Hælisleitendur „
1 2 3 4 5 6 … 34 ›
„Mér finnst þetta ómöguleg framkoma“ Hjónin Jón Baldvin Hannibalsson fyrrverandi ráðherra og Bryndís Schram eiginkona hans voru meðal mótmælenda fyrir utan ríkisstjórnarfund í dag. Þau kröfðust þess að hinum 17 ára gamla Oscar Andre Bocanegra Florez yrði veitt dvalarleyfi. Innlent 2.5.2025 13:34
„Við gerum ekki svona við börn“ „Ég er gáttaður á því hvernig þetta samfélag kýs að koma fram við börn,“ segir tónlistarmaðurinn Páll Óskar Hjálmtýsson. Hann er meðal þeirra sem mótmæltu fyrirhugaðri brottvísun hins 17 ára Oscars við fundarstað ríkisstjórnar í dag. Innlent 2.5.2025 10:37
Mótmælt við ríkisstjórnarfund: „Oscar á heima hér“ Mótmæli standa nú yfir fyrir utan fundarstað ríkisstjórnarinnar á Hverfisgötu. Mótmælendur krefjast þess að stjórnvöld dragi til baka brottvísun hins kólumbíska Oscar Andre Bocanegra Florez. Innlent 2.5.2025 09:33
Embætti þitt geta allir séð Ungur drengur frá Columbiu kynnist barnabörnum mínum í skólanum. Hann var hér á landi með ofbeldisfullum föður sínum og þráði ekkert heitar en eðlilegt fjölskyldulíf og öryggi. Faðir hans flúði glæpagengi í Columbíu sem höfðu sýnt honum banatilræði vegna mútugreiðslna sem hann vildi ekki borga. Drengurinn kom hingað til lands með föður sínum og varð að þola gróft ofbeldi frá honum. Skoðun 1.5.2025 23:03
Kalla eftir mannúð og miskunnsemi stjórnvalda gagnvart börnum Prestar og djáknar kalla eftir mannúð og miskunnsemi stjórnvalda í málum barna sem „eiga allt sitt undir ákvörðunarvaldi íslenskra stjórnvalda .“ Þau óska eftir dvalarleyfi fyrir sautján ára kólumbískan dreng og lýsa yfir samstöðu við hann og fjölskyldu hans. Innlent 1.5.2025 21:31
Boðar brottfararstöð fyrir hælisleitendur Dómsmálaráðherra hyggst leggja fram frumvarp í haust um brottfararstöð fyrir hælisleitendur sem hafa fengið synjun um dvalarleyfi en fara ekki sjálfviljugir úr landi. Hún segir óboðlegt og ómannúðlegt að fangelsi landsins séu yfirfull af hælisleitendum sem bíði brottvísunar. Innlent 29.4.2025 20:28
Vilja láta rannsaka aðild flóttateymis í máli Oscars Fósturforeldrar sautján ára kólumbísks drengs, sem hefur verið synjað um dvalarleyfi, biðla til mennta- og barnamálaráðherra að rannsaka aðild flóttateymis Hafnarfjarðar að brottvísun drengsins. Þau telja flóttateymið hafa brotið lög þar sem opið barnaverndarmál var til staðar vegna ofbeldis sem hann sætti af hálfu föður síns. Innlent 28.4.2025 16:38
Fangelsi oft eina úrræðið Alls hafa um ríflega 70 hælisleitendur þurft að sæta fangelsisvist áður en þeim er vísað úr landi síðustu mánuði. Verkefnisstjóri hjá ríkislögreglustjóra segir engin önnur úrræði í boði og mikilvægt að gera úrbætur. Í flestum tilvikum hafi fólkið ekki brotið neitt annað af sér en að vera ólöglegt í landinu. Innlent 28.4.2025 14:07
Hælisleitendur í einangrun: Versta úrræðið sem hægt er að beita Að hafa hælisleitendur sem vísa á úr landi í einangrun í fangelsum er versta úrræðið sem hægt er að beita þá. Þetta segir teymisstjóri geðheilsuteymis fanga sem segir andlega heilsu fólksins afar slæma. Teymið sé vanfjármagnað og þurfi meiri mannskap. Innlent 27.4.2025 19:00
Hælisleitendur bíði brottvísunar við óviðunandi aðstæður Formaður félags fanga gagnrýnir harðlega að hælisleitendur sem bíða brottvísunar séu vistaðir í fangageymslum lögreglu vikum saman við óviðunandi aðstæður án reglubundinnar útivistar. Innlent 26.4.2025 13:49
Rifta samningum vegna gríðarlegrar fækkunar hælisleitenda Vinnumálastofnun hefur sagt upp samningi við þrjú stór sveitarfélög um þjónustu umsækjenda um alþjóðlega vernd. Forstjóri segir ástæðuna vera mikla fækkun umsækjenda. Starfandi bæjarstjóri Reykjanesbæjar segir óvissu fylgja ákvörðuninni. Innlent 25.4.2025 12:03
Leigubílstjóri og vinur hans dæmdir fyrir nauðgun Leigubílstjóri og vinur hans hafa verið dæmdir í 2,5 árs fangelsi fyrir nauðgun. Leigubílstjórinn ók konu í híbýli hins mannsins í Kópavogi þar sem brotin áttu sér stað. Konan gat ekki spornað við verknaðinum sökum ölvunar og svefndrunga. Innlent 24.4.2025 08:02
Oscar þori varla út úr húsi af ótta við að vera sendur úr landi Fósturforeldrar sautján ára kólumbísks drengs, sem hefur verið synjað um dvalarleyfi, segja stjórnvöld koma fram við hann eins og fullorðinn mann en ekki barn. Hann þori vart út úr húsi af ótta við að lögregla handtaki hann og fylgi honum úr landi. Innlent 22.4.2025 18:59
„Hér hefur verið unninn skaði sem þarf að stöðva“ Frestur sautján ára kólumbísks drengs til að fara sjálfur úr landi eftir synjun um dvalarleyfi rennur út í dag. Fyrirhugaðri brottvísun var mótmælt ákaft við dómsmálaráðuneytið í dag. Prestur, sem hefur efnt til mótmæla meðal presta, segist ekki trúa öðru en að íslensk stjórnvöld sjái sóma sinn í að hætta við brottvísunina. Innlent 22.4.2025 12:32
Mótmæltu brottvísun Oscars við dómsmálaráðuneytið Hópur mótmælenda afhenti ráðuneytisstjóra dómsmálaráðuneytisins áskorun um stöðva brottvísun hins sautján ára Oscars Anders Florez Bocanegra. Hópurinn kom saman fyrir utan dómsmálaráðuneytið í Borgatúni í morgun. Greint var frá því nýlega að til stæði að senda Oscar í annað sinn úr landi. Innlent 22.4.2025 09:47
Þrjátíu prestar krefjast dvalarleyfis fyrir Oscar Þrjátíu prestar í íslensku þjóðkirkjunni fordæma brottvísun hins sautján ára Oscars Anders Florez Bocanegra og taka undir þá kröfu að honum verði veitt dvalarleyfi. Innlent 21.4.2025 23:50
Lögmaður þurfi ekki að hafa áhyggjur af þekkingu ráðherra Dómsmálaráðherra gefur lítið fyrir gagnrýni lögmanns á meinta vanþekkingu hennar á eigin málaflokki. Starfshópur sem hún skipaði til að yfirfara reglur um dvalarleyfi sé mannaður af sérfræðingum í málaflokknum. Innlent 21.4.2025 12:12
Mótmæla brottvísun Oscars Boðað hefur verið til mótmæla fyrir utan dómsmálaráðuneytið vegna þess að til stendur að vísa hinum sautján ára Oscar Anders Bocanegra Florez úr landi. Honum hefur áður verið vísað úr landi. Innlent 19.4.2025 21:01
Umsóknum um alþjóðlega vernd fækkar verulega Umsóknum um alþjóðlega vernd hefur fækkað verulega frá því í fyrra. Tilkynningum vegna gruns um mansal hefur farið fjölgandi síðustu þrjú ár. Þetta, og fleira, kemur fram í nýju fréttabréfi ríkislögreglustjóra um stöðuna á landamærunum. Einnig er fjallað um komur skemmtiferðaskipa og fiskiskipa til landsins í fréttabréfinu. Innlent 15.4.2025 10:51
Boðar brottvísanir brotamanna og afnám átján mánaða reglu Frumvarp dómsmálaráðherra um breytingar á útlendingalögum hefur verið afgreitt út úr ríkisstjórn og verður lagt fram á Alþingi. Nái það fram að ganga verður hægt að afturkalla alþjóðlega vernd þeirra sem fremja alvarleg afbrot. Innlent 2.4.2025 14:14
Treystir því að stjórnvöld setji ekki fólk á götuna Óvissa er um framtíð úrræðis fyrir þjónustusvipta hælisleitendur vegna þess að samningur Rauða krossins um félagslegan stuðning fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd verður ekki endurnýjaður. Innlent 27.3.2025 16:15
Sammála JD Vance um innflytjendastefnu Evrópu Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur og formaður danskra jafnaðarmanna, segist sammála JD Vance, varaforseta Bandaríkjanna, um að of mikill innflutningur flótta- og farandfólks ógni öryggi Evrópu. Erlent 22.3.2025 17:35
Sjö sagt upp hjá Rauða krossinum Sjö starfsmönnum Rauða krossins hefur verið sagt upp þar sem að samningur Rauða krossins við Vinnumálastofnun um félagslegan stuðning fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd verður ekki endurnýjaður. Innlent 20.3.2025 16:21
Skoða að reisa herstöð við landamærin að Mexíkó Stjórnvöld í Bandaríkjunum eru sögð liggja yfir áætlunum um að láta herinn taka yfir afmarkað svæði við landamærin í Nýju-Mexíkó. Erlent 20.3.2025 12:53
Týndir hælisleitendur Rúmlega 150 einstaklingar sem synjað hefur verið um alþjóðlega vernd hér á landi eru týndir í kerfum lögreglunnar samkvæmt upplýsingum frá Ríkislögreglustjóra og birtar voru í fjölmiðlum nýlega. Skoðun 5.3.2025 13:02
Öryggi, jafnrétti og framfarir á vorþingi Því fylgir ábyrgð að vera dómsmálaráðherra og verkefnin eru oft krefjandi. Það er góð tilfinning að geta sett mikilvæg mál í forgang og um leið mælt fyrir breytingum sem eru Íslandi til góða. Ég mæli fyrir sex frumvörpum og einni þingsályktunartillögu á vorþinginu. Skoðun 13.2.2025 09:01
Umsóknum um vernd fækkaði úr 4.168 í 1.944 Umsóknum um alþjóðlega vernd fækkaði verulega milli áranna 2023 og 2024, úr 4.168 í 1.944. Þar munar mest um færri umsóknir frá Venesúela en þeim fækkaði úr 1.592 í 193. Innlent 5.2.2025 06:51
„Enn einn áfellisdómurinn yfir stjórnsýslu borgarinnar“ Úrskurður sem fellir úr gildi heimild fyrir búsetuúrræði fyrir hælisleitendur í JL húsinu er enn annar áfellisdómurinn yfir stjórnsýslu Reykjavíkurborgar. Þetta segir oddviti Sjálfstæðisflokksins í borginni. Úrskurðurinn kom forstjóra Vinnumálastofnunar í opna skjöldu. Innlent 23.1.2025 19:00
„Draumahúsið“ sem hefði getað sparað stórfé Óvissa ríkir um hvað verður um sérstakt búsetuúrræði fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd í JL-húsinu eftir að úrskurðarnefnd felldi úr gildi ákvörðun skipulagsfulltrúa um breytingar á deiliskipulagi. Miklir hagsmunir eru í húfi að sögn forstjóra Vinnumálastofnunar en sextíu konur dvelja þegar í húsinu. Formaður velferðarráðs Reykjavíkur gerir ráð fyrir að málið muni nú fara annan hring í kerfinu. Innlent 23.1.2025 12:09
Leyfið heyrir sögunni til Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur fellt úr gildi ákvörðun skipulagsfulltrúa Reykjavíkur um breytingar á skilmálum deiliskipulags Lýsisreits sem heimilaði breytingar á JL-húsinu sem hefði gert mögulegt að hýsa á fjórða hundrað hælisleitenda í húsinu. Innlent 23.1.2025 09:36