Stéttarfélög

Fréttamynd

Verka­lýðs­fé­lög í faðmi hins opin­bera

Verkalýðsfélög eiga sér ríka sögu hér á landi og hafa verið öflugt hreyfiafl til framfara í íslensku samfélagi. Á 20. öld náðist mikill árangur í baráttu fyrir réttindum vinnandi fólks, svo sem atvinnuleysistryggingum, orlofsrétti, veikindarétti, lífeyrisréttindum, fæðingarorlofi og öðrum mikilvægum réttindum. Þeim árangri má verkalýðshreyfingin vera stolt af.

Skoðun
Fréttamynd

Borgin víki sér í­trekað undan á­byrgð

Formenn tveggja stéttarfélaga segja Reykjavíkurborg ítrekað víkja sér undan ábyrgð þegar starfsfólk borgarinnar verður fyrir tjóni í starfi. Það veki furðu að fulltrúar borgarinnar státi sig af því að vera leiðandi í mannauðsmálum þegar þeir sýni það ekki í verki. 

Innlent
Fréttamynd

„Þitt vanda­mál er að þú skilur ekki stéttar­fé­lög“

Formaður VR gagnrýnir orð framkvæmdastjóra Viðskiptaráðs um verkalýðsfélög og hlutverk þeirra. Hún segir Viðskiptaráð vinna gegn hagsmunum launafóks en framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs segir orðræðu verkalýðshreyfinga úrelta og hugmyndafræði þeirra líka. 

Innlent
Fréttamynd

„Í versta falli al­var­leg forréttindablinda“

Orð framkvæmdastjóra Viðskiptaráðs, sem sagði verkalýðsfélög úrelt, hafa fallið í grýttan jarðveg hjá fulltrúum félaganna. Þau telja samanburð framkvæmdastjórans á kjörum í Sviss og Portúgal villandi.

Innlent
Fréttamynd

Eru verka­lýðs­fé­lög úr­elt eða bara ó­þægi­leg sumum?

Nýleg ummæli Björns Brynjúlfs Björnssonar, framkvæmdastjóra Viðskiptaráðs, um að verkalýðsfélög séu “tímaskekkja” kalla á viðbrögð. Þessi sjónarmið eru kannski ekki ný á nálinni en þau draga upp mynd sem stenst illa raunveruleikann á íslenskum og alþjóðlegum vinnumarkaði.

Skoðun
Fréttamynd

Tímaskekkjan er ekki verka­lýðs­hreyfingin

Það er heldur sérstakt að heyra framkvæmdastjóra Viðskiptaráðs halda því fram að verkalýðsfélög séu „tímaskekkja“ og þau hefði bara átt að leggja niður um aldamótin. Svona yfirlýsingar eru í besta falli misskilningur eða í versta falli alvarleg forréttindablinda.

Skoðun
Fréttamynd

Virðum vinnu lista­fólks

Á alþjóðlegum baráttudegi verkalýðsins, 1. maí, er lögð áhersla á grundvallarrétt fólks til sanngjarnra kjara og virðingar fyrir störfum sínum. Nú í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga lagði Bandalag íslenskra listamanna fyrir stjórnmálaflokka um allt land spurningarlista. Ein af lykilspurningunum laut að kjörum listafólks og var svohljóðandi:

Skoðun
Fréttamynd

Reykja­víkur­borg og á­byrgðin sem hún forðast

Reykjavíkurborg ber ríka skyldu til að tryggja starfsöryggi og sanngjarna meðferð gagnvart starfsfólki sem daglega sinnir krefjandi og mikilvægum störfum í þágu borgarbúa. Þrátt fyrir það berast Sameyki og Eflingu ítrekað mál þar sem borgin víkur sér undan ábyrgð þegar starfsfólk verður fyrir tjóni í starfi.

Skoðun
Fréttamynd

Með rúma eina og hálfa milljón í heildar­laun

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, er með rúma eina og hálfa milljón króna í heildarlaun fyrir störf hennar hjá stéttarfélaginu og sem annar varaforseti ASÍ. Hún hefur deilt hart á kjör starfssystur hennar hjá VR að undanförnu.

Innlent
Fréttamynd

Kallar for­mann VR „ó­merki­legan popúlista“

Formaður Eflingar lýsir formanni VR sem „ómerkilegum popúlista“ sem hafi tekið sér stöðu með hálauna og forréttindafólki. Þá hafi hann „hrokafulla og heimskulega“ afstöðu til embætta varaforseta Alþýðusambandsins.

Innlent
Fréttamynd

„Líður stundum eins og ég sé með pólitískan eltihrelli“

Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, segist þaulvön því að Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, opinberi sterkar skoðanir sínar á störfum VR og henni sem persónu. Hún segir laun forystufólks stéttarfélaga ekki leyndarmál og bendir á að VR birti laun formanns í ársskýrslu, sem Efling geri ekki. Þá segist Halla vera á lægri launum en forveri hennar. 

Innlent
Fréttamynd

ASÍ er látið niður­greiða laun for­manns VR

Í nýlegu minnisblaði launanefndar VR, sem birt var í fjölmiðlum um helgina, er lagt til að laun formanns félagsins, sem er stærsta stéttarfélag landsins, verði ákveðin sem heildarlaun sem taki með í reikninginn allar greiðslur sem formaðurinn fær frá öðrum aðilum innan verkalýðshreyfingarinnar, þar á meðal Alþýðusambandi Íslands.

Skoðun
Fréttamynd

Launa­hækkun Höllu ill­skiljan­leg

Formaður Eflingar er gagnrýninn á launahækkun sem stjórn VR veitti formanni félagsins fyrir helgi. Það skjóti skökku við að góð laun formannsins hækki um tólf prósent þegar langtímakjarasamningar eru í mikilli hættu á að falla úr gildi.

Innlent
Fréttamynd

Rödd þeirra sem bera kerfið uppi og rétturinn til að nota hana

Formenn, stjórnar- og trúnaðarmenn fag- og stéttarfélaga í heilbrigðisþjónustu gegna ákveðnu hlutverki í íslensku samfélagi. Þeir eru kjörnir fulltrúar starfsfólks, raddir þeirra sem standa vaktina allan sólarhringinn og halda uppi einu mikilvægasta kerfi samfélagsins.

Skoðun
Fréttamynd

Sátt í septem­ber verður að ná til allra

Á Íslandi búa tæplega 400.000 manns. Um helmingur þeirra er launafólk og rúmur helmingur þess launafólks er með háskólamenntun. Undanfarinn áratug hafa lægstu launakjörin leitt þróun í kjarasamningum.

Skoðun
Fréttamynd

Slökkti í málskotsbeiðni Matvís vegna Flame

Hæstiréttur hafnaði beiðni stéttarfélagsins Matvís um að áfrýja dómi  um að það væri skaðabótaskylt gagnvart eigendum veitingastaðarins Flame. Ummæli starfsmanna Matvís við eftirlitsferð var talið hafa leitt til þess að hópur starfsfólks gekk út af vinnustaðnum.

Innlent
Fréttamynd

Aug­lýstu eftir fram­boðum og skelltu í lás yfir páska

Félagar í Verkalýðsfélagi Suðurlands hafa innan við fjóra daga til þess að bjóða sig fram til stjórnar eftir að sitjandi stjórn lét frest til þess byrja að tikka við lokun skrifstofu félagsins fyrir páska. Fyrrverandi starfsmaður sem sitjandi formaður rak hefur boðað mótframboð.

Innlent
Fréttamynd

Fyrsti mót­fram­bjóðandi for­mannsins rekinn af skrif­stofunni

Væntanlegur mótframbjóðandi formanns Verkalýðsfélags Suðurlands til tíu ára var rekinn sem bókari félagsins um síðustu mánaðamót. Hann gagnrýnir að formanns- og stjórnarkjör hafi enn ekki verið auglýst þrátt fyrir að formaðurinn hafi þegar lýst yfir framboði.

Innlent
Fréttamynd

Traust fæst ekki með orðum einum saman – Verka­lýðs­fé­lög eru fyrir­myndir

Verkalýðsfélög verða að standast eigin kröfur. Verkalýðsfélög gegna mikilvægu hlutverki í samfélaginu. Þau eiga að standa vörð um réttindi launafólks, berjast fyrir bættum kjörum, öryggi í starfi, auknu jafnrétti og sanngjörnum vinnubrögðum. Þau gera kröfur til atvinnurekenda um gagnsæi, fagmennsku, virðingu og réttlæti. Það er bæði eðlilegt og nauðsynlegt.

Skoðun
Fréttamynd

Góð á­minning um sann­girni

Í sömu viku og fjármálaráðherra lagði fram frumvarp á Alþingi sem á að gera slökum stjórnendum auðveldara að reka ríkisstarfsmenn gaf héraðssaksóknari út 60 ákærur fyrir ofbeldisbrot eða hótanir gegn opinberum starfsmönnum.

Skoðun