Stjarnan

Fréttamynd

„Við erum mjög hungraðir í þennan titil“

Stjarnan tryggði sér sæti í úrslitum VÍS bikarsins í kvöld þegar þeir lögðu Keflavík af velli í framlengdum leik 107-110. Hilmar Smári Henningsson átti stóra körfu undir lok leiks sem fór langt með þetta fyrir Stjörnuna.

Sport
Fréttamynd

„Þeir setja pressu á alla og gera allt ó­þægi­legt“

Sérfræðingarnir í Bónus Körfuboltakvöldi eru skiljanlega afar hrifnir af Stjörnuliðinu sem keyrir yfir flesta mótherja sína þessa dagana í Bónusdeild karla í körfubolta. 38 stiga stórsigur á Stólunum í síðustu umferð sýndi öðrum liðum hversu svakalega öflugir Garðbæingar eru orðnir.

Körfubolti
Fréttamynd

Hilmar Smári: Gott að spila aftur í Garða­bænum

Hilmar Smári Henningsson snéri aftur í lið Stjörnunnar eftir dvöl sína í Litáen þegar liðið lagði Grindavík að velli í VÍS-bikar karla í körfubolta í kvöld. Hilmar Smári hélt til Litáen í kjölfar þess að hafa orðið Íslandsmeistari með Stjörnunni en lék í Stjörnutreyjunni að nýju í sigrinum gegn Grindvíkingum. 

Körfubolti
Fréttamynd

Stjarnan sendi Sel­foss á botninn

Stjörnukonur unnu afar dýrmætan sigur gegn Selfyssingum í dag, 34-28, þegar Olís-deild kvenna í handbolta hófst að nýju eftir jólafrí, eftir að hafa unnið Fram í síðasta leik fyrir fríið.

Handbolti
Fréttamynd

Kom á ó­vart að Hilmar væri á lausu: „Settum upp liðið í kringum hann“

Það kom Baldri Þór Ragnars­syni, þjálfara Stjörnunnar í körfu­bolta á óvart að lands­liðs­maðurinn Hilmar Smári Hennings­son, væri á lausu og stæði liðinu til boða. Hilmar, sem lék lykil­hlut­verk í Ís­lands­meistara­liði Stjörnunnar á síðasta tíma­bili í Bónus deildinni, er mættur aftur í Garða­bæinn eftir stutt stopp í Litáen.

Körfubolti
Fréttamynd

„Þurfum að bæta varnar­leikinn um­tals­vert“

Baldur Þór Ragnarsson, þjálfari Stjörnunnar, var sáttur við stigin tvö þegar lið hans bar sigur úr býtum gegn KR í Bónus-deild karla í körfubolta í kvöld. Baldur Þór vill þó sjá betri varnarleik hjá lærisveinum sínum í framhaldinu. 

Körfubolti
Fréttamynd

Arnar Daði rekinn frá Stjörnunni en á­fram þjálfari kvenna­liðsins

Arnar Daði Arnarsson fékk heldur kaldar jólakveðjur frá handknattleiksdeild Stjörnunnar í hádeginu í dag þegar honum var tilkynnt að hann yrði að stíga til hliðar sem aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla. Hann er þó áfram þjálfari meistaraflokks kvenna og yngri flokka en ætlar að skoða sín mál yfir jólin

Handbolti