Vill ekki slíta R-listasamstarfi 9. mars 2005 00:01
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir tekur ekki undir skoðun ungra jafnaðarmanna í Reykjavík um að slíta beri R-listasamstarfinu þótt hún telji Samfylkinguna hafa alla burði til þess að bjóða fram í eigin nafni í borgarstjórnarkosningum. Í ályktun sem ungir jafnaðarmenn í Reykjavík samþykktu á aðalfundi í gærkvöldi er skorað á Samfylkinguna að bjóða fram í eigin nafni í borgarstjórnarkosningunum sem haldnar verða vorið 2006. Þeir benda á að samstarfið innan Reykjavíkurlistans hafi verið farsælt en tími sé kominn fyrir Samfylkinguna til að draga sig út úr samstarfinu. Flokkurinn sé stór og hafi átt mikilli velgengni að fagna í höfuðborginni eins og úrslit síðustu alþingiskosninga sýni. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, varaformaður Samfylkingarinnar, segir að ályktunin sé ágæt en hún segist ekki viss um þetta sé sú leið sem flokkurinn eigi að fara. Þeir sem standi að Reykjavíkurlistanum hljóti að athuga hvort það sé ekki grunnur fyrir áframhaldandi samstarfi því þar með verði félagshyggjuflokkunum haldið í meirihluta í borginni en það sé ekki gefið ef flokkarnir bjóði fram hver í sínu lagi. Hins vegar hafi Samfylkingin fulla burði til að bjóða fram ein og sér. Ingibjörg telur aðspurð að flokkarnir þrír sem standi að Reykjavíkurlistanum hljóti fyrst að ræða saman og sjá hvort þeir eigi málefnalega samstöðu og hvort flötur sé á áframhaldandi samstarfi áður en ákvarðanir séu teknar um annað.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Innlent Sigldu fram á lík milli Engeyjar og Viðeyjar Innlent Fá engar bætur fyrir stolinn bíl Innlent Enn stærri jarðskjálfti á svipuðum slóðum Innlent Grunur um frelsissviptingu í miðbænum Innlent Þorsteinn Vilhjálmsson er látinn Innlent Háttsettur sænskur diplómati handtekinn fyrir njósnir Erlent Menendez bræður geta nú sótt um reynslulausn Erlent Hjörtur Torfason er látinn Innlent „Þetta er mikil áskorun en á sama tíma tek ég henni bara vel“ Innlent Fleiri fréttir Ekki á dagskrá að flýta atkvæðagræðslu um ESB-viðræður Sigldu fram á lík milli Engeyjar og Viðeyjar Þorsteinn Vilhjálmsson er látinn Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Grunur um frelsissviptingu í miðbænum Enn stærri jarðskjálfti á svipuðum slóðum Hjörtur Torfason er látinn Fá engar bætur fyrir stolin bíl „Þetta er mikil áskorun en á sama tíma tek ég henni bara vel“ Syndir 1.600 kílómetra í kringum landið: Borðar tíu þúsund kalóríur á dag fyrir svaðilförina Ekkert fundist af báti sem sagður er hafa hvolft Gjörunnin matvæli tæpur helmingur af orkuinntöku landsmanna Tilkynnti um stolið hjól og réðst svo á þjófinn „Þetta var ekki rétt, alveg klárlega“ Máttu skikka nemanda í tvö sjúkrapróf samdægurs Njósnari sér að sér og synt í kring um Ísland Vill deila þekkingu á jarðvarma með Úkraínu Bað forseta að taka „stjórnarliða á skólabekk og tukta þá til“ Sjö ára fangelsi fyrir tvær tilraunir til manndráps Blindir vilja Hljóðbókasafnið heim Stjórnarandstaða kvartar undan starfi í velferðarnefnd Breyttar forsendur og pólitískar áherslur á bak við ákvörðunina Úlfar hættir sem lögreglustjóri Ráðherra hafnaði loftslagsrannsókn vegna ófullnægjandi lagaramma Hafnar því alfarið að hafa lekið gögnunum Nú má heita Gúníta Ljósynja Dawn Fólk varað við aukinni hættu á gróðureld Sala á Íslandsbankabréfum hafin og Jón Óttar sakar Ólaf Þór um leka Rannsóknarleyfi Rastar hafnað Telur víst að gögnin hafi komið frá sérstökum sjálfum Sjá meira