Minkum sleppt í Mosfellsdal

Fréttamynd

Staðan orðin „þokka­lega góð“

Bæjarstjóri Mosfellsbæjar segir að vel hafi gengið að fanga minka sem sluppu úr Dalsbúi í gærmorgun eftir að skemmdarverk var unnið á búinu. Verkefni dagsins í dag sé að fá tölu á þá minka sem sluppu út en þeir kunna að vera í þúsunda tali. Flestir minkanna hafa ekki vogað sér út fyrir öryggisgirðinguna við búið.

Innlent
Fréttamynd

Fleiri en einn hafi verið að verki

Aðgerðir í Mosfellsdal gengu vel í nótt og halda áfram í dag að sögn bæjarstjóra Mosfellsbæjar. Tilkynningar næturinnar megi telja á fingrum annarrar handar en aðgerðarstjórnin vilji vera með vaðið fyrir neðan sig. Honum þyki ekki ólíklegt að um sömu aðila sé að ræða og í innbroti í svínabú og kjúklingabú fyrr í sumar og að fleiri en einn hafi verið að verki.

Innlent
Fréttamynd

Dýralæknafélag Ís­lands for­dæmir skemmdar­verk í Dalsbúi

Dýralæknafélag Íslands fordæmir harðlega meint innbrot og skemmdarverk á þremur búum og að dýrum hafi verið sleppt úr haldi. Slík atvik staðfesti dómgreindarleysi þeirra sem að aðgerðunum standi. Félagið lýsir yfir stuðningi við lögreglu, Matvælastofnun og aðra sem koma að aðgerðunum í Mosfellsdal. 

Innlent
Fréttamynd

Mosfellsdalur minnti á víg­völl

„Þetta líktist næstum því vígvelli,“ sagði Tómas Arnar Þorláksson, fréttamaður sem fylgt hefur eftir atburðum í Mosfellsdal í dag, en þar hefur mátt heyra skothvelli á meðan drónar sveima yfir. Fréttir bárust af því í morgun að þúsundum minka hefði verið sleppt úr búrum sínum á Dalbúi, síðasta minkabúi landsins, og er unnið hörðum höndum að því að ná stjórn á minkafaraldrinum.

Innlent
Fréttamynd

Allir á hlaupum að reyna fanga minka

Aðstoðarlögreglustjóri segir að rökstuddur grunur sé um að brotist hafi verið inn í minkabú og dýrunum hleypt úr búrunum. Alls hafi verið á milli tíu og tólf þúsund minkar í búinu en fjöldi viðbragðsaðila kemur að því að fanga minkana sem sluppu. Mikið sé undir.

Innlent
Fréttamynd

„Það er bara ekkert sniðugt við þetta“

Íbúi í Mosfellsdal og nágranni Dalsbús, varð var við nokkra minka á kreiki í garðinum heima hjá sér fyrr í dag. Ástandið í dalnum sé nokkuð súrrealískt enda ómi byssuskot um dalinn og lögreglan fljúgi drónum til aðstoðar við leit að minkunum. 

Innlent
Fréttamynd

Talið að fleiri þúsund minkar gangi lausir

Talið er að fleiri þúsund dýr hafi sloppið af minkabúi í Mosfellsdal. Yfirdýralæknir Matvælastofnunar segir að talið sé að dýrunum hafi verið sleppt viljandi. Um stórslys sé að ræða sem geti valdið öðrum dýrum miklum þjáningum.

Innlent
Fréttamynd

Náttúran verði sett í fyrsta sæti en ekki ræktandinn

Stjórn Víghóls, íbúasamtaka Mosfellsdals, segist verulega brugðið yfir því að hundruðir minka hafi sloppið út í Dalsbúi. Mosfellsdalur sé gróðursæl náttúruparadís, þar sem sé að finna fjölskrúðugt fuglalíf sem nú steðjar ógn að.

Innlent
Fréttamynd

Gríðar­legur fjöldi minka slapp úr búrum sínum

Mörg hundruð ef ekki þúsund minkum var sleppt út í Dalsbúi í Mosfellsbæ, síðasta minkabúinu á Íslandi, í nótt. Íbúar í nágrenninu óttast um lífríkið á meðan minkarnir ganga lausir. Fylgst er með gangi mála í vaktinni hér að neðan.

Innlent