Íbúðalánasjóður vill fleiri lóðir 12. janúar 2005 00:01
Með því að auka lóðaframboð geta sveitarfélögin, sérstaklega á höfuðborgarsvæðinu, minnkað þrýstinginn sem verið hefur á fasteignaverð. Þetta kemur fram í nýrri mánaðarskýrslu Íbúðalánasjóðs. "Í áformum Íbúðalánasjóðs um hófsama hækkun hámarkslána og 90 prósenta veðsetningarhlutfall var tillit tekið til fasteignamarkaðarins og stöðu íslensks efnahagslífs," segir í skýrslunni. "Innkoma banka og sparisjóða á fasteignalánamarkað hefur hins vegar leitt til hækkunar á fasteignaverði og aukið þrýsting á verðbólgu." Edda Rós Karlsdóttir, forstöðumaður greiningardeildar Landsbanka Íslands, segir alveg rétt að innkoma banka á fasteignalánamarkað hafi haft áhrif á fasteignaverð. Hins vegar megi ekki gleyma því að Íbúðalánasjóður hafi sjálfur átt upptökin þegar hann tilkynnti að boðið yrði upp á 90 prósenta lán. Edda Rós segist taka undir með Íbúðalánasjóði hvað aukna lóðaúthlutun snertir. "Það er mikilvægt að einblína ekki bara á aukna eftirspurn eftir húsnæði heldur líka framboðið. Það er mikilvægt að greiða fyrir aukinni uppbyggingu. Það myndi án efa hafa áhrif á fasteignaverðið."
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Fær bréf upp á hálfan milljarð í arf Viðskipti innlent Þörf á að koma á kortaviðskiptum án nettengingar sem fyrst Viðskipti innlent OpenAI kippir Sora úr sambandi Viðskipti erlent Bandarískt flugfélag í vetrarflug í fyrsta skipti eftir faraldur Viðskipti innlent Það er enginn aumingjaskapur að halda ekki fókus Atvinnulíf Bein útsending: Kynna yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar Viðskipti innlent Bára nýr fjármálastjóri Samherja Viðskipti innlent Katrín tilnefnd í stjórn Eikar Viðskipti innlent Eva Signý og Aníta til starfa hjá Borgarleikhúsinu Viðskipti innlent Semja um 148 stúdentaíbúðir við Háskólann í Reykjavík Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eva Signý og Aníta til starfa hjá Borgarleikhúsinu Bára nýr fjármálastjóri Samherja Bandarískt flugfélag í vetrarflug í fyrsta skipti eftir faraldur Semja um 148 stúdentaíbúðir við Háskólann í Reykjavík Bein útsending: Kynna yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar Þörf á að koma á kortaviðskiptum án nettengingar sem fyrst Fær bréf upp á hálfan milljarð í arf Katrín tilnefnd í stjórn Eikar Norðurál getur keypt meiri orku af Landsvirkjun Magnús Örn til Fossa Isavia ANS hefur hamskipti og verður Avians Hvernig safna ég fyrir húsnæðiskaupum? „Hætt við því að byggingamarkaðurinn fari í frost“ Landsbankinn hækkar einnig vexti Fá þrjátíu aukamilljónir til að fylgjast með dagvörumarkaði Rekstur Hörpu stöðugur þrátt fyrir krefjandi aðstæður Loka verslun Next í Kringlunni Freyr ráðinn til Samtaka iðnaðarins „Þetta módel gengur bara ekki upp“ Íbúðahótel í Reykjavík hætti rekstri vegna nýrra laga Ólíklegt að eignir dugi fyrir launakröfum Lyfjaver opnar nýtt apótek í Klíníkinni Fjórar Kappahl-verslanir til viðbótar opnaðar á morgun „Af og frá“ að bankarnir græði á verðbólgu Stofnandi Bláa lónsins nú formaður stjórnar Lykilfólk úr Vélfagi stofnar nýtt sjávarútvegstæknifyrirtæki Ná sátt og geta haldið kjaraviðræðum áfram Ný sátt gerð og Míla sektuð um 200 milljónir Lítið fékkst upp í 217 milljóna kröfur í bú Kvikmyndaskólans Landsbankinn greiðir 34,9 milljarða í arð til hluthafa Sjá meira