Ákvörðun verði tekin um Sundabraut 4. janúar 2005 00:01
Sjálfstæðismenn í borgarstjórn vilja að ákvörðun um legu Sundabrautar verði tekin sem fyrst. Þeir vilja sjálfir að gerð verði lágbrú af Gelgjunesi yfir í Grafarvog en það er jafnframt ódýrasta leiðin. Sjálfstæðismenn kynntu tvær tillögur sínar í borgarstjórn fyrir fyrsta borgarstjórnarfund ársins í dag. Þeir vilja að rekstur fjarskiptafyrirtækja Orkuveitu Reykjavíkur sæti úttekt hjá innri endurskoðun Reykjavíkurborgar en hún gegnir sambærilegu hlutverki og Ríkisendurskoðun. Þá kynntu sjálfstæðismenn hugmyndir sínar um lagningu Sundabrautar. Leiðin sem þeir vilja fara liggur af Kleppsmýrarvegi út á svonefnt Gelgjunes og þaðan yfir í Grafarvog. Vilhjálmur Vilhjálmsson, oddviti sjálfstæðismanna í borginni, segir að það sé vegna umferðaröryggis, áhrifa á gangandi vegfarendur og nýtingar hafnarsvæðisins. Vilhjálmur bendir á að Skipulagsstofnun telji lágbrú besta kostinn en þó með annarri útfærslu, minni uppfyllingu og lengri brú og undir það taki sjálfstæðismenn. Hann segir brýnt að hefjast handa, allar upplýsingar liggi fyrir og því eigi að fara í verkið hratt og vel þannig að brúin verði opnuð í ársbyrjun 2009. Vilhjálmur gefur lítið fyrir rök um að hábrú sem liggi að Holtavegi beini frekar umferð fólks í miðbæ Reykjavíkur. Hann segir ólíklegt að fólk sem ætli í Smáralind eða eitthvað annað og fari yfir hábrú við Holtaveg sé allt í einu komið í miðbæinn án þess að vita hvers vegna.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Rassía lögreglu á Suðurlandsvegi Innlent Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Innlent Sigldu fram á lík milli Engeyjar og Viðeyjar Innlent Segir löngu kominn tíma á almennilegt eftirlit Innlent Fá engar bætur fyrir stolinn bíl Innlent Þorsteinn Vilhjálmsson er látinn Innlent Skiptar skoðanir á vistaskiptum Úlfars sem hætti á miðnætti Innlent Breyttur tónn og reiður yfir gagnrýni vegna flugvélagjafarinnar Erlent Enn stærri jarðskjálfti á svipuðum slóðum Innlent Lykilvitni gegn Diddy: „Þetta voru hans draumórar“ Erlent Fleiri fréttir Bíll fullur af bensínbrúsum lekur Fjórtán hvíldartímabrot á 28 dögum Skiptar skoðanir á vistaskiptum Úlfars sem hætti á miðnætti Bílar Íslendinga ekki tryggðir sé þeim stolið erlendis „Maður heyrir svona drunur áður en bylgjan kemur“ Helsti valdamaður flugsins var oftast utan sviðsljóssins Fljótandi ruslsuga fjarlægir rusl úr sjónum við gömlu höfnina Segir löngu kominn tíma á almennilegt eftirlit Ökumenn í tékki á Suðurlandsvegi og Grímsey skelfur „Jómfrúarræður“ séu barn síns tíma Rassía lögreglu á Suðurlandsvegi Ekki á dagskrá að flýta atkvæðagreiðslu um ESB-viðræður Sigldu fram á lík milli Engeyjar og Viðeyjar Þorsteinn Vilhjálmsson er látinn Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Grunur um frelsissviptingu í miðbænum Enn stærri jarðskjálfti á svipuðum slóðum Hjörtur Torfason er látinn Fá engar bætur fyrir stolinn bíl „Þetta er mikil áskorun en á sama tíma tek ég henni bara vel“ Syndir 1.600 kílómetra í kringum landið: Borðar tíu þúsund kalóríur á dag fyrir svaðilförina Ekkert fundist af báti sem sagður er hafa hvolft Gjörunnin matvæli tæpur helmingur af orkuinntöku landsmanna Tilkynnti um stolið hjól og réðst svo á þjófinn „Þetta var ekki rétt, alveg klárlega“ Máttu skikka nemanda í tvö sjúkrapróf samdægurs Njósnari sér að sér og synt í kring um Ísland Vill deila þekkingu á jarðvarma með Úkraínu Bað forseta að taka „stjórnarliða á skólabekk og tukta þá til“ Sjö ára fangelsi fyrir tvær tilraunir til manndráps Sjá meira