Greiðslur ríkislögreglustjóra til Intra
Fjárhagsstaðan alvarleg hjá ríkislögreglustjóra Áætlaður rekstrarhalli embættis ríkislögreglustjóra árin 2023 til 2025 er 1,49 milljarður, eða 5,4 prósent af 27,4 milljarða veltu stofnunarinnar þessi ár. Embættið harmar mistök sem voru gerð í tengslum við viðskipti við félagið Intra. Innlent 30.10.2025 21:07
Ein hinna reknu segir konunum kastað fyrir ljónin Fyrrverandi starfsmaður í landamæradeild ríkislögreglustjóra, sem var sagt upp störfum í vikunni, getur ekki orða bundist yfir framferði embættis ríkislögreglustjóra. Hann segir að störf þriggja starfsmanna í landamæradeildinni hafi verið lögð niður, og erfitt sé að sjá hvernig embættið ætli að standa undir þeim kröfum sem gerðar eru til deildarinnar í framhaldinu. Konurnar þrjár sem sagt var upp hafi nýlega lýst yfir áhyggjum og óánægju með framgöngu nýs deildarstjóra landamæradeildarinnar. Innlent 30.10.2025 15:55
„Auðvitað slær þetta mig ekki vel“ Forsætisráðherra segir greiðslur embættis ríkislögreglustjóra til ráðgjafa upp á vel á annað hundrað milljónir króna yfir fimm ára tímabil ekki slá sig vel. Ríkisstjórnin ætli alls ekki að verða varðhundar kerfisins heldur lyfta við öllum steinum þar sem vísbendingar séu um að betur megi fara með fé. Innlent 30.10.2025 10:24
Reynsluboltum sagt upp í skugga ráðgjafabruðls Þungt andrúmsloft er innan dómsmálaráðuneytisins og ákveðinna deilda embættis ríkislögreglustjóra vegna greiðslna embættisins til ráðgjafafyrirtækisins Intru. Þremur reynsluboltum var sagt upp hjá embættinu í gær sem skjóti skökku við að mati starfsfólks sem baðst undan því að koma fram undir nafni. Innlent 29.10.2025 20:03
Fundinum lokið án niðurstöðu Fundi dómsmálaráðherra og ríkislögreglustjóra vegna 190 milljóna króna greiðslna til ráðgjafa frá lögregluembættum Sigríðar Bjarkar Guðjónsdóttur lauk í morgun án niðurstöðu. Formaður Landssambands lögreglumanna fordæmir fjárútlát ríkislögreglustjóra. Ríkislögreglustjóri hefur hafnað ítrekuðum viðtalsbeiðnum fréttastofu. Innlent 29.10.2025 12:16
Lögreglumenn hundfúlir með bruðl ríkislögreglustjóra Fjölnir Sæmundsson, formaður Landssambands lögreglumanna, segir fjárútlát ríkislögreglustjóra fara illa í lögreglumenn. Hann tekur undir með dómsmálaráðherra um slæma áferð á málinu. Peningum hefði betur verið varið í löggæslu og þjálfun lögreglumanna. Innlent 29.10.2025 09:17
Ráðgjafinn ráðinn tveimur dögum eftir að grennslast var fyrir um málið Ráðgjafi sem fékk 160 milljónir króna greiddar fyrir störf sín fyrir embætti Ríkislögreglustjóra var ráðinn í tímabundið starf hjá embættinu tveimur dögum eftir að blaðamaður Ríkisútvarpsins óskaði eftir upplýsingum um starf ráðgjafans. Dómsmálaráðherra hyggst funda með ríkislögreglustjóra. Innlent 28.10.2025 20:51
Verklagi ábótavant og krefur ríkislögreglustjóra skýringa Dómsmálaráðherra segir það blasa við að ríkislögreglustjóri hefði mátt standa betur að málum er varðar samstarf og greiðslur til stjórnandaráðgjafa sem nema tæpum 200 milljónum. Samkvæmt lögum hefði átt að ráðast í útboð og harmar embættið að það hafi ekki verið gert. Innlent 28.10.2025 19:47
Reglur brotnar og þjónusta sem bjóða ætti út Stjórnsýsla ríkislögreglustjóra við kaup á þjónustu ráðgjafafyrirtækisins Intra er óeðlileg og brýtur ýmsar reglur. Þetta er mat stjórnsýslufræðings sem segir augljóst að bjóða hefði átt þjónustuna út miðað við hve háar upphæðir sé um að ræða. Innlent 28.10.2025 14:03
Ráðgjafinn ráðinn í tímabundið starf eftir dýra skreppitúra Embætti ríkislögreglustjóra hefur ráðið Þórunni Óðinsdóttir, eiganda Intra ráðgjöf, tímabundið í fullt starf samkvæmt tilkynningu. Fréttirnar koma í kjölfar umfjöllunar um að fyrirtæki Þórunnar hefði fengið hátt í tvö hundruð milljónir króna á átta árum greiddar fyrir ráðgjöf sína, en ráðgjöfin fólst meðal annars í skreppitúrum í Jysk. Innlent 27.10.2025 22:46
Skreppiferðir í Jysk meðal þess sem ráðgjafi rukkaði fyrir Ríkislögreglustjóri hefur greitt ráðgjafafyrirtækinu Intra ráðgjöf 160 milljónir króna fyrir þjónustu þess. Meðal þess sem fyrirtækið rukkaði tugi þúsunda fyrir var að skreppa í verslanir Jysk og íhuga uppsetningu á píluspjaldi. Innlent 27.10.2025 20:26