Flokkur fólksins
1 2 3 4 5 6 … 37 ›
Undrandi á ráðningu ráðgjafa Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, segir það skekkja myndina á milli stjórnar og stjórnarandstöðu að ráðuneytin njóti aðstoðar ráðgjafafyrirtækja auk þess að vera með aðstoðarmenn, sérfræðinga og embættismannakerfið. Innlent 23.12.2025 09:11
Ný könnun Maskínu: „Væri alveg ný staða í íslenskum stjórnmálum“ Fylgi Miðflokksins heldur áfram að aukast og eykst um tæp tvö prósentustig milli mánaða, samkvæmt nýrri könnun Maskínu. Flokkurinn mælist nú með 19,2 prósent. Innlent 22.12.2025 18:30
Ársæll hringdi beint í utanríkisráðherra eftir fundinn Skólameistari Borgarholtsskóla hafði samband við utanríkisráðherra sama dag og tilkynnt var að staða hans yrði auglýst til umsóknar að loknum skipunartíma hans. Utanríkisráðherra upplýsti forsætisráðherra um vendingarnar. Þá fékk forsætisráðherra að vita að hugmyndir væru uppi um að fækka skólameisturum. Innlent 22.12.2025 17:08
Eyjólfur í orlof og Inga þrefaldur ráðherra Eyjólfur Ármannsson, innviðaráðherra, er farinn í tímabundið fæðingarorlof. Inga Sæland, formaður Flokks fólksins og félags- og húsnæðismálaráðherra, mun leysa Eyjólf af á meðan. Innlent 21.12.2025 10:27
Samstíga ríkisstjórn í sigri og þraut Ríkisstjórnar Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins var mynduð á þessum degi fyrir réttu ári. Það var gleðidagur, eins og alltaf þegar sól fer hækkandi. Í þetta sinn eftir sögulegar kosningar þar sem þjóðin valdi nýtt upphaf. Skoðun 21.12.2025 07:31
Milljónir til almannatengla og átta sinnum meira en í fyrra Útgjöld mennta- og barnamálaráðuneytisins vegna aðkeyptrar þjónustu almannatengla hafa numið rúmum 16,5 milljónum á þessu ári, samanborið við tæpar tvær milljónir í fyrra. Ráðuneytið hefur meðal annars notið þjónustu almannatengslafyrirtækja vegna boðaðra skipulagsbreytinga á framhaldsskólastigi og kynningarátaks vegna innleiðingar laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna. Innlent 21.12.2025 07:01
Funduðu í 320 klukkustundir og afgreiddu 37 frumvörp Fundir Alþingis á liðnu haustþingi voru 53 talsins og stóðu samtals í tæpar 320 klukkustundir. Af þeim 138 frumvörpum sem bárust þinginu urðu aðeins 37 að lögum og eru 101 frumvörp enn óútrædd. Þá voru samþykktar fimm þingsályktunartillögur af 66 og ráðherrar svöruðu 107 óundirbúnum fyrirspurnum. Innlent 19.12.2025 11:18
Telur hagræðingaráformin þau metnaðarfyllstu Stjórnvöld ætla að ráðast í metnaðarfyllstu hagræðingaraðgerðir í ríkisrekstri í langan tíma að mati fjármálaráðherra. Aldrei hafi verið ákveðið að spara aðra eins fjármuni eins og næstu ár eða um hundrað og sjö milljarða króna. Búist sé við að starfsfólki fækki. Innlent 18.12.2025 21:01
Ríkisstjórnin sendi leiðréttingu inn í beina útsendingu Bítinu á Bylgjunni bárust skilaboð frá fulltrúa stjórnarflokkanna sem vildi leiðrétta ummæli viðmælanda. Viðmælandinn hafði velt því fyrir sér hvort það væru samantekin ráð af hálfu formanna stjórnarflokkanna að hrósa hver öðrum í Silfrinu á mánudag. Fulltrúi ríkisstjórnarinnar þvertók fyrir það. Innlent 17.12.2025 10:47
Bein útsending: Boða óvænt til blaðamannafundar í Ráðhúsinu Boðað hefur verið til blaðamannafundar klukkan 11:30 í Ráðhúsi Reykjavíkur. Samkvæmt heimildum Vísis verða þar kynntar breytingar, sem ræddar verða á fundi borgarstjórnar klukkan 12. Innlent 16.12.2025 11:00
Óvíst hvort Guðmundur Ingi snúi aftur í ráðuneytið Óvíst er hvort Guðmundur Ingi Kristinsson menntamálaráðherra muni snúa aftur til starfa í menntamálaráðuneytið eftir að veikindaleyfi hans nú lýkur. Hann er á leið í opna hjartaskurðaðgerð og tíminn þarf að leiða í ljós hvernig bataferli hans verður. Innlent 15.12.2025 22:40
Beitir sér ekki fyrir sveigjanlegri tilhögun fæðingarorlofs Félags- og húsnæðismálaráðherra hyggst ekki beita sér fyrir auknum sveigjanleika vegna tilhögunar fæðingarorlofs þótt hennar persónulega skoðun sé að ríkisvaldið ætti að sleppa forræðishyggjunni í þeim efnum. Þá sé ekki einhugur í ríkisstjórninni í málaflokknum. Innlent 12.12.2025 21:03
„Þessar fréttir ollu mér og fleirum vanlíðan“ Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir, þingkona Flokks fólksins, gagnrýnir vinnubrögð Matvælastofnunar í máli hundsins Úlfgríms en til stendur að aflífa hundinn. Hún segir fréttir af málinu hafa valdið sér vanlíðan og reiði. Innlent 12.12.2025 17:51
Stóra vandamál Kristrúnar er ekki Flokkur fólksins Endalausar bommertur Flokks fólksins þar sem þingmönnum og ráðherrum flokksins virðist ómögulegt að skilja ábyrgðina sem fylgir nýfengnu valdi sínu hefur vissulega gert Kristrúnu Frostadóttur og ríkisstjórn hennar erfitt fyrir á þessu fyrsta starfsári. Skoðun 11.12.2025 07:30
Guðmundur Ingi kominn í veikindaleyfi og á leið í hjartaaðgerð Guðmundur Ingi Kristinsson, mennta- og barnamálaráðherra, er kominn í tímabundið veikindaleyfi. Hann mun gangast undir hjartaaðgerð snemma á næsta ári en varamaður hefur tekið sæti í hans stað á Alþingi. Innlent 9.12.2025 11:29
Nýr varaþingmaður stekkur inn í fjarveru Guðmundar Inga Þóra Gunnlaug Briem tekur sæti sem varamaður á Alþingi í dag sem varaþingmaður Flokks fólksins í fjarveru Guðmundar Inga Kristinssonar, mennta- og barnamálaráðherra. Þóra Gunnlaug er 2. varamaður á lista flokksins í Suðvesturkjördæmi. Samkvæmt dagskrá er gert ráð fyrir að Guðmundur Ingi verði til svara í óundirbúnum fyrirspurnartíma á fimmtudaginn, en nú er ljóst að ráðherrann er kominn í tímabundið veikindaleyfi. Innlent 9.12.2025 10:35
Skilur vonbrigðin en hafnar því að hafa tekið óupplýsta ákvörðun Innviðaráðherra hafnar því að ákvörðun um breytta forgangsröðun jarðganga hafi ekki verið tekin á upplýstan hátt. Hann skilji vonbrigði samfélagsins fyrir austan en segir að með nýrri forgangsröðun sem boðuð er með samgönguáætlun sé ekki verið að slá Fjarðarheiðargöng út af borðinu. Stofnun innviðafélags um stórframkvæmdir skapi forsendur til að ráðast hraðar í stór samgönguverkefni en verið hefur. Innlent 9.12.2025 09:12
Krefjast skýringa á boðuðum breytingum ráðherra á framhaldsskólum Formaður Skólameistarafélags Íslands segir vendingar síðustu daga hafa fengið skólameistara víðs vegar um landið til að íhuga stöðu sína. Félagið á fund með mennta- og barnamálaráðherra og krefst formaðurinn skýringa á boðuðum breytingum sem voru rökstuðningur ráðherrans fyrir því að auglýsa tvö embætti skólameistara laus til umsóknar. Innlent 6.12.2025 16:56
Alltaf ljóst að Flokkur fólksins væri veiki hlekkurinn Prófessor í stjórnmálafræði segir ekkert hafa komið upp sem breytir forsendum ríkisstjórnarsamstarfsins. Ljóst hafi verið fyrir að Flokkur fólksins væri veiki hlekkurinn í samstarfinu og að stjórnarandstaðan myndi reyna að notfæra sér það. Innlent 6.12.2025 13:30
Blönduð byggð við Sundin - í boði nýrrar samgönguáætlunar Ein af mörgum mikilvægum framkvæmdum í nýrri samgönguáætlun ríkisstjórnarinnar sem kynnt var á dögunum, er lagning Sundabrautar. Skoðun 6.12.2025 07:30
„Ég vísa ekki beint í þessa skýrslu“ Þingmenn stjórnarandstöðu segja allar forsendur samgönguáætlunar brostnar þar sem innviðaráðherra las ekki skýrslu sem var birt til stuðnings breyttri forgangsröðun. Höfundur skýrslunnar segir hana ekki hygla Fjarðagöngum frekar en Fjarðarheiðargöngum en innviðaráðherra segist ekki vísa í umrædda skýrslu. Innlent 5.12.2025 20:30
„Aldrei heyrt aðra eins fjarstæðu á ævi minni“ Formaður Flokks fólksins furðar sig á því að lögmaður skólameistara Borgarholtsskóla vilji leiða sig og forsætisráðherra fyrir dóm í tengslum við þá ákvörðun menntamálaráðherra að auglýsa stöðu skólameistarans lausa til umsóknar. Innlent 5.12.2025 18:50
Einfaldlega tilviljun að Ársæll sé fyrstur í röðinni Mennta- og barnamálaráðherra segir tilviljun hafa ráðið því að skólastjóri Borgarholtsskóla hafi verið fyrstur í röð framhaldsskólastjóra að fá þau tíðindi að starf hans yrði auglýst. Hann hafnar því með öllu að ákvörðunin tengist Ingu Sæland eða gagnrýni skólastjórans. Hann þrái þvert á móti gagnrýni og hugmyndir. Innlent 5.12.2025 12:27
Vill leiða ráðherra og aðstoðarmannaskarann fyrir dóm Lögmaður Ársæls Guðmundssonar, skólameistara Borgarholtsskóla, hefur óskað eftir því að fá að leiða forsætisráðherra, félags- og húsnæðismálaráðherra og sex aðstoðarmenn ráðherra fyrir dóm sem vitni í svokölluðu vitnaleiðslumáli. Það er gert til þess að leita sönnunar um atvik í tengslum við ákvörðun menntamálaráðherra um að auglýsa embætti Ársæls laust til umsóknar. Innlent 5.12.2025 11:42
Hættuleg hegðun Eftir 40 ára farsælt starf með ungmennum fær Ársæll Guðmundsson skólameistari Borgarholtsskóla sparkið. Hann hefur helgað líf sitt að því að bæta líf ungs fólks og hvergi slegið af á sinni starfsævi, það gera hugsjónarmenn. Skoðun 5.12.2025 07:46
Hafi engin afskipti haft af málinu Inga Sæland félagsmálaráðherra segist ekki hafa beitt sér á neinum tímapunkti í máli Ársæls Guðmundssonar skólameistara Borgarholtsskóla. Hún hafi hvorki átt í samskiptum við samráðherra sína um málið, né beri hún nokkurn kala til hans. Innlent 4.12.2025 18:57
Ákvörðunin varði gagnrýni Ársæls ekki að neinu leyti Í ljósi boðaðra umfangsmikillla breytinga á framhaldsskólastiginu taldi mennta- og barnamálaráðuneytið rétt að auglýsa stöðu skólameistara Borgarholtsskóla þannig að umsækjendur gætu metið hvort þeir vilji leiða skólann í gegnum slíkar breytingar. Tekið var fram á fundi með Ársæli Guðmundssyni, skólameistara skólans, að ekkert væri því til fyrirstöðu að hann sækti um stöðuna ef hann kysi svo. Ekki hefur verið tekin nein ákvörðun á þessum tímapunkti um að auglýsa aðrar stöður skólameistara. Innlent 4.12.2025 16:12
Vænir ráðherra um valdníðslu og óskar skýringa Lögmaður Ársæls Guðmundssonar skólameistara Borgarholtsskóla sendi Guðmundi Inga Kristinssyni, mennta- og barnamálaráðherra, bréf í dag þar sem hann óskaði skýringa á ákvörðun ráðherra um að auglýsa starf hans. Hún beri vott um valdníðslu. Innlent 4.12.2025 15:52
Kristrún bað forseta um að stöðva umræður Allt ætlaði um koll að keyra á Alþingi í morgun þegar þingmenn stjórnarandstöðunnar lýstu yfir óánægju sinni með að Guðmundur Ingi Kristinsson, mennta- og barnamálaráðherra, hefði verið tekinn af lista yfir ráðherra sem sitja áttu fyrir svörum í óundirbúnum fyrirspurnartíma, einmitt þegar þeir ætluðu að spyrja hann út í embættisfærslur hans í máli skólameistara Borgarholtsskóla. Í ljós kom að ráðherrann liggur á sjúkrahúsi og gat því ekki mætt í þingið. Umræður undir liðnum fundarstjórn forseta héldu þó áfram lengi vel og loks spurði forsætisráðherra forseta Alþingis hvort ekki væri hægt að „stoppa þetta.“ Innlent 4.12.2025 15:19
Símtalið við Ingu skráð í skjalakerfi skólans Skólameistari Borgarholtsskóla segist ekki vera í nokkrum vafa um það að Inga Sæland formaður Flokks fólksins hafi beitt sér fyrir því að skipunartími hans sem skólastjóra hafi ekki verið framlengdur. Þar hafi munað mestu um símtal frá ráðherra í janúar um týnt skópar barnabarns hennar. Innlent 4.12.2025 11:56