Rekstur hins opinbera

Fréttamynd

Reikna með þrettán milljarða af­gangi á næsta ári

Í fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar ársins 2027 er gert ráð fyrir að rekstrarniðurstaða verði jákvæð um 12,9 milljarða króna og EBITDA verði 73 milljarðar króna. Á árunum 2028-2031 er gert ráð fyrir batnandi afkomu og vaxandi EBITDA.

Innlent
Fréttamynd

Kynntu fjár­hags­á­ætlun borgarinnar

Hildur Björnsdóttir borgarstjóri hefur boðað til blaðamannafundar í Höfða klukkan 11, þar sem hún kynnir fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir árið 2027 og áætlun fyrir fimm ára tímabilið til 2031.

Innlent
Fréttamynd

Þriðjungur til Þórs og KA en rúmt pró­sent í menninguna

Fulltrúi Samfylkingarinnar í umhverfis- og mannvirkjaráði Akureyrarbæjar er hugsi yfir því hve miklir peningar hins opinbera fara í uppbyggingarverkefni tveggja íþróttafélaga bæjarins. Hún stingur upp á því að félögin deili keppnisvelli, líkt og þekkist í töluvert stærri deildum en efstu og næstefstu deild á Íslandi.

Innlent
Fréttamynd

Hvað hafa börnin gert fyrir okkur?

Greint var frá því á dögunum að fjárhagsstaða Hafnarfjarðar væri grafalvarleg. Ljóst var að fara þyrfti í róttækar sparnaðaraðgerðir og brást bæjarstjórn við með því að segja upp 23 starfsmönnum. Við vitum öll að þegar hart er í ári þarf að gæta að hverri krónu.

Skoðun
Fréttamynd

Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ

Alls hafa 23 störf verið lögð niður hjá Hafnarfjarðarbæ sem samsvarar 21,6 stöðugildum. Þremur starfsmönnum verður boðin önnur störf hjá bænum, og er því um að ræða nettófækkun upp á 18,6 stöðugildi.

Innlent
Fréttamynd

Hildi og Inga Þór sagt upp

Hildur Lillendahl Viggósdóttir verkefnastjóri er ein þeirra sem var sagt upp hjá Reykjavíkurborg í dag eftir átján ár í starfi. Þá var Inga Þór Jónssyni, verkefnastjóra á skrifstofu menningarborgar, einnig sagt upp störfum. 

Innlent
Fréttamynd

„Skorið niður til þess eins að skera niður“

Borgarfulltrúar minnihlutans í Reykjavík gagnrýna harðlega hagræðingaraðgerðir og uppsagnir meirihlutans. Þeir saka meirihlutann um vanþekkingu, óvönduð vinnubrögð, skort á pólitískri forystu og að blekkja borgarbúa. Niðurskurðurinn sé til þess eins að haka við verkefni á verkefnalista. 

Innlent
Fréttamynd

Hugsjónasvelta Reykja­vík

Í borgarstjórn eru teknir til starfa fulltrúar Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokks sem enginn virðist vita hvað vakir fyrir og varla þeir sjálfir. Helstu tillögur þeirra snúa að uppsögnum og niðurskurði og umleitunum á því hvort einkafyrirtæki geti sinnt verkefnum borgarinnar eða jafnvel eignast þau.

Skoðun
Fréttamynd

„Galin vinnu­brögð“

Formaður Sameykis lýsir uppsagnarhrinu dagsins hjá Reykjavíkurborg sem áfalli. Hann segir fólk enn bíða skýringa á síðustu uppsögnum og telur vinnubrögð meirihlutans galin.

Innlent
Fréttamynd

„Fyrst og fremst erfitt“

Hildur Björnsdóttir borgarstjóri segir að uppsögnum í miðlægri stjórnsýslu borgarinnar sé lokið, eftir að stöðugildum þar var fækkað um 74 í dag. Mikið verk sé þó áfram fyrir höndum við hagræðingar í rekstri borgarinnar.

Innlent
Fréttamynd

Hildur svaraði fyrir upp­sagnirnar

Hildur Björnsdóttir, borgarstjóri Reykjavíkurborgar, ræddi við fréttastofu í beinni útsendingu í ráðhúsi Reykjavíkur um uppsagnir og hagræðingar dagsins. Formaður Sameykis ræddi einnig málið og var ekki sáttur með meint samráð.

Innlent
Fréttamynd

Gefur meiri­hlutanum fall­ein­kunn

Formaður stéttarfélagsins Sameykis gefur meirihlutanum í Reykjavík falleinkunn. Hann býst við því að svipuðum fjölda verði sagt upp í dag og í síðustu skipulagsbreytingum borgarinnar.

Innlent
Fréttamynd

„Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“

Oddviti Miðflokksins í borginni segir alltaf erfitt að segja upp fólki en að Miðflokkurinn styðji nauðsynlegar hagræðingaraðgerðir í rekstri borgarinnar. Hann kveðst bundinn trúnaði um efni aukaborgarstjórnarfundar í morgun en heimildir Vísis herma að þar hafi verið ræddar uppsagnir tuga borgarstarfsmanna.

Innlent
Fréttamynd

ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir

Sviðum ÁTVR verður fækkað um eitt og staða eins framkvæmdastjóra lögð niður, auk þess sem stöðugildum á skrifstofu og í dreifingarmiðstöð verður fækkað um tæplega sex, í hagræðingaraðgerðum. Með þeim er áætlað að spara um 150 milljónir króna á ári.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Sjö þúsund krónur séu ekki nóg

María Rut Kristinsdóttir, þingmaður Viðreisnar, segir fyrirhugaða breytingu á afsláttarkerfinu Loftbrú ekki duga nóg. Hún hafi miklar áhyggjur af stöðu innanlandsflugsins.

Innlent
Fréttamynd

Frá­farandi for­stjóri Lands­virkjunar opnar sig um starfs­lokin

Það vakti mikla athygli þegar Hörður Arnarson, fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar, tilkynnti starfslok sín en hann gaf engin skýr svör við því hvers vegna hann hafi ákveðið að hætta fyrr. Nú hefur hann sagt ágreining sem olli starfslokunum meðal annars tilkominn vegna skorts á umboði og trausti í sinn garð en hann gangi mjög sáttur frá borði og fyrirtækið sé á góðum stað.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Fimm ráðnir aftur eftir upp­sagnirnar

Af þeim tugum sem sagt var upp störfum hjá Reykjavíkurborg í hagræðingaraðgerðum hafa um það bil fimm verið ráðnir aftur. Þetta segir Róbert Ragnarsson, borgarfulltrúi Viðreisnar.

Innlent
Fréttamynd

Skattahækkanir sem beinast gegn Suður­landi

Skattaárátta ríkisstjórnarinnar bitnar illa á Suðurkjördæmi. Boðaður er sérstakur skattur á ferðamannastaði í Bláskógabyggð, sem mun hafa áhrif langt út fyrir sveitarfélagið. Auk þess stendur til að hækka virðisaukaskatt á baðlón, sem eru langflest á Suðurlandi og eru burðarásinn í uppbyggingu þar á síðustu árum. Þá er ótalin hækkun á kílómetragjaldi sem kemur verst niður á landsbyggðinni.

Skoðun
Fréttamynd

Gott bú stendur undir sér

Fyrrverandi meirihluti í borgarstjórn Reykjavíkur segist hafa skilað góðu búi. Rökin eru fyrst og fremst þau að rekstur borgarinnar sé ekki verri en víðast hvar annarsstaðar, og rekstrarerfiðleikar sem við öllum blasa, stafi fyrst og fremst af háum vöxtum. Við í Viðreisn erum ósammála því.

Skoðun
Fréttamynd

Lækkar eigin laun

Bæjarstjóri Seltjarnarness hefur ákveðið að lækka eigin laun um tvö hundruð þúsund krónur á mánuði. Fjárhagsstaða sveitarfélagsins er sögð alvarleg. 

Innlent
Fréttamynd

Frum­varp um Ríkisút­varp gagn­rýnt harð­lega í samráðs­gátt

Samráði vegna frumvarps menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins um Ríkisútvarpið er lokið. Fjórar umsagnir birtust og má þar finna harða gagnrýni á frumvarpsdrögin. Ekki er talið að þar sé nóg að gert til að stemma stigu við fyrirferð Ríkisútvarpsins á markaði og lagt er til að Ríkisútvarpið verði tekið alfarið af auglýsingamarkaði.

Innlent