Akureyri

Akureyri

Mannfjöldi: 20.050 (2025). Flatarmál: 136 ferkílómetrar. Stærstu byggðakjarnar: Akureyri, Hrísey, Grímsey.

Fréttamynd

Snekkju skattsvikarans meinuð hafnarkoma á Akur­eyri

Glæsisnekkju rússneska skattsvikarans Oleg Tinkov var meinuð hafnarkoma á Akureyri fyrr í dag á grundvelli þvingunaraðgerða varðandi Rússland sem íslensk stjórnvöld hafa ákveðið að framfylgja. Landhelgisgæslan greinir frá þessu í fréttatilkynningu.

Innlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Goðamót í upp­námi og út­lit fyrir sama veður fram á nótt

Um þrjátíu lið geta ekki sótt Goðamótið sem fram fer á Akureyri um helgina vegna óveðurs. Víðtækar veðurviðvaranir eru nú í gildi víðast hvar á landinu og verða til morguns og lokanir á vegum á Vesfjörðum og á Norðurlandi, veðurfræðingur segir útlit fyrir vont veður fram á nótt.

Innlent
Fréttamynd

Lýsir yfir stuðningi við Haf­dísi

Svala Björgvinsdóttir hefur stigið fram til stuðnings Hafdísi Björgu Kristjánsdóttur en báðar áttu þær í sambandi við Kristján Einar Sigurbjörnsson, betur þekktur sem Kleini. Hann er sagður hafa verið handtekinn á Akureyri grunaður um nauðgun ásamt tveimur öðrum mönnum.

Lífið
Fréttamynd

Fagráðið harmar brott­hvarf Hildi­gunnar

Fagráð Sjúkrahússins á Akureyri harmar skyndilegt brotthvarf Hildigunnar Svavarsdóttur, fyrrverandi forstjóra spítalans, úr starfi. Hildigunnur sagði upp eftir að ráðherra greindi frá því að staða hennar yrði auglýst við lok fimm ára skipunartíma hennar.

Innlent
Fréttamynd

Haf­dís stígur fram vegna Kleina

„Mér þykir ótrúlega erfitt að fylgjast með fréttum í dag og erfitt að kenna ekki sjálfri mér um að hafa ekki stigið fram og varað aðrar stelpur við ofbeldinu sem fylgir þessum manni,“ segir einkaþjálfarinn Hafdís Björg Kristjánsdóttir um fyrrverandi kærasta sinn, Kristján Einar Sigurbjörnsson, eða Kleina, sem sagður er hafa verið handtekinn á Akureyri grunaður um nauðgun ásamt tveimur öðrum mönnum.

Lífið
Fréttamynd

Sunna Hlín leiðir lista Fram­sóknar á­fram

Sunna Hlín Jóhannsdóttir skipar efsta sæti lista Framsóknarflokksins á Akureyri. Hún er þegar sitjandi bæjarfulltrúi fyrir hönd flokksins og sömuleiðis Gunnar Már Gunnarsson, sem skipar annað sæti listans.

Innlent
Fréttamynd

Ekki nóg af sætum, salernum, mat eða upp­lýsingum

Hafsteinn Karlsson var á leið til Íslands frá Kaupmannahöfn með konu sinni á fimmtudaginn þegar stefnan var óvænt tekin á Akureyri vegna veðuraðstæðna á Keflavíkurflugvelli. Við tóku um átta klukkustundir af óvissu í komusalnum á Akureyrarflugvelli þar sem mörghundruð manns var gert að bíða í fleiri klukkutíma. 

Innlent
Fréttamynd

Á­fengis­sala í brekkunni hafi reynst vel

Lögreglan þurfti að grípa inn í við Hlíðarfjall síðustu helgi þegar örtröð myndaðist við bílastæðið. Forstöðumaður skíðasvæðisins segir áfengissölu í brekkunni hafa reynst einkar vel og tekur fram að fjöldi erlendra ferðamanna á svæðinu hafi aukist verulega á síðustu árum.

Innlent
Fréttamynd

Missti tökin og hengdur á loft í beinni

Leikfélag Akureyrar frumsýndi í kvöld Birting, klassíska stórsýningu úr smiðju Voltaire. Níels Thibaud Girerd, aðalleikari sýningarinnar, lofaði flugeldasýningu þegar Tómas Arnar Þorláksson sótti meðlimi leikfélagsins heim fyrir frumsýninguna í kvöld, þar sem hann endaði á því að vera hengdur upp í beinni útsendingu.

Lífið
Fréttamynd

Metfjöldi gesta tvo daga í röð

Um 3.400 manns lögðu leið sína í Hlíðarfjall á Akureyri í dag og nánast jafnmargir í gær. Stjórnendur telja aðsóknina þá mestu frá upphafi talninga og reikna með að helgin verði sú stærsta í sögu skíðasvæðisins.

Innlent
Fréttamynd

Þórsarar fá nýtt í­þrótta­hús

Bæjarráð Akureyrar samþykkti á fundi í morgun samkomulag um byggingu nýs íþróttahúss á félagssvæði Þórs. Íþróttahúsinu eru áætlaðir 4.600 fermetrar og þar af verður íþróttasalur með um 2.400 fermetra gólfflöt. Gert er ráð fyrir að það muni kosta á bilinu 3 til 4,5 milljarða króna.

Sport
Fréttamynd

Verra að vera í bíl en gangandi í svif­rykinu

Í mikilli svifryksmengun er betra að fara labbandi í vinnuna en keyrandi, að sögn formanns Félags lækna gegn umhverfisvá. Erlendar rannsóknir sýna að tíðni hjartaáfalla og heilablóðfalla aukist þá daga sem mengun er mikil. 

Innlent
Fréttamynd

Þor­steinn fær á­heyrn Hæsta­réttar

Þorsteinn Hermann Þorbjörnsson, sem var sakfelldur í Landsrétti fyrir að svipta sambýliskonu sína lífi á heimili þeirra í Naustahverfi á Akureyri í apríl árið 2024, hefur fengið leyfi til að áfrýja dómi Landsréttar til Hæstaréttar.

Innlent
Fréttamynd

„Þetta er náttúru­lega bara rotið og galið“

Þórhallur Jónsson, varabæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins á Akureyri, telur flokksstarfi sínu fyrir Sjálfstæðisflokkinn lokið eftir að hann laut í lægra haldi gegn Berglindi Ósk Guðmundsdóttur í oddvitaslag. Hann segir margt rotið innan flokksins á Akureyri. 

Innlent