afhenda gögn um fyrrverandi kosningastjóra Donalds Trump. Sá hefur nú rekið lögmennina sem hafa komið fram fyrir hans hönd í rannsókninni fram að þessu. 11.8.2017 11:41