Lífið

Þessi fengu Grammy og sendu ICE-kaldar kveðjur

Bad Bunny, Lady Gaga, Kendrick Lamar, Lola Young og Olivia Dean voru meðal þeirra sigursælustu á Grammy-tónlistarverðlaunahátíðinni sem fór fram í Los Angeles í nótt. Laufey Lín Jónsdóttir nældi sér jafnframt í sín önnur Grammy-verðlaun fyrir plötuna A Matter of Time. 

Lífið

Stjörnulífið: Dorrit og Pharrell Williams í fíling

Einhver besti janúarmánuður í manna minnum er liðinn undir lok með mörgum blíðviðrisdögum, norðurljósadýrð, handboltaveislu og alvöru skvísupóstum á samfélagsmiðlum. Stjörnur landsins voru önnum kafnir við ýmislegt pæjulegt í liðinni viku og skelltu sér meðal annars á skíði erlendis, trúlofuðu sig í safaríferð í Afríku, unnu til tvennra Grammy verðlauna og sóluðu sig á Bahama-eyjum.

Lífið

Lauf­ey Lín fékk önnur Grammy-verðlaun

Laufey Lín Jónsdóttir hlaut sín önnur Grammy-verðlaun í kvöld. Breiðskífa hennar A Matter of Time var verðlaunuð í flokki hefðbundinna poppplatna. Hún hlaut verðlaun í sama flokki árið 2024.

Lífið

Kyn­líf á ekki að vera vont

Nýlega spurði ég lesendur út í kynlífsvanda. Bæði hvort vandi sé til staðar núna eða hafi áður verið til staðar. Af þeim 1307 sem svöruðu, hafa um 70% verið að takast á við kynlífsvanda, nú eða áður fyrr.

Lífið

Lista­menn safna fyrir 10 ára dreng á Sel­fossi í dag

Listamenn úr Myndlistarfélag Árnessýslu (MFÁ) standa saman að styrktarviðburði til stuðnings Hinriki Sjørup, 10 ára dreng frá Selfossi, sem glímir við blóðkrabbamein. Hinrik er nú staddur í Svíþjóð ásamt foreldrum sínum í áframhaldandi meðferð, þar á meðal undirbúningi fyrir beinmergsskipti. Söfnunin fer fram í dag, 1. febrúar.

Lífið

Krakkatían: Gott kvöld, hand­boltinn og Tene

Hversu vel fylgdist þú með fréttum í vikunni sem líður? Spreyttu þig á Krakkatíunni! Í Krakkatíunni beinum við kastljósinu bæði að því sem gerðist hér heima og erlendis ásamt ýmsum spurningum úr öllum áttum - alls konar spurningar fyrir yngri kynslóðina.

Lífið

Í krabba­meins­með­ferð og fæðingar­or­lofi á sama tíma

„Lífið fór allt saman á hliðina í smá stund. Það var augljóslega ekki planið að fá bæði þessi risastóru verkefni í hendurnar á sama tíma,” segir Sara Ísabella Guðmundsdóttir en hún greindist með Hodgins-eitilfrumukrabbamein síðasta sumar, einungis fimm vikum eftir að frumburður hennar kom í heiminn. Hún þurfti þar af leiðandi að ganga í gegnum stífa lyfjameðferð á sama tíma og hún var að stíga sín fyrstu skref í móðurhlutverkinu.

Lífið

Höfðu loks efni á upp­setningu eftir íbúðarkaupin

Í dögunum fór af stað þriðja þáttaröðin af Viltu finna milljón á Sýn en þættirnir koma vikulega inn á Sýn+. Í þáttunum er fylgst með þremur pörum taka fjármálin sín í gegn. Í fimm mánuði munu þau fá ýmis verkefni og áskoranir með það að markmiði að bæta fjárhaginn sinn og búa til góðar venjur til framtíðar þegar kemur að fjármálum.

Lífið

„Með rauf á rassi ef mér verður brátt í brók“

„Bara við það eitt að skella á sig fallegu bindi ferðu úr því að vera Doddi á lagernum í erindreki í Buckinghamhöll,“ segir hinn bráðfyndni Starkaður Pétursson. Starkaður er 28 ára gamall leikari alinn upp í Hafnarfirði og hefur á sinn einstaka máta gaman að tískunni.

Tíska og hönnun

Jói Fel málar með puttunum

Málverk eftir Jói Fel eins og hann er alltaf kallaður hafa vakið mikla athygli á veggjum Sundhallar Selfoss því þar eru til sýnis fjölmörg verk hans, til dæmis af þríeykinu í Covid og nokkrum heimsfrægum knattspyrnustjörnum. Margar af myndunum málar hann eingöngu með puttunum.

Lífið

Catherine O'Hara er látin

Leikkonan Catherine O'Hara er látin 71 árs að aldri. Hún er öllum landsmönnum kunnug fyrir að hafa farið með hlutverk móðurinnar í Home Alone en hún átti langan feril í sjónvarpi og á hvíta tjaldinu.

Lífið

Fermingardagurinn er stór dagur

Fermingardagurinn er stór dagur í lífi ungmenna og fötin skipta máli. Við ræddum fermingartískuna við Grím Garðarsson, annan eiganda Bestseller á Íslandi og Hilmar Eyþór Ásgeirsson, verslunarstjóra Jack & Jones í Kringlunni.

Lífið samstarf

Dragi úr trú­verðug­leika Eddunnar og úti­loki fag­fólk

Leikstjórinn Davíð Óskar Ólafsson segir Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar (ÍKSA) útiloka fjölda fagfólks með því að bæta við nýjum flokkum í Edduverðlaununum fyrir leikið sjónvarpsefni en einungis fyrir leikara. Ákvörðunin dragi úr trúverðugleika og máli upp ranga mynd af bransanum. Fjöldi þekkts bransafólks tekur undir skrif Davíðs.

Bíó og sjónvarp

Leikið sjón­varps­efni aftur hluti af Eddunni

Stjórn Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar (ÍKSA) hefur opnað fyrir innsendingar til Eddunnar 2026 og ákveðið að verðlauna leikið sjónvarpsefni á ný. Þar bætist við fimm nýir flokkar: besta leikna sjónvarpsefnið auk besta leikara og leikkonu í aðal- og aukahlutverkum.

Bíó og sjónvarp

„Ég er femín­isti“

Eins og fram hefur komið hefur Pétur Marteinsson verið kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík í borgarstjórnarkosningum í maí. Pétur, sem er eigandi Kaffi Vest og fyrrverandi fótboltakempa, tilkynnti framboð sitt í oddvitasætið á nýársdag.

Lífið

Ellefu milljónir fyrir ó­skrifaða óperu

Umdeild ráðning óperustjórans Finns Bjarnasonar og ýmsir óskýrðir angar hennar voru til umræðu í nýjasta þætti hlaðvarpsins Menningarvaktarinnar. Einnig var þar rætt um nýja söngleikinn Ormstungu, heimskuvæðingu Netflix og það nýjasta í bíóhúsum.

Menning

Ó­bilandi trú á eigin á­gæti

Bólugrafinn og renglulegur með samvaxnar augabrúnir og hormottu, hrokafullur, hraðlyginn og hvatvís, kjaftfor, sjálfumglaður og ódrepandi við að ná markmiði sínu: að verða sá besti í heimi, sama hvað það kostar.

Gagnrýni

Ólafur Darri verður Þór

Leikarinn Ólafur Darri Ólafsson hefur tekið að sér að leika guðinn Þór í nýjum þáttum Amazon MGM og Sony. Þættirnir byggja á gífurlega vinsælum leikjum um spartverjan og seinna stríðsguðinn Kratos.

Bíó og sjónvarp