Fíkniefnabrot

Fréttamynd

„Get ég komið fjór­tán lítrum fyrir í tíu lítrum af flöskum?“

Ætla má að sakborningar í Dettifossmálinu hefðu getað búið til um 8,6 kíló af amfetamíndufti úr fjórtán lítrum af ætluðum amfetamínvökva sem þeir eru sakaðir um að flytja inn, að sögn dómskvadds matsmanns. Þeim er gefið að sök að flytja inn amfetamínvökvann í fjórum Absolut-vodkaflöskum en óskýrt er hversu stórar þær flöskur eru.

Innlent
Fréttamynd

Salurinn veltist um af hlátri þegar vitni hringdi inn frá Albaníu

Eldri maður frá Albaníu bar vitni í Dettifossmálinu svokallaða í gegnum fjarfundarbúnað við aðalmeðferð málsins síðdegis. Viðstaddir gátu ekki haldið í sér hlátri yfir vitnisburði hans. Hann spurði til að mynda hvers vegna verið væri að ræða sakamál á Íslandi við hann, þar sem nóg væri af sakamálum í Albaníu. Þá kom teiknimyndapersónan Herra Lína við sögu.

Innlent
Fréttamynd

Sæ­var las upp yfirlýsingu: „Ég treysti á­kæru­valdinu ekki“

Sævar Hilmarsson, sem ákærður er fyrir skipulagningu innflutnings fíkniefna í Dettifossmálinu svokallaða, neitaði að svara spurningum sækjanda málsins þegar hann gaf skýrslu við aðalmeðferð þess. Þess í stað las hann upp yfirlýsingu þar sem hann lýsti yfir sakleysi sínu og sagðist ekki treysta því að hann fengi réttláta málsmeðferð af hálfu ákæruvaldsins.

Innlent
Fréttamynd

Þögull sem gröfin um Sæ­var

Annar skipverjanna í Dettifossmálinu svokallaða segist einfaldlega hafa verið að fylgja fyrirmælum þegar hann náði í fjórtán lítra af ætluðum amfetamínbasa í Þýskalandi og flutti til Íslands. Hann vill ekkert tjá sig um samskipti sín við Sævar Hilmarsson, sem grunaður er um að hafa skipulagt innflutninginn.

Innlent
Fréttamynd

Aðal­með­ferð hafin í Detti­fossmálinu

Aðalmeðferð í máli Héraðssaksóknara á hendur þeim Sævari Erni Hilmarssyni, Kastriot Pepaj og tveimur skipverjum á Dettifossi, vegna umfangsmikils fíkniefnasmygsl með skipinu, er hafin.

Innlent
Fréttamynd

Skipu­leggjandi smygls hand­tekinn á Spáni og á­kærður hér

Karlmaður frá Dóminíska lýðveldinu var ákærður í sumar fyrir að hafa skipulagt tvo smyglleiðangra frá Spáni til Íslands, annars vegar í gegnum Þýskaland og hins vegar í gegnum Sviss. Burðardýr í málunum hafa þegar hlotið þriggja ára og 21 mánaða dóma fyrir smyglið. Maðurinn var einn 24 handtekinna í umfangsmikilli aðgerð fjölþjóðlegs lögregluliðs.

Innlent
Fréttamynd

Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna

Maður hefur verið dæmdur í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa haft í fórum sínum og ræktað 260 kannabisplöntur í sölu- og dreifingarskyni í Reykhólahreppi á Vestfjörðum þann 10. ágúst síðastliðinn. Lögreglumenn fundu plönturnar í leit í húsi sem vógu samtals rúm 126 kíló.

Innlent
Fréttamynd

Allir níu á­fram í haldi

Gæsluvarðhald yfir öllum níu sakborningunum í Straumsvíkurmálinu svokallaða hefur verið framlengt á ný. Allir þurfa því að dúsa í haldi í rúmar sex vikur til viðbótar.

Innlent
Fréttamynd

Sótti kíló af kókaíni á póst­húsið

Maður hefur í Héraðsdómi Reykjavíkur verið dæmdur til fimmtán mánaða fangelsisvistar fyrir að hafa mánudaginn 8. júní 2026 á pósthúsinu við Síðumúla í Reykjavík tekið á móti tæpum þrettán hundruð grömmum af kókaíni. Fíkniefnin hafði maðurinn í fórum sínum þegar lögreglan handtók hann síðar sama dag. Fíkniefnin voru falin í fjórum pottum sem bárust með póstsendingu til Íslands.

Innlent
Fréttamynd

Fjöl­skyldan með á þriðja kíló af kókaíni

Þrír Kólumbíumenn, sem sætt hafa gæsluvarðhaldi frá 29. júlí, voru gripnir með 2,4 kíló af kókaíni í farangri sínum. Daginn eftir voru tveir Kólumbíumenn til viðbótar teknir með 1,7 kíló af sama fíkniefni á Keflavíkurflugvelli.

Innlent
Fréttamynd

Sex fíkni­efna­mál komu upp í Eyjum

Sex fíkniefnamál komu upp á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum í gær og hafði lögregla afskipti af einum vegna ölvunaraksturs. Einnig var nokkrum veitt aðstoð vegna ölvunar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu en fíkniefnamálin eru sögð minniháttar. Rólegra virðist hafa verið hjá lögreglunni fyrir norðan. 

Innlent
Fréttamynd

Skip­verjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus

Annar tveggja skipverja Dettifoss, sem ákærðir hafa verið fyrir að hafa komið að innflutningi á fjórtán lítrum af amfetamínbasa, segir þá hafa átt að fá 2,5 milljónir króna fyrir ómakið. Ætla má að götuvirði efnanna gæti numið allt að 280 milljónum króna og skipverjarnir gætu átt yfir höfði sér langa fangelsisvist.

Innlent
Fréttamynd

Burðar­dýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi

Tveir breskir ríkisborgarar hafa verið dæmdir í sex ára fangelsi fyrir umfangsmikinn innflutning á amfetamíni. Bæði voru burðardýr sem gerð voru út af örkinni af óþekktum aðila sem kallaði sig Stúart litla (e. Stuart Little) eftir þekktri teiknimyndapersónu.

Innlent
Fréttamynd

Atli sagður milli­liðurinn í Straumsvíkurmálinu

Tveir brasilískir kafarar eru í hópi þeirra níu sem sitja í gærsluvarðhaldi vegna Straumsvíkurmálsins svokallaða, mesta kókaínsmygli Íslandssögunnar. Atli Freyr Fjölnisson sem hlaut áður dóm í stóru fíkniefna máli er einnig í haldi.

Innlent
Fréttamynd

Af hverju fer sérsveitin í fleiri út­köll?

Er það vegna getuleysis í almennri löggæslu? Það líður varla sá morgunn að fréttamiðlar flytji okkur ekki fregnir af því að sérsveit ríkislögreglustjóra hafi verið kölluð út til að handtaka vopnaða einstaklinga eða bregðast við hættuástandi.

Skoðun
Fréttamynd

Lög­reglan rann­sakar enn eitt inn­brotið í borginni

Lögreglunni barst í dag tilkynning um innbrot á varðsvæði stöðvar 1 en hún sinnir verkefnum í Vesturbæ, Miðborg, Hlíðum, Laugardal, Háaleiti og á Seltjarnarnesi. Er málið til rannsóknar en frá mánaðamótum hafa rétt tæplega fimmtíu tilkynningar um innbrot borist lögreglunni á stöð 1.

Innlent
Fréttamynd

Fara á­fram fram á varð­hald yfir öllum níu

Lögreglan fer í dag fram á framlengt gæsluvarðhald yfir öllum níu sakborningunum í Straumsvíkurmálinu svokallaða, þar sem lögregla rannsakar sögulega umfangsmikinn kókaíninnflutning í súrálskipi.

Innlent
Fréttamynd

Kastriot og Sæ­var á­kærðir í Dettifoss-málinu

Kastriot Pepaj og Sævar Hilmarsson hafa verið ákærðir í umfangsmiklu fíkniefnamáli vegna innflutnings á fjórtán lítrum af amfetamínbasa með Dettifossi, gámaskipi Eimskips. Tveir skipverjar á Dettifossi eru einnig ákærðir í málinu.

Innlent
Fréttamynd

Vill að ríkið taki við sölu vímu­efna

Svala Jóhannesdóttir segir bann- og refsistefnu þegar kemur að vímuefnum ekki hafa skilað neinum árangri og kominn sé tími á að afleggja hana. Hún segir að sú stefna sem skili bestum árangri sé sú sama og í áfengismálum þar sem ríkið stjórni aðgengi. Skatttekjur af nýju kerfi myndu nægja til að fjármagna forvarnir og meðferðarstarf. Svala er formaður Matthildar, samtaka um skaðaminnkun og mannréttindi fólks sem notar vímuefni.

Innlent
Fréttamynd

Reki fyrir­tæki og séu ná­lægt því að missa allt frá sér

„Oft er þetta fólk sem er í vinnu og hefur kannski fyrirtæki og er í miklum umsvifum og er bara um það bil að missa allt frá sér vegna neyslunnar. Hún er dýr og krefst þess líka að fá meira og aftur og þetta verður mikil áþján fyrir einstaklinginn og fjölskyldu hans að sjálfsögðu.“ Þetta segir Valgerður Rúnarsdóttir, framkvæmdastjóri lækninga hjá SÁÁ, um þann fjölbreytta hóp sem sæki sér aðstoðar vegna kókaínfíknar.

Innlent