Borgarstjórn

Fréttamynd

Stefna á flotgufu að nor­rænni fyrir­mynd

Reykjavíkurborg lítur til norrænna höfuðborga og stefnir á að byggja fljótandi gufuböð í Bryggjuhverfinu. Gufurnar bætast við flóru fargufa sem hafa notið sívaxandi vinsælda hérlendis.

Innlent
Fréttamynd

Til­laga um „hlað­borð lausna“ felld

Tillaga um samstarf við atvinnulífið í málefnum leikskóla og daggæslu var felld í borgarstjórn í dag. Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins segir að bjóða þurfi upp á „hlaðborð lausna“ til að leysa leikskólavandann.

Innlent
Fréttamynd

Myndi kosta sveitar­fé­lögin 300 milljónir á ári

Áætlað er að það myndi kosta sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu aukalega um 300 milljónir króna á ári að gera Strætó gjaldfrjálsan fyrir grunnskólabörn, þar af 167 milljónir fyrir borgina. Borgarstjóri segir að boðaðar breytingarnar séu til þess fallnar að auka frelsi reykvískra barna.

Innlent
Fréttamynd

Borgar­stjórn vill að börn fái frítt í Strætó

Frá og með 1. maí næstkomandi munu börn á grunnskólaaldri í Reykjavík ekki þurfa að greiða fargjald í Strætó, nái áform borgarstjórnar fram að ganga. Tillaga meirihlutans í Reykjavík þess efnis var samþykkt á borgarstjórnarfundi í dag. Markmiðið er að með þessu verði aðgengi barna og ungmenna að almenningssamgöngum bætt og þannig hægt að draga úr foreldraskutli í skóla-, íþróttir- og frístund og um leið draga úr umferðarþunga.

Innlent
Fréttamynd

Innviðasjóður Reykja­víkur: Ný nálgun Við­reisnar

Við leggjum í dag fram tillögu í borgarstjórn um að greina og útfæra Innviðasjóð Reykjavíkur, nýja og markvissa leið til að fjármagna uppbyggingu leikskóla, skóla og annarra grunninnviða borgarinnar til lengri tíma. Hugmyndin er einföld. Að byggja upp gagnsæja og ábyrgari umgjörð fyrir langtímafjárfestingar í innviðum fyrir borgarbúa.

Skoðun
Fréttamynd

Vilja ekki óundirbúnar fyrir­spurnir í borgar­stjórn

Fulltrúar meirihluta í borgarstjórn telja ekki tímabært að festa í sessi óundirbúnar fyrirspurnir á fundum borgarstjórnar. Fulltrúarnir beina því til næstu forsætisnefndar að kanna með hvaða hætti sé hægt að bæta fundi borgarstjórnar.

Innlent
Fréttamynd

Karlarnir leiða að ósk kvennanna

Sigfús Aðalsteinsson fasteignasali leiðir lista Okkar borgar – Þvert á flokka í sveitarstjórnarkosningum í vor. Baldur Borgþórsson mun skipa annað sæti listans. Tilkynnt var um framboðið í október í fyrra. Hlynur Áskelsson, kennari í Fjölbrautaskólanum í Ármúla, tekur þriðja sæti á listanum. Sigfús og Baldur voru til viðtals um væntanlegt framboð í Bítinu á Bylgjunni í morgun.

Innlent
Fréttamynd

Borgar­full­trúi fer ekki aftur fram og hættir í Pírötum

Magnús Davíð Norðdahl borgarfulltrúi Pírata sækist ekki eftir sæti á framboðslista Pírata í sveitarstjórnarkosningunum í maí. Við lok kjörtímabils ætlar hann að segja skilið við þátttöku í skipulögðu stjórnmálastarfi og þar með einnig samtökum Pírata. Þetta tilkynnti Magnús á Facebook-síðu sinni í dag.

Innlent
Fréttamynd

Heiða tekur annað sætið í Reykja­vík

Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri ætlar að taka 2. sæti á lista Samfylkingarinnar í Reykjavík sem hún tryggði sér í prófkjöri flokksins á laugardaginn, þegar hún tapaði slagnum um oddvitasætið. Hún óskar Pétri Marteinssyni aftur til hamingju með sigurinn og öllum þeim sem tryggðu sér sæti á lista og segist áfram ætla að vinna í þágu borgarinnar á grundvelli hugsjóna sinna og jafnaðarstefnunnar.

Innlent
Fréttamynd

„Þetta er auð­vitað glæsi­legt fyrir flokkinn“

Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra og formaður Samfylkingarinnar, gefur ekkert upp um það hvernig hún greiddi atkvæði í nýafstöðnu prófkjöri flokksins í Reykjavík. Hún segir þátttökuna í prófkjörinu vera glæsilega fyrir flokkinn en ríflega fimm þúsund flokksfélagar tóku þátt í því, margir hverjir spánnýir í flokknum. Þá vill Kristrún ekki tjá sig sérstaklega um orð borgarstjóra um að flokksfélagar hafi hafnað reyndri konu.

Innlent
Fréttamynd

Veitir ekki við­töl að sinni

Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri mun ekki veita viðtöl um úrslit prófkjörs Samfylkingarinnar í dag. Enn er óvíst hvort hún þiggi annað sætið á lista flokksins í vor. 

Innlent
Fréttamynd

„Margt ó­ráðið í minni fram­tíð“

Dóra Björt Guðjónsdóttir, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar og áður Pírata, segir margt óráðið um sína framtíð eftir að niðurstöður prófkjörs Samfylkingarinnar í Reykjavík lágu fyrir um helgina. Dóra sóttist eftir 3.-4. sæti á lista en hafði ekki erindi sem erfiði. Hvort sem hún fái tækifæri til að taka sæti á lista eða ekki segist Dóra ætla að leggja hönd á plóg í kosningabaráttu Samfylkingarinnar í vor og segist styðja nýjan oddvita flokksins.

Innlent
Fréttamynd

Einar og Magnea í efstu sætum Fram­sóknar í Reykja­vík

Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknar í Reykjavík, verður sjálfkjörinn á lista flokksins í Reykjavík til framboðs í sveitarstjórnarkosningunum í vor. Magnea Gná Jóhannsdóttir borgarfulltrúi verður einnig sjálfkjörin í annað sætið. Aðrir fulltrúar verða kynntir á kjördæmisþingi Framsóknar þann 7. febrúar.

Innlent
Fréttamynd

„Fyrst og fremst er verið að hafna odd­vitanum“

Stjórnmálafræðiprófessor segir Samfylkinguna hafa hafnað sitjandi oddvita og borgarstjóra í prófkjörinu í gær. Niðurstaðan sýni að ákall flokksmanna hafi verið um umskipti. Litlu munaði að ekki aðeins einum nýliða tækist að skáka sitjandi borgarstjóra heldur tveimur.

Innlent
Fréttamynd

Segir Heiðu hafa átt betra skilið

Skúli Helgason, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar sem hafnaði í fjórða sæti í prófkjöri flokksins í Reykjavík í gær, segist ætla að taka sætið þó að hann hafi ekki náð markmiði sínu, en hann sóttist eftir öðru sætinu.

Innlent
Fréttamynd

Munaði litlu að ný­liði skákaði borgar­stjóra

Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir, sem hafnaði í þriðja sæti í flokksvali Samfylkingarinnar í kvöld, var einungis fimmtán atkvæðum frá því að lenda sæti ofar en Heiða Björg Hilmisdóttir sitjandi borgarstjóri. 

Innlent
Fréttamynd

Stóra verkefnið að vinna aftur traust borgar­búa

Pétur Marteinsson nýkjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík segir stærsta verkefni flokksins í komandi kosningum að vinna traust borgarbúa til baka. Hann segir gott gengi í prófkjörinu til marks um að fólk vilji breytingar í borginni.

Innlent
Fréttamynd

Gríðar­leg von­brigði að reyndri konu sé ekki treyst

„Þetta eru bara gríðarleg vonbrigði, vissulega. En líka þakklæti fyrir mikinn stuðning. Í rauninni er ég stolt af mínum baráttumálum og minni vinnu. Þetta er tvíbent, en auðvitað eru vonbrigði að vera ekki treyst fyrir fyrsta sætinu. Ég hélt að Samfylkingin væri komin á þann stað.“

Innlent
Fréttamynd

Sam­fylkingin valdi sér borgar­stjóra­efni

Pétur Marteinsson skákaði sitjandi borgarstjóra og verður oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík í sveitarstjórnarkosningunum 2026. Niðurstöður flokksvals Samfylkingarinnar í Reykjavík voru kynntar í kvöld.

Innlent